Morgunblaðið - 22.07.2019, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.07.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019 Álfabakka 12, 109 Rvk • s. 557 2400 • bjorg@bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18 Sérhæfum okkur í hreinsun á viðkvæmum fatnaði Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kötturinn hefur níu líf og kann að bjarga sér. Lævís- lega fara högnar og læður um götur og stræti og leika listir sínar. Tilvist þeirra öll, rétt eins og annarra kvikra vera, hverfist um að afla sér viðurværis – sem eru til dæmis ungar fugla himinsins. Þegar stund gefst frá streðinu finnst köttunum alveg ágætt að flatmaga í sólskininu og láta fara vel um sig. Þessi kisa var við Melhagann í Vesturbænum í Reykjavík, lá þar undir reiðhjóli og hélt um það tryggan vörð en að undan- förnu hefur þjófnaður á reiðhjólum í höfuðborginni verið faraldri líkastur. Óhætt er að segja að kettir séu margir hverjir fallegar skepnur – og geta þeir veitt fólki ómælda gleði með kenjum sínum og ótrúlegum kúnstum. sbs@mbl.is Kötturinn hefur níu líf og leikur listir sínar Morgunblaðið/Árni Sæberg Melhagakisan liggur undir reiðhjólinu Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Surtsey kemur vel undan þurrka- tíðinni í sumar og rannsóknir líf- fræðinga í eynni undanfarna daga hafa sýnt að sem fyrr er gróðurlíf þar fjölbreytt og vaxandi. Ein ný plöntutegund fannst á eynni, hóffíf- ill, og tvær nýjar pöddutegundir, hvannuxi og langleggur. Líffræðingar Náttúrufræðistofn- unar Íslands fóru í árlegan leiðangur til Surtseyjar 14.-18. júlí þar sem lit- ið var á landnám plantna og dýra. Á hverju ári má merkja aukna út- breiðslu graslendis í eynni, að því er fram kemur á vef Náttúrufræði- stofnunar, en það nýtur góðs af öfl- ugri áburðargjöf máfa sem hafa hreiðrað um sig í Surtsey. Surtsey var friðlýst árið 1965 og fer Umhverfisstofnun með umsjón Surtseyjarfriðlandsins. Óheimilt er að fara í land í Surtsey eða kafa við eyna nema að fengnu leyfi Umhverfisstofnunar. Þá hefur eyjan verið á heimsminjaskrá Unesco frá því í júlí 2008. Í hinum árlega leiðangri Náttúru- fræðistofnunar fannst plöntuteg- undin hóffífill, en síðast fundust nýj- ar tegundir árið 2015. Sölnuð laufblöð sýndu að hóffífillinn hafði verið í eynni í fyrrasumar en líklegt er að hann hafi borist með vindi til eyjarinnar. Alls hefur fundist 61 teg- und æðplantna á lífi á eyjunni en tvær tegundir, hnjáliðagras, sem hafði vaxið á eynni í áraraðir, og ljónslappi sem fannst nýr árið 2016, fundust ekki á lífi í ár. Tvær nýjar pöddutegundir fund- ust á Surtsey í ár, hvannuxi og lang- leggur. Hvannuxi er bjöllutegund af ætt jötunuxa en langleggur er átt- fætla, og kemur fram á vef Nátt- úrufræðistofnunar að sá fundur hafi verið mjög óvenjulegur. Langleggur sé algeng tegund á landinu og út- breidd en áður hefur verið talið ólík- legt að hann myndi berast svo langt út á haf til að nema nýtt land. Tveir langleggir fundust og bendir það til þess að tegundin sé komin til að vera í Surtsey. Smádýralíf í eynni er kannað með fallgildrum í gróðurmælireitum og víðar, tjaldgildru í máfavarpi, háfun í gróðurlendum og leituðu líffræð- ingar einnig að smádýrum undir steinum í hraunum og rekaviði. Framan af var veður óhagstætt til að leita smádýra en Erling Ólafsson skordýrafræðingur sagði að þrátt fyrir það hefði leiðangurinn gengið vel fyrir sig. „Það gekk vel. Það gengur venju- lega vel nema veðrið sé að trufla, það truflaði aðeins framan af að þessu sinni, fyrstu dagana. En þetta gekk allt upp.“ Þrjár nýjar tegundir fundust  Ein ný plöntutegund og tvær nýjar pöddutegundir fundust í Surtsey  Gróðurlífið er í sókn  Líf- fræðingar Náttúrufræðistofnunar könnuðu eyjuna ásamt öðrum sérfræðingum í árlegum leiðangri Ljósmynd/Erling Ólafsson Langleggur Fundur áttfætlunnar í Surtsey kom líffræðingum á óvart. Ólík- legt þótti að hún gæti borist langt út á haf til að nema nýtt land. Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Það er tvennt sem vegast á í því máli. Annars vegar er það krafan um að við getum rekið hér skilvirkt bankakerfi, þar sem kostnaði er haldið í lágmarki og við getum aukið hagræðingu í fjármálakerfinu til hagsbóta fyrir viðskiptavini, heimili og fyrirtæki. En hins vegar eru það samkeppnisleg álitamál.“ Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í samtali við Morgunblaðið um hug- myndir þess efnis að sameina Arion banka og Íslandsbanka. Líkt og Morgunblaðið greindi frá í síðustu viku hafa hugmyndir þess- ar hlotið góðan hljómgrunn með- al sérfræðinga og sagði stjórnarfor- maður Arion banka m.a. að slíkt væri eftir- sóknarvert ef það yki hagræði og bætti rekstur. „Mig grunar að það séu líkur til þess að slíkur samruni myndi ekki standast samkeppnislöggjöfina eins og hún er í dag,“ segir Bjarni og seg- ir þörf á því að skoða þessar hug- myndir í samræmi við það. Hann segir að ekki megi horfa fram hjá því að bankarnir séu þegar að draga úr starfsmannahaldi. Til staðar fyrir neytendur „Það taka allir eftir því að útibúum hefur fækkað. Hagræðing á sér stað í bankakerfinu eins og er,“ segir Bjarni. Þá segir hann að fljótt á litið séu það einungis samkepnnisréttarleg sjónarmið sem gætu komið í veg fyr- ir umræddan samruna. „Og þegar ég nefni það er mikilvægt að hafa í huga að samkeppnisrétturinn er til staðar fyrst og síðast til að vernda stöðu neytenda og viðskiptavina á þessum markaði.“ Hagræðing á sér nú þegar stað í bankakerfinu  Telur ekki líklegt að lög myndu heimila samruna bankanna Bjarni Benediktsson Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Það er meira af verkefnum það sem af er sumri en það sem var síðasta sumar enda var það í rólegri kant- inum. Þá var rok og rigning og eng- inn nennti upp á hálendi. Nú er stað- an svolítið önnur,“ segir Jónas Guðmundsson, hjá Slysavarnafélag- inu Landsbjörg, um hálendisvakt- ina. Eins og Morgunblaðið hefur áð- ur greint frá er hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar starfrækt nú fjórtánda sumarið í röð og rekur vaktir að Fjallabaki, í Nýjadal á Sprengisandi og Drekagili í Öskju, auk mannskapar í Skafta- felli í Öræfum. Hálendisvaktin fór fyrr af stað í sumar en fyrri sumur, um miðjan júní, og fann Jónas fyrir þörfinni strax frá byrjun. „Fótbrot og slys, við erum nokkrum sinnum búnir að þurfa að fá sjúkraflug með þyrlu Landhelgisgæslunnar,“ segir hann, spurður um verkefnin sem vaktin hefur þurft að sinna til þessa. Spurður hvort hann finni fyrir því að Íslendingar séu meira að sækja fjöllin í ár, sökum þess að í fyrra hafi verið verra veður og innlendir því frekar kannski setið heima, segist Jónas ekki finna fyrir því. „Ekki í okkar útköllum. Að stærstum hluta eru þetta erlendir ferðamenn. Í fyrra hætti fólk bara við að fara á hálendið. Það var bara kalt, alveg of- an í frostmark, og rigning og rok.“ Spurður um mannskapinn í Skaftafelli segir Jónas: „Þar erum við fyrst og fremst að styðja við þá björgunarsveit sem er þar. Hún er lítil en öflug. En á þessum árstíma er mikið að gera hjá þeim. Hún er fyrst og fremst samsett af bændum og landvörðum.“ Aukin verkefni hjá hálendisvaktinni  Fundu fyrir þörfinni strax í júní Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vaktmaðurinn Jónas Guðmundsson aðstoðar fólk í neyð á hálendinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.