Morgunblaðið - 22.07.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.07.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 g y Léttgangaá Sardiníu Frá kr.229.995 10. október í 7 nætur · Smeralda ströndin · Steindrangar San Pantaleo · Capo Cesario · Limbara fjallið · Klettaheimur Capo Testa Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem styðja munu þriðja orkupakkann munu ganga gegn vilja mjög stórs hluta almennra flokksmanna, að mati Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins. Hann legg- ur til að nýtt verði heimild til öflunar 5.000 undirskrifta flokksmanna í því skyni að knýja fram atkvæðagreiðslu meðal allra flokksmanna um málefn- ið, en hann segir það ekki mikið mál að ná saman slíkum fjölda. Hann telur það eðlilegt að ákvarðanir um „grund- vallarmál“ séu teknar með þessum hætti, en í flokknum eru að hans sögn um 40-50 þúsund manns. Gæti haft áhrif í prófkjörum Það er gott í sjálfu sér, að mati Styrmis, að umræður um orkupakk- ann fari fram enda sé það til marks um líf í flokknum. Hann segir mikla óánægju ríkja í grasrótinni. „Ég vona að þingmenn átti sig á því að með því að samþykkja þennan orkupakka ganga þeir gegn mjög stórum hópi almennra flokksmanna,“ segir hann, en kveðst þó ekki „minnstu hugmynd hafa“ um það af hverju þingflokkurinn tekur afstöðu með orkupakkanum. „Á síðustu tólf mánuðum hef ég heyrt í talsvert mörg- um þingmönnum, bæði úr Sjálfstæðisflokki og Fram- sóknarflokki og svolítið úr VG. Ég verð mjög rækilega var við það hvað það hafa ver- ið miklar efasemdir um orku- pakkann hjá mörgum þing- mönnum, allavega í Sjálfstæðisflokki og Fram- sóknarflokki,“ segir Styrmir. „Jafnvel þótt þessir þingmenn gerðu ekkert annað en að hugsa um eigin hag, og þeir hafa vafalaust áhuga á því að sitja áfram á þingi, þá verður þetta ekki auðvelt mál fyrir þá í prófkjörum fyrir næstu kosningar, að hafa snúið baki við svo stórum hópi flokksmanna,“ segir Styrmir sem kveðst hafa sótt fjölmarga fundi flokksins síðustu 12-18 mánuði. „Ég hef tekið eftir því að sama hvar ég kem, þá eru alltaf einhverjir sem draga mig út í horn og hvísla því að mér að þeir séu sammála því sem ég er að segja, en segja það ekki upp- hátt. Ég finn hvernig landið liggur í þessum flokki,“ segir Styrmir. Styrmir tók í pistli á vef sínum í gær undir orð Elliða Vignissonar, bæjarstjóra í Ölfusi, sem tjáði sig um nýja skoðanakönnun MMR og setti í samhengi við orkupakkamálið á Facebook-síðu sinni um helgina. Í könnuninni mældist Sjálfstæðisflokk- urinn með 19% fylgi. „Eins og alltaf er í þessum flokki, þá ræða menn um framtíðina. Á undanförnum árum hef ég heyrt að í vangaveltum manna á milli um framtíðarforystu flokksins hefur hans nafn komið upp aftur og aftur. Þegar hann kemur fram með þessa skoðun, þá finnst mér það mikið fagnaðarefni af því að hann er greini- lega framtíðarmaður í augum margra flokksmanna. Þess vegna vekur það enn meiri athygli þegar hann talar svona,“ segir Styrmir. Gula spjaldið á sjálfstæðismenn Elliði segir að gjá sé á milli þing- flokksins og fjölmargra í grasrótinni og að hún komi fram í skoðanakönn- uninni. Hún sé ígildi viðvörunarorða. „Einhverjir virðast ekki treysta sér til að styðja Sjálf- stæðisflokkinn áfram og hann er kominn undir 20%. Ég var lengi í íþróttum og fékk oft gula spjaldið. Þegar það gerð- ist reyndi maður að koma bet- ur fram á vellinum. Þetta er gula spjaldið á okkur sjálf- stæðismenn,“ segir Elliði. „Verkefnið núna er að brúa þetta bil, en þetta er verkefni sem við sjálfstæðismenn stöndum reglulega frammi fyrir. Ég trúi því og treysti því að bæði formað- urinn og utanríkisráðherra haldi vel utan um þetta mál og finni leiðina. Þeir eru hæfastir til þess,“ segir El- liði. Spurður hvort hann hafi tillögur um það hvernig leysa megi úr mál- unum kveðst hann heppinn að hafa sér hæfara fólk við stjórnvölinn í mál- inu. „Ég treysti þeim til að leysa það, en um leið og ég treysti þeim til þess, þá ætlast ég til þess. Þess vegna hef ég stutt þau frá upphafi og geri enn,“ segir hann. Margir gætu séð tækifæri Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Ak- ureyri, segir það „alls ekki tilgátu út í loftið“ að í könnun MMR birtist fylgisfærsla frá Sjálfstæðisflokki til Miðflokks. Hann kveðst þó ekki hafa séð niðurbrot af könnuninni og hann vildi helst sjá eina til tvær kannanir í viðbót til að staðfesta þetta. „Þetta mætti þá rekja til þess að íhaldssam- ara fólk finni sér samsömun í því hvernig Miðflokkurinn hefur nálgast þetta mál og sé tortryggið út í þennan þriðja orkupakka,“ segir Grétar Þór. Spurður út í stöðu mála í Sjálfstæð- isflokknum og hvort einhverjir gætu mögulega séð tækifæri í því hvernig orkupakkamálinu hefur undið fram segir hann að svo geti vel verið. „Það eru margir sem gætu mögulega séð sér sóknarfæri í því ef það er ólga inn- an herbúða flokksins,“ segir Grétar Þór, en nefnir þó að ríkisstjórnin standi styrkum fótum. „Það eru ekki mörg merki þess að hún sé að fara að leysast upp, allavega ekki í bili,“ segir hann. Spurður út í framhaldið þegar þing kemur saman til að ræða orkupakk- ann nefnir hann að ekki hafi verið mikið um áróður með eða á móti þriðja orkupakkanum í sumar. „Hins vegar, ef öflum innan Sjálfstæðis- flokksins tækist að knýja fram at- kvæðagreiðslu sem kannski færi gegn orkupakkanum, þá gæti það orðið saga til næsta bæjar. Það gæti haft áhrif á það hvað gerist í lok ágúst,“ segir Grétar Þór. Á skjön við vilja grasrótarinnar  Vill kosningu meðal flokksmanna um orkupakkann  Efasemdir um orkupakkann í þingflokkum  Verkefnið að brúa bilið frá þingflokknum til grasrótarinnar  Segir sóknarfæri í ólgu innan flokksins Elliði Vignisson Grétar Þór Eyþórsson Styrmir Gunnarsson Vel yfir 100 manns mættu til sam- eiginlegrar útiguðsþjónustu safn- aða í Árbæ, Grafarvogi og Graf- arholti í Reykjavík við Reynisvatn í gær. Helgihaldið önnuðust sr. Þór Hauksson, sr. Sigurður Grétar Helgason og sr. Karl V. Matthías- son sem í predikun ræddi um ábyrgð mannfólksins gagnvart sköpunarverkinu. Þótti það eiga vel við á þessum óvenjulega helgistað sem var, í orðsins fyllstu merkingu, úti í guðsgrænni náttúrunni. „Hugrekki lærisveinanna er okk- ur til eftirbreytni í samskiptum við annað fólk; það er að yfirgefa allt og fylgja Jesús og treysta. Við eig- um að standa með þeim sem höllum fæti standa, svo sem fólki á flótta. Íslendingar fyrri tíðar voru í þeirri sömu stöðu, “ segir sr. Karl um boð- skapinn. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Messað úti í guðsgrænni náttúrunni Fjölmennt lið slökkviliðsmanna var kallað út á Ísafirði um klukkan 18 í gærkvöld eftir að eldur kom upp í gömlu timburhúsi, Tangagötu 20a, þar í bæ. Þegar slökkvilið bar að garði var talsverður eldur laus í húsinu og því nokkur hætta á ferðum. Vel tókst að hefta frekari útbreiðslu eldsins. Fréttaritari Morgunblaðsins á Ísa- firði segir slökkviliðsmenn hafa glímt við eld í bakenda hússins. Ekki er vit- að til þess að nokkrum hafi orðið meint af. Þá var ekki hægt að veita upplýsingar um eldsupptök þegar Morgunblaðið fór í prentun. Sem fyrr segir tókst slökkviliðs- mönnum að hefta frekar útbreiðslu og gekk þeim vel að ráða niðurlögum eldsins. Að því loknu var húsið reyk- ræst. Ekki var í gærkvöldi vitað um umfang skemmda. Talsverður eldur kom upp í timburhúsi á Ísafirði  Húsið stendur við Tangagötu og gekk vel að slökkva í Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson Brunavarnir Slökkviliðsmenn náðu að koma í veg fyrir frekara tjón.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.