Morgunblaðið - 22.07.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.07.2019, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019 Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Einstök gæði frá 40 ár á Íslandi Öflugar og notendavænar sláttuvélar Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 TANGARHÖFÐA 13 577 1313 - kistufell.com BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ „Í fjörunni leyndist mikið af rusli og ekki var vanþörf á tiltekt. Ég reikna með að þetta framtak okkar verði ár- legur viðburður héðan í frá,“ segir Heimir Harðarson hjá Norðursiglingu á Húsavík. Nú fyrr í mánuðinum tók hópur um það bil 30 starfsmanna ferðaþjónustufyrirtækja á Húsavík, stofnana og umhverfissamtaka þátt í alþjóðlegu strandhreinsunarátaki. Það var upphaflega skipulagt af Ric O’Barry’s Dolphin Poject, bandarísk- um samtökum sem einblína á vernd- un höfrunga og hvala í höfum heims- ins. Fólk á hverjum þátttökustað tók svo við keflinu og hreinsaði í nær- umhverfi sínu þar sem helst var þörf. Nyrðra var farið að ósum Laxár í Að- aldal, í landi Laxamýrar, og tekið til hendi þar sem heitir Ærvíkurbjarg. Landeigendur slógust í hópinn með hinu vaska hreinsunarfólki og tíndu ruslið og var eftirtekjan góð. Með samstilltu átaki söfnuðust á um 800 metra belti nærri 600 kíló og um 70% af því voru netadræsur og veiðarfæri. Af því má ráða að sjó- menn geta gert enn betur í umhverf- ismálum. Komið í veg fyrir að veiðar- færi sem þeir missa í hafið valdi þar skaða. Ruslinu sem safnaðist við Lax- árósa var svo komið í flokkun og meðhöndlun með aðstoð Norðursigl- ingar og Íslenska gámafélagsins. Strandhreinsun við Laxárósa í Aðaldalnum Hreinsuðu netarusl úr fjörunni Samtaka Þátttakan í hreinsunarátakinu var góð, rétt eins og stemningin. Hreinsun Losað um net sem skolaði á land og grófst í sand og fjörugróður. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Miklar breytingar eigasér nú stað ígosdrykkjaneyslulandsmanna og sykur- lausir drykkir seljast sífellt betur. „Neytendur velja í vaxandi mæli hollar og sykurlausar vörur og framleiðendur fylgja þeirri þróun. Án allra utanaðkomandi afskipta eða skattlagningar,“ segir Gunnar B. Sigurgeirsson, aðstoðarforstjóri hjá Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni. Gunnar vísar þar til hugmynda stjórnvalda um að taka upp að nýju sérstakan skatt á sykraða gosdrykki og sælgæti sem hækka myndi verð- ið um 20%. Er ætlaður tilgangur þessarar skattlagningar að draga úr mikilli sykurneyslu Íslendinga. Rétta nafnið! „En í raun er rangnefni að kalla þetta sykurskatt því skatt- leggja á alla gosdrykki, líka þá syk- urlausu. Köllum þetta bara réttu nafni; þetta er gosdrykkjaskattur,“ segir Gunnar. – Árið 2018 voru yfir 60% af gosdrykkjarsölu Ölgerð- arinnar sykurlausir drykkir, en árið 2012 var þetta hlutfall 40%. „Salan árið 2019 og söluhorfur eru þannig að hlutfall sykurlausra drykkja hækkar áfram,“ segir Gunnar og bætir við að þróunin á gosdrykkja- markaði á Norðurlöndum sé hin sama og hér á landi. „Um langt árabil voru sykraðir drykkir í langmestum metum og sykurlausir voru helst tengdir við sérstakt megrunarátak eða eitthvað slíkt,“ segir Gunnar. „Í dag eru tveir stærstu flokkarnir á gos- drykkjamarkaði og í okkar sölu og framleiðslu sykurlausir drykkir og þurfti enga verðstýringu eða skatt- lagningu til. Fólk er einfaldlega meðvitaðra en áður um hollustu og hefur í krafti þeirrar þekkingar dregið úr sykurneyslu.“ – Má í þessu sambandi nefna að sykursýki 2, sem er áunninn sjúkdómur til dæmis vegna rangs mataræðis, er í dag sem faraldur á Vesturlöndum. Hefur því fjöldi fólks þurft að taka rækilega á sínum málum og breyta mataræði til þess að halda sjúk- dómnum niðri en slíkt er vel ger- legt. Gunnar vekur athygli á því að frá árinu 2016 til dagsins í dag hafi notkun Ölgerðarinnar á sykri til eig- in gosdrykkjaframleiðslu dregist saman um fjórðung, þrátt fyrir að salan á gosi hafi aukist um nærri 2 milljónir lítra. Það sem helst skýrir þetta er aukin sala á Kristal; kol- sýrðu og sykurlausu vatni. Einnig sé mjög góð og vaxandi sala í Pepsi Max, sem er vinsælasti sykurlausi kóladrykkur landsins. Valkostir sem seljast vel „Sykurlausir drykkir eru meira en 60% af heildarsölunni og breyt- ingarnar eru það hraðar að þetta hlutfall verður án nokkurs vafa hærra á næstu árum. Þessari þróun fylgjum við og leiðum hana einnig, t.d. með því að stórauka framboð á minni skammtastærðum í gos- drykkjum ásamt því að beina kröft- um okkar að mestu í vöruþróun í áttina að hollari valkostum sem selj- ast vel,“ segir Gunnar B. Sigur- geirsson að síðustu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skorinort Köllum þetta bara réttu nafni; þetta er gosdrykkjaskattur, segir Gunnar um fyrirætlanir stjórnvalda. Sykur á undanhaldi Neyslumenning breytist! Sala á sykurlausu gosi eykst mikið. Er nú 60% hjá Ölgerðinni. Hraðar breytingar í krafti þekk- ingar og vitundar um hollustu. Gos Pepsi Max selst vel enda án sykurs sem nú er það sem fólk kárlega vill. Sykurmolar Augu fólks opnast nú æ betur fyrir skaðsemi sykurneyslu. … stórauka framboð á minni skammtastærðum ... ásamt því að beina kröftum okkar að mestu í vöruþróun í áttina að hollari valkostum sem seljast vel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.