Morgunblaðið - 22.07.2019, Side 12

Morgunblaðið - 22.07.2019, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019 22. júlí 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.93 125.53 125.23 Sterlingspund 156.66 157.42 157.04 Kanadadalur 95.71 96.27 95.99 Dönsk króna 18.789 18.899 18.844 Norsk króna 14.592 14.678 14.635 Sænsk króna 13.331 13.409 13.37 Svissn. franki 127.06 127.76 127.41 Japanskt jen 1.1601 1.1669 1.1635 SDR 172.71 173.73 173.22 Evra 140.31 141.09 140.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.9852 Hrávöruverð Gull 1437.05 ($/únsa) Ál 1827.0 ($/tonn) LME Hráolía 62.5 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Af þeim fimm hundruð bandarísku stórfyrirtækjum sem mynda S&P 500- vísitöluna skrifast 19% af styrkingu vísitölunnar á þessu ári á velgengni fjög- urra tæknirisa. Þróun hlutabréfaverðs Microsoft hefur bætt 6% við gengi vísitölunnar, Apple 4,7%, Amazon 4,4% og Facebook 3,7%. Wall Street Journal greinir frá þessu og segir þróunina svipaða og 2017 og 2018 þegar tæknirisarnir voru í mikilli sókn, allt þar til þeir tóku kollsteypu á fjórða árs- fjórðungi í fyrra. Markaðsgreinendur benda á að af ell- efu undirflokkum S&P 500 eru sjö nokkuð langt frá methæðum, þó að aðalvísitalan sjálf hafi nýlega slegið met. Við slík skilyrði virðist áhugi fjárfesta á tæknirisunum aukast enda eigi þeir að baki prýðilega vaxtarsögu og njóti jafnframt góðs af miklum sýnileika. ai@mbl.is Tæknirisarnir bera uppi styrkingu S&P STUTT VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Merkilegt skref hefur verið tekið hjá Verði tryggingum. Þar er núna hægt að sækja um líftryggingu og sjúk- dómatryggingu yfir netið og tekur tölva bindandi ákvörðun um að sam- þykkja umsóknina. Ekki þarf að bíða þess að starfsmaður gefi græna ljós- ið heldur sér hugbúnaður alfarið um það að meta hvort veita skuli trygg- inguna og þá með hvaða skilmálum. Steinunn Hlíf Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri ráðgjafar og þjónustu hjá Verði, segir hugsunina þó ekki að tölvutæknin komi alfarið í staðinn fyrir þjónustufulltrúann. Áfram verði hægt að kaupa persónu- tryggingar með hefðbundnum hætti og hægt að biðja starfsmann um að skoða málið nánar ef ákvörðun tölv- unnar er viðskiptavini ekki að skapi. „Við höldum áfram að vera mannlegt tryggingafélag og starfsmenn okkar til staðar fyrir alla viðskiptavini. Bætt stafræn þjónusta er einfald- lega viðbót, og ný leið til trygginga- kaupa sem kann að henta mörgum.“ Vegur og metur áhættuna Önnur íslensk tryggingafélög hafa boðið fólki upp á þá þjónustu að sækja um tryggingu yfir netið, en þá sér hugbúnaður, að sögn Steinunn- ar, aðeins um að leiða viðskiptavin- inn í gegnum spurningalista og áframsendir síðan öll nauðsynleg gögn til starfsmanns sem tekur end- anlega ákvörðun um það hvort tryggja skuli viðkomandi og þá með hvaða kjörum. „Getur það ferli verið tímafrekt og jafnvel tekið daga eða vikur að fá svar, en hjá okkur er svarið komið um leið, og tryggingin tekur strax gildi.“ Hugbúnaður Varðar byggist ekki á gervigreind heldur ítarlegu gagna- módeli sem vegur og metur þær upp- lýsingar sem viðskiptavinurinn slær inn, s.s. um lífsstílsþætti, aldur, þyngd og heilbrigðissögu, og getur forritið m.a. ákveðið hvort frekari heilsufarsgögn þurfi frá lækni, ell- egar veitt tryggingu sem undanskil- ur tiltekna þætti. Til að nota þjón- ustuna þarf íslenska kennitölu og rafræn skilríki og er þess vandlega gætt að tryggja öryggi þeirra við- kvæmu persónuupplýsinga sem hug- búnaðurinn biður um. Steinunn segir vonir standa til að í framtíðinni verði hægt að láta hug- búnaðinn afgreiða fleiri gerðir trygginga en auk ýmiss konar trygg- inga fyrir atvinnulífið býður Vörður einstaklingum upp á að tryggja fast- eignir sínar, innbú, dýr og ökutæki, og selur tryggingar sem veita vernd á ferðum og í frístundum. Hún bend- ir á að þessi þróun muni bæði auð- velda viðskiptavinum trygginga- kaupin og líka létta vinnu af starfsfólki Varðar sem geti þá nýtt krafta sína til að þjónusta trygginga- taka með öðrum hætti. Spennandi tímar eru framundan í tryggingaheiminum og hlakka margir til að sjá hvernig aukin sjálfvirkni og bætt notkun gervi- greindar muni auka samkeppni og bæta þjónustu við tryggingakaupa. Bendir Steinunn á að því lengra sem tæknin þróast, því auðveldara verði að klæðskerasníða trygging- ar að hverjum viðskiptavini. „Það þýðir að ákvörðun skilmála og ið- gjalda verður betur tengd einstak- lingnum frekar en látin taka mið af meðaltali hópsins. Er auðvelt að sjá hvernig það mun verða til mik- illa hagsbóta fyrir þá sem standa sig vel, og þá betur hægt að verð- launa ábyrga og varkára trygg- ingataka.“ Hugbúnaður sér um að samþykkja trygginguna Morgunblaðið/Eggert Framtíðin Steinunn segir mega vænta þess að tryggingar verði æ betur klæðskerasniðnar að hverjum einstaklingi.  Sjálfvirkni og gervigreind munu smám saman breyta ásýnd tryggingamarkaðarins Carlos Ghosn virðist hafa snúið vörn í sókn og hefur höfðað mál á hendur bílaframleiðendunum Nissan og Mitsubishi. Reuters greinir frá þessu og hefur eftir hollenska dag- blaðinu NRC. Eins og Morgunblaðið hefur fjallað um hefur Ghosn staðið í ströngu í Japan allt frá því hann var handtekinn í nóvember á síðasta ári vegna ásakana um fjármálalegt mis- ferli. Þurfti hann að sæta löngu varð- haldi en var sleppt lausum gegn greiðslu hárrar tryggingar seint í apríl. Var Ghosn rekinn úr starfi for- stjóra Renault og sömuleiðis úr stöðu stjórnarformanns Nissan og Mitsubishi. Ghosn hefur frá upphafi neitað öllum sökum. Krefst Ghosn 15 milljóna evra í bætur vegna alvarlegra annmarka á því hvernig honum var sagt upp störfum. Í viðtali við NRC útskýrir Laurens de Graaf, lögfræðingur Ghosns, að samkvæmt hollenskum lögum þurfi – áður en stjórnandi er rekinn – að upplýsa hann fyrst um þær sakir sem á hann eru bornar, og leggja fram sannanir fyrir þeim. Hvorugt hafi verið gert í tilviki Ghosns. Ghosn er með skattalega heimilis- festi í Hollandi og þar er eignar- haldsfélagið utan um samstarf Niss- an og Mitsubishi formlega skráð. ai@mbl.is AFP Reglur Ghosn segir bílarisana hafa staðið rangt að uppsögn sinni. Ghosn höfðar mál í Hollandi  Vill fá greiddar 15 milljónir evra í bætur frá Nissan og Mitsubishi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.