Morgunblaðið - 22.07.2019, Page 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019
SAMSTARFSAÐILI
HVAR SEM ÞÚ ERT
Hringdu í 580 7000
eða farðu á sumarhusavorn.is
Ég á mér land! Ónei,
gamla mín, þú áttir
land, en vesalingarnir á
Alþingi Íslendinga sjá
til þess að landið sé selt
ásamt auðlindum þjóð-
arinnar.
Nú er í umræðunni
að selja beri ríkisjarðir,
en ríkið, það er þjóðin,
á um 400 jarðir. Auðvit-
að megum við ekki eiga
þær frekar en annað, þjóðin skal bara
ekkert eiga. Allt skal selt til þess að
standa straum af launum ríkisbákns-
ins, þingmanna og flottræfla sem hafa
komið sér fyrir á jötunni, fólks sem
hefur mergsogið alþýðu landsins, alla-
vega fer lítið fé til innviðauppbygg-
ingar. Þegar eignir ríkisins verða eng-
ar, þá er þjóðin gjaldþrota og ekki
einu sinni borgunarhæf til vesaling-
anna.
En hverjir geta svo keypt sér jörð?
– Erlendir og innlendir auðmenn,
kúlulánadrottningar, stöndugir þing-
menn og ráðherrar, nú skal tryggja
sér og sínum öryggi til framtíðar með
kaupum á jörð, líka hægt að endur-
selja til útlendinga á uppsprengdu
verði, þegar allt fer á versta veg, sem
mun gerast.
Ég skora á hugrakkan blaðamann
að rannsaka nú og upplýsa okkur um
það hverjir eigi og séu að kaupa sér
jarðir. Þögnin um þessi mál er ein-
kennileg og engin lög um það hversu
margar jarðir fólk megi eiga. Ratcliff
var að kaupa sér eina jörðina enn og á
nú um það bil 1% af Íslandi. Útlend-
ingur er að kaupa eyjuna Vigur, út-
lendingarnir sem keyptu í Fljótunum í
Skagafirði voru að kaupa sér jörð í
Svarfaðardal, þvílíkur aulaháttur
stjórnvalda, engin takmörk, en það
gildir ef til vill um þá líka. Það er
þyngra en tárum taki að horfa upp á
ákvarðanatökur stjórnvalda og skref
þeirra til landmissis og fátæktar al-
þýðu. Hvar er barnaflokkur VG? Allt
skal gert fyrir börnin, barnaþing,
barnamenning, barnamótmæli, ung-
menni send á ráðstefnu SÞ um heims-
markmið, en seljum undan þeim land-
ið á meðan. Óskir um lækkun
kosningaréttar í 16 ár, og hvaða flokk
haldið þið að þessi stýrða kynslóð
kjósi?
Katrín Jakobsdóttir talar mikið um
tæknivæðingu framtíðar og atvinnu-
missi, en hvað ætlar hún og þing-
heimur að gera fyrir allt fólkið, sem
þau samþykktu að taka á móti, auk
hælisleitenda sem eru enn einn liður
til fátæktar alþýðunnar.
Á hinum vængnum Samfylking sem
vill opið land og engum vísa frá, skyldu
nýbúarnir kjósa þá í þakklætisskyni?
Píratana vil ég af þingi, Alþingi ber
engan kinnroða yfir því að senda út í
heim tvær góðar úr Tungunum, góðar
í því að telja að enginn sé hæfur nema
þær tvær, að eigin áliti. Mannréttindi
þeirra ná bara til þeirra sem eru sam-
mála þeim. Ja, svei.
Framsókn hangir í því
sama, já og nei, eftir því
hvert vindar blása.
Flokkur fólksins jarm-
ar alltaf það sama.
Þá er það Sjálfstæð-
isflokkur númer 1 og
Sjálfstæðisflokkur
númer 2, Viðreisn, en
peningaarmar þessara
flokka eru ekki hæfir til
að taka ákvarðanir fyrir
þjóðina. Nei, takk, þau
geta bara hagnast á öðru en eignum
þjóðarinnar, – og já, ég segi nei við
orkupakka 3 og sölu ríkisjarða, sem
við þjóðin eigum.
Miðflokkurinn þarf að sanna fyrir
mér að þar sé fólk sem vill vernda
land og þjóð, því að landlaus verðum
við ekki þjóð. En ég efast, því vitra
fólkið fer sér hægar með efa sinn og
sín málefni, en á meðan ganar bján-
inn áfram fullur sjálfstrausts í allri
vitleysunni án raka og heildarhugs-
unar og því miður er landinu stjórnað
af þannig fólki.
Upptalning þessara flokka sýnir
mér að ekki er bjart framundan. Þor-
gerður Katrín upplýsti einmitt sem
dæmi um getuleysi sitt og þingsins,
með orðunum um það að – fátæka og
láglaunafólkið éti óhollustuna, – en
því skyldi það nú vera? Katrín Jak-
obsdóttir og Þórdís Kolbrún lærðu
ekkert af frumhlaupi Unnar Brár
með albönsku fjölskyldurnar og síðan
hefur verið stríður straumur Albana
til landsins og ekkert stríð í landi
þeirra. Eins verður það þegar það
spyrst út í heim að Ísland vísi ekki frá
landi fólki með börn, Grikkland 2 skal
það verða. Lítið fer fyrir stjórn-
málafærni þessara kvenna, báðar
ráðherrar með völd, en þær breyttu
bara lögum og reglum landsins eftir
að No Border-liðar smöluðu fólki til
að garga á Austurvelli. Mótmælum
fylgir ábyrgð. Ekkert bannar No
Border, barnabókahöfundum og
Steinunni Ólínu að vera góð á eigin
kostnað, það væri nú eitthvað, þau
gætu þá tekið að sér einstaklingana
sem þau mótmæla fyrir.
Hættið svo að láta eins og enginn
refur sé í skóginum.
Í lokin, því kemur RÚV ekki með
fréttir af yfirgangi Albana í Norður-
Kósóvó, ásamt landtökum í Make-
dóníu og Grikklandi, ef til vill af því
að nú skal stofna Stór-Albaníu.
Eftir Stefaníu
Jónasdóttur
» Allt skal gert fyrir
börnin, barnaþing,
barnamenning, barna-
mótmæli, ungmenni
send á ráðstefnu SÞ
um heimsmarkmið,
en seljum undan þeim
landið á meðan.
Stefanía Jónasdóttir
Höfundur býr á Sauðárkróki.
Jarðasala og fleira
Mér finnst svo von-
arríkt og gefandi að fá
að upplifa þessa miklu
vorsins vakningu sem
orðin er að veruleika í
umhverfis- og lofts-
lagsmálum.
Að við séum nú loks í
alvöru farin að velta
sköpuninni fyrir okkur
og virða hana eins og
hún á skilið. Ganga
ekki bara um hana á drullugum skón-
um og taka henni sem sjálfsagðri.
Að nú sé svo bara raunverulega
komið að því að fólk almennt og
stjórnvöld í ríkara mæli vilji taka
höndum saman til þess að gera jörð-
ina lífvænlegri, ekki síst til lengri
tíma litið. Með því að hugsa um
hvernig við umgöngumst hana þann-
ig að við fáum notið hennar um leið
og hún geti nýst okkur
sem best á sem hag-
kvæmastan hátt og sem
allra lengst. Með því að
hlúa að henni, rækta
hana, virða og ekki síst
þakka fyrir hana. Því
vissulega getum við sem
mannkyn haft heilmikið
um það að segja hvort
hér verði lífvænlegt eitt-
hvað lengur. Til dæmis
með því að huga að því
hvernig við lágmörkum
losun gróðurhúsa-
lofttegunda og með því að binda kol-
efni svo við komumst sem næst því
að jafna kolefnissporið. Með aukinni
og markvissri fræðslu um land-
græðslu og skógrækt, endurheimt
votlendis og svo framvegis. Því er
skipting orkugjafa bæði brýnt og
spennandi verkefni og ber að fagna
markmiðum um tímasetningar í því
tilliti.
Þá er gríðarlega áhugaverð vakn-
ingin um að tína upp rusl eða plokka
eins og það er kallað, lágmarka plast
í umferð og með flokkun hvers kyns
íláta og sorps og urðun þess. Og þá
ekki síst um það hvernig við umgöng-
umst hafið og þau verðmæti sem það
hefur að geyma og getur gefið af sér
með skynsamlegri nálgun og nýt-
ingu. Með aukinni vitund um að sjór-
inn sé ekki öskuhaugar. Og með
auknum rannsóknum á lífríki sjáv-
arins og hvernig það hagar sér og
þróast í breytilegum aðstæðum.
Trúverðugar áætlanir og mark-
vissar árangursríkar aðgerðir í þess-
um efnum hafa alla burði til að sam-
eina okkur sem þjóð fremur en
sundra. Og ekki síður sem mannkyn
sem hefur trú á lífinu. Á hinni fögru
og dýrmætu sköpun Guðs sem hann
fól okkur að gerast ráðsmenn yfir.
Með því að rækta upp og hlúa að.
Vernda, nýta og njóta okkur til heilla
og blessunar, vonandi um mörg far-
sæl og heilladrjúg ókomin ár.
Andrúmsloftið skiptir máli
Það skiptir nefnilega máli hvers
konar andrúmsloft við drögum að
okkur og lifum í. Andrúmsloftið
ásamt nauðsynlegri jarðrækt, að ég
tali nú ekki um mannrækt og eðlilega
trúrækt, skiptir okkur nefnilega
verulegu ef ekki nánast öllu máli
þegar kemur að tilveru okkar, vel-
ferð og líðan þegar upp er staðið. Það
eru því í mínum huga forréttindi að
fá að fylgja þeirri köllun okkar eftir
að vilja hlúa að sköpuninni svo hún
fái notið sín með þeim hætti sem
henni var og er ætlað. Okkur öllum
til farsældar, gagns og ánægju.
Hættum að drepa hvert annað
Hættum svo endilega sem mann-
kyn að ljúga, svíkja og pretta, að ég
tali nú ekki um að skera, stinga eða
skjóta hvert annað. Lítilsvirða skoð-
anir, tala með óvirðingu um og/eða
fara á bak við eða baktala hvert ann-
að. Þá er aldrei að vita nema okkur
takist að lifa í sátt og samlyndi í þess-
um heimi í einhvern ljúfan, góðan og
gefandi tíma til viðbótar.
Til þess hjálpi okkur kærleikans
Guð, skapari alls sem er. Höfundur
og fullkomnari lífsins sem er tilbúinn
að fyrirgefa og reisa okkur upp að
nýju með kærleika sínum og lífgef-
andi nærveru.
Með kærleiks- og friðarkveðju.
– Lifi lífið!
Jákvæð vakning um umhverfis- og loftslagsmál
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
»Markvissar aðgerðir
í þessum efnum hafa
alla burði til að sameina
okkur sem þjóð fremur
en sundra.
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Það var frétt fyrir
skömmu á forsíðu
Morgunblaðsins sem
bar sömu fyrirsögn og
greinarkorn þetta. Ætli
við séum stolt af því að
fljúga með sjúklinga og
fylgdarlið langar leiðir
til annarra landa og
auka þar með stórlega á
útblástur koltvísýrings
í andrúmslofti okkar?
Við sem þykjumst þó vera að berjast
á móti af heilagri vandlætingu á hin-
um og þessum vígstöðvum og þá jafnt
smáir og stórir og þó af líklega mest-
um heilindum unga fólkið okkar sem
lætur engan bilbug á sér finna.
Það hefur tíðkast í nokkuð mörg ár
að íslenskir læknar hafa ekki þótt
gjaldgengir ef þeir hafa vogað sér að
ætla að vinna við lækningar á eigin
læknastofum. Nei, takk, þá flytjum
við sjúklingana frekar eitthvað úr
landi en að þessir menn vogi sér að
þykjast geta gert eitthvað sjálfir á
sínum einkareknu læknastofum ein-
hvers staðar úti í bæ.
Frekar eru sjúklingar
látnir bíða sárþjáðir, nú
eða kannski haldið niðri
með einhverjum sterk-
um og rándýrum verkja-
lyfjum ef ske kynni að
þeir kæmust í aðgerð
einhvers staðar erlendis
með sín mein og íslensk-
ur almenningur látinn
borga, þ.e. íslenska rík-
ið. Og að því ógleymdu
að við sem þykjumst
vera í fararbroddi með
mengunarvarnir eða
þykjumst ekki vilja menga andrúms-
loftið erum sæl á svip með að fljúga
landa á milli með sjúklinga okkar og
tilheyrandi aðstoðarfólk.
Sem betur fer eigum við mikið af
ungu fólki sem virðist gera sér grein
fyrir því hvert við stefnum í meng-
unarmálum okkar og leggur á sig
mikla vinnu og tíma til að mótmæla
slíku framferði.
Ráðamönnum okkar virðist nú ekki
koma það við, nei, það er sko skárri
kostur að menga svolítið meira en að
leyfa einkarekstur á heilbrigðissviði.
En ég undirritaður spyr: hvað er það
sem ráðamenn okkar eru hræddir við?
Væri ekki ódýrara fyrir okkur að
styðja frekar við þá menn sem vilja
vinna hér heima? Varla fara menn út í
að opna læknastofu nema hafa til-
skilin próf og réttindi? Jú, það væri
sjálfsagt, eðlilegt og ábyrgt að opin-
berir aðilar hefðu eftirlit með þessum
læknastöðvum eins og lög og reglur
gera ráð fyrir.
Því í ósköpunum að vera að gera
þetta bæði flóknara og erfiðara en
þörf er á, eða er þörf á þessu eins og
það er?
Það virðist ekki vera spurning hjá
ráðamönnum okkar, bara fljúga
óspart milli landa með stórauknum
útblæstri eitraðra lofttegunda og
mun meiri kostnaði fyrir heilbrigðis-
kerfi okkar sem þó þarf að halda vel á
sínum málum. Svari þeir sem best
vita !
Margir fara utan til lækninga
Eftir Hjálmar
Magnússon » Væri ekki ódýrara
fyrir okkur að styðja
frekar við þá menn sem
vilja vinna hér heima?
Hjálmar Magnússon
Höfundur er fyrrverandi
framkvæmdastjóri.