Morgunblaðið - 22.07.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.07.2019, Qupperneq 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019 Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is STIMPILPRESSUR Loftpressur af öllum stærðum og gerðum Mikið úrval af aukahlutum 60 ára Anna Sigríður ólst í Reykjavík, en býr í Mosfellsbæ. Hún er bókasafnsfræðingur og stjórnsýslufræðingur að mennt og er verk- efnastjóri á heilbrigðis- vísindabókasafni Land- spítalans og HÍ. Hún er bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ. Maki: Gylfi Dýrmundsson, f. 1956, rann- sóknarlögreglumaður. Börn: Guðni Kári, f. 1976, Ásdís Birna og Kristrún Halla, f. 1993, og Gunnar Logi, f. 1996. Barnabörnin eru Eyþór Ari Gíslason og Brimar Róbert Gunnarsson. Foreldrar: Guðni Guðmundsson, f. 1925, d. 2004, rektor við MR, og Katrín Ólafsdóttir, f. 1927, d. 1994, húsmóðir í Reykjavík. Anna Sigríður Guðnadóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Óvænt uppákoma verður þess valdandi að gamlar minningar koma upp á yfirborðið. Vertu sá/sú sem rífur upp stemninguna. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú átt auðvelt með að laða fram það besta í öðrum sem og að miðla málum þegar menn eru ekki á eitt sátt- ir. Hvað er það sem gleður þig? 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ástin lýtur ekki neinum lög- málum. Svartsýni þín er of mikil, hlut- irnir eru ekki svona dapurlegir. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Svo lengi sem þú ert á réttri leið er allt í þessu fína. Þú setur ein- hverjum stólinn fyrir dyrnar og hefðir átt að gera það fyrir löngu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú mátt ekki láta hrokann ná tök- um á þér í samskiptum við aðra. Sýndu vinum þínum áhuga og vertu góður hlustandi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Dagurinn hentar vel til að safna upplýsingum sem geta nýst þér í vinnunni. Veikindi einhvers taka sinn toll. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú þarft að finna athafnasemi þinni farveg. Lífið er stundum ósanngjarnt. Sýndu að þú kunnir að meta framlag annarra. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ekki hætta við þótt verkið virðist þér ofvaxið. Búðu þig undir smá mótlæti sem mun standa stutt yfir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Eftir rólega siglingu á lygn- um sjó dregur allt í einu til tíðinda hjá þér. Þér tekst að ná endum saman. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að fá að vera í ein- rúmi og vernda þig frá umhverfinu. Segðu nei ef þú ert beðin/n um eitt- hvað sem þú vilt eða nennir ekki. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Líkur sækir líkan heim. Þú talar fyrir daufum eyrum heima þegar þrif ber á góma. Deildu verkefnum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Notaðu tímann til þess að rétta vinum hjálparhönd. Njóttu þess að vinna að listsköpun og að leika við börnin. forseti nefndarinnar um sex ára skeið. Baldur ferðaðist sem slíkur til 14 Evrópulanda og vann að skýrslum um ástand mála m.t.t. löggjafar og almennra viðhorfa stjórnvalda og al- mennings. Á síðari tímum kannaði nefndin einnig stöðu LGTB fólks. Hann vann að skýrslugerð fyrir önn- ur alþjóðasamtök og var formaður einnar nefndar hér heima í fé- lagsráðherratíð Árna Magnússonar sem skilaði framförum í löggjöf fyrir aðflutta. Í seinni tíð hefur Baldur verið ritari stjórnar Heilaheilla og gert eitthvað af því að sækja ráð- stefnur á þeirra vegum. „Eins og sjá má hef ég haft gaman af félagsmálum og verið nokkuð mannblendinn. Fyrir utan prest- skapinn hefur mest orka farið í störf á vegum ECRÍ.“ Baldur er liðtækur bridsspilari og hefur oft átt hesta án þess að telja sig hestamann. „Nú um leið og ég verð pastor em- eritus er ég fluttur austur á Svínafell í Öræfum þar sem fjölskyldan á ágætt hús og stunda þar þjónustu við ferðamenn. Ég leigi ferðamönnum íbúð og skipti á rúmum, skúra og moppa og geri við klósett og spjalla við þá svo eitthvað sé nefnt.“ Málstol eftir heilablæðingu Árið 2013 fékk Baldur heilablæð- 1979, var í stjórn Þroskahjálpar 1982-1984, í framkvæmdanefnd um málefni fatlaðra 1982-1984, í stjórn Prestafélags Íslands 1990-1996, í skólanefnd á Höfn 1994-1995, for- maður stjórnar Heilsugæslunnar í Þorlákshöfn 1999-2003. Hann sat í bæjarstjórn sveitarfélagsins Ölfuss 2002-2006, í þjóðmálanefnd þjóð- kirkjunnar 1994-2000 og aftur 2009- 2012. Var óbreyttur félagi í ,,Feitir í formi“ í Þorlákshöfn, forseti Kiw- anisklúbbsins Ölvers í eitt ár. Hann va kjörinn til setu á kirkjuþingi 2009 til 2014, fulltrúi íslensku þjóðkirkj- unnar í samráðshópi 12 kirkna í jafn- mörgum löndum um þróun Porvoo- sáttmálans 1997-2000. Hann var til- nefndur af íslenskum stjórnvöldum í nefnd Evrópuráðsins European Commission against Racism and Intolerance 1997-2017 og var vara- B aldur Benedikt Ermen- rekur Kristjánsson fæddist 22. júlí 1949 í Reykjavík. „Ég bætti við nöfnum afa minna í nafn mitt fyrir nokkrum árum, eink- um til að halda við Ermenreksnafn- inu.“ Hann ólst upp í Hlíðunum, var í sveit á sumrin vestur í Saurbæ á Stóra-Múla og Litla-Múla og tvö sumur norður í Hrútafirði hjá Eiríki og Sigríði á Bálkastöðum. Baldur varð stúdent frá Mennta- skólanum á Laugarvatni 1970, lauk BA í almennri þjóðfélagsfræði frá HÍ 1975, cand.theol. frá HÍ 1984, hóf framhaldsnám í guðfræði og siðfræði við Harvard University 1989 og lauk Th. M. (Theologiae Magistri) þaðan 1991. Hann tók leiðsögumannspróf frá Endurmenntun HÍ 2006. Starfsferillinn Baldur var nokkur sumur í síma- vinnuflokki Kjartans Sveinssonar, einkum á Vesturlandi, og var í vega- lögreglunni tvö sumur. Hann vann hjá Þróunarstofnun Reykjavíkur 1983-1985, í landbúnaðarráðuneyt- inu 1975-1976, var félagsmála- og blaðafulltrúi BSRB 1976-1980 og vann jafnframt við dagskrárgerð hjá Ríkisútvarpinu og blaðamaður og dálkahöfundur hjá Tímanum og síð- ar NT 1982-1985. Baldur var vígður sem prestur 11. júní 1984. Hann var prestur Óháða safnaðarins 1984- 1985, sóknarprestur í Bjarnarnes- prestakalli með aðsetur á Höfn 1985- 1995, biskupsritari 1995-1997 og sóknarprestur í Þorláksprestakalli 1998-2019. Önnur störf: Baldur var garðprófastur á Gamla garði 1973- 1975, stundakennari við Heppuskóla 1985-1987 og síðar við Grunnskólann í Þorlákshöfn, stundakennari við guðfræðideild HÍ 1994-1995, ritstjóri Eystra-Horns á Höfn 1985-1988 og blaðamaður á Sunnlenska frétta- blaðinu 1999-2003. Afmælisbarnið sat í stjórn Æsku- lýðssambands Íslands 1972-1974, var fulltrúi stúdenta í háskólaráði 1973- 1975 og sat í stúdentaráði sama tíma. Hann var í stjórn knattspyrnu- deildar Fram 1981-1982, formaður Bridgefélags Reykjavíkur 1978- ingu, þ.e. blóðflæði til heilans stöðv- aðist um stund. „Ég slapp að mestu við langtímaskaða nema ég varð mál- stirðari en áður og fauk þar leiðsögu- mannsdraumurinn út um gluggann. Ég hélt þó mínu striki í prestskap og kann fólki í Þorlákshöfn bestu þakk- ir fyrir stuðning og þolinmæði en fyrst í stað vissi það varla hvað prestur var að tala um eða lesa svo rammt kvað að málstolinu sem hefur mikið lagast í tímans rás þökk sé gegndarlausum æfingum og söng- tímum svo ekki sé talað um fyr- irbænum. Eitt það er ég setti mér var að mæta aldrei öðruvísi á fund en að taka til máls. Var það ærið skraut- legt í fyrstu en hefur lagast merki- lega mikið. Þá fór ég að lesa upphátt skipulega fyrir gamalt fólk og ungt. Málstol af völdum heilablæðinga og heilaáfalla hvers konar er mjög falinn sjúkdómur í heiminum. Flestir bara þagna og málið er dautt. Það þarf að hvetja fólk til dáða og gera því auðvelt um vik að sækja endur- hæfingu. Ég var svo heppinn að kringumstæður mínar voru góðar og fólkið umhverfis hvetjandi. Heilinn lét að öðru leyti eins og ekkert hefði skeð. Kunnur spíritisti sagðist dauður í gegnum annan liggja í blómabrekku en sjá jörðina í fjarska. Nú er ég í lif- anda lífi kominn í blómabrekkuna. Allavega litblóm vaxa fyrir utan gluggann minn og þegar ég teygi út höndina fyllist hún af flugum. Sam- kvæmt þessari sýn verður ekki svo ýkja mikil breyting á þegar ég geispa golunni. Hvað ætla ég að gera á afmælis- daginn? Ég á von á því að einhverjir nágrannar í Svínafelli líti inn í vöfflu- kaffi ef dagsins önn leyfir þeim að líta upp. Annars ætla ég að bjóða af- komendum mínum og þeirra fylgi- fiskum í mat einhvern tímann í haust þegar vel stendur á.“ Fjölskylda Eiginkona Baldurs er Svafa Sig- urðardóttir, f. 22.1. 1966, dýralæknir. Foreldrar hennar voru hjónin Sig- urður Ingvarsson, eldsmiður í Reykjavík, f. 12.10. 1909, d. 7.4. 2001, og Guðrún Bjarnadóttir húsfreyja, f. Baldur Kristjánsson sóknarprestur – 70 ára Með barnahópinn fríða F.v.: Helga, Svanlaug Halla, Rúnar, Baldur, Krist- ján og Bergþóra stödd á Hvanneyri við skírn Öglu barnabarns. Kominn í blómabrekkuna Með bridsfélögum Á góðri stund, sennilega eftir glæsilegan ósigur. 40 ára Guðrún Katrín fæddist í Reykjavík, en flutti til Ólafsvíkur níu mánaða og ólst þar upp. Hún er félags- fræðingur að mennt og er ráðgjafi hjá For- vörnum og Streitu- skólanum. Maki: Guðni Kári Gylfason, f. 1976, teymisþjálfi hjá Íslandsbanka. Börn: Anna Kolbrún Lárusdóttir, f. 1997, Andrea Rakel Bachmann, f. 2002, og Benedikt Elí Bachmann, f. 2006. Foreldrar: Jóhannes Ingi Ragnarsson, f. 1954, vinnur hjá Hafrannsóknastofnun í Ólafsvík, og Anna Margrét Valvesdóttir, f. 1955, starfsmaður á dvalarheimilinu Jaðri. Þau eru búsett í Ólafsvík. Guðrún Katrín Jóhannesdóttir Til hamingju með daginn Systurnar Jóhanna Laufey og Þórhild- ur Inga Hreiðarsdætur ásamt Láru Ingvarsdóttur stóðu fyrir tombólu á Vopnafirði nú á dögunum. Þær söfn- uðu rúmum 8.300 kr. og á meðfylgj- andi mynd má sjá þær afhenda af- raksturinn þeim Berglindi Sveinsdóttur, formanni Múla- sýsludeildar Rauða krossins, og Mál- fríði Björnsdóttur, gjaldkera deild- arinnar. Hlutavelta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.