Morgunblaðið - 22.07.2019, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 22.07.2019, Qupperneq 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019 Upplýsingar fást hjá SMH Gróðurhús ehf. í síma 866-9693 Einnig eru nánari upplýsingar á Facebook: Gróðurhús SMH ehf Þetta er flott í garðinn þinn! Höfum til sölu garðhús, skýli og heita potta - fljótlegt og auðveld uppsetning Uppblásinn heitur pottur Kr. 99.000 Fyrir 6 manns. Tekur aðeins 6 mínútur að blása upp. Hitar upp að 42 °C Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „JÁ, MAGNÚS, ÉG HEYRÐI AF STÖÐUHÆKKUNINNI.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá koss á fyrsta stefnumótinu. TILRAUNIN HEFUR MISHEPPNAST SKELFILEGA! ÉG HEF BREYST Í FLUGU … FLUGU Á STÆRÐ VIÐ MANN! ÞENNAN VÆRI ÉG TIL Í AÐ BORÐA! HRÓLFUR! VATNIÐ Í KÖNNUNNI VAR FYRIR ÞIG AÐ DREKKA Í STAÐ ÞESS AÐ BORÐA KÖKUNA! ÞÚ MUNT ALDREI LÉTTAST! EKKI SATT! KAKA ER LÉTTARI EN VATN! DEILDARSTJÓRI „Í HVERT SKIPTI SEM ÞÚ TÓKST ÁKVÖRÐUN VAR HÚN RÖNG. ÞÚ GETUR EKKI KENNT LEIÐSÖGUKERFINU UM.” 16.8. 1931, d. 15.11. 1989. Fyrri mak- ar Baldurs eru Jóhanna S. Sigþórs- dóttir, f. 10.8. 1949, blaðamaður, og Halldóra Gunnarsdóttir, f. 2.6. 1959, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg. Barnsmóðir er Jónína Guðrún Garðarsdóttir f. 1. okt 1949, kennari í Reykjavík. Börn Baldurs: Helga Jensína (ættleidd Svavarsdóttir), f. 31.10. 1973, skólastjóri í Borgarfirði. Maki: Hallgrímur Sveinn Sveinsson tölv- unarfæðingur. Börn: Guðrún Kar- ítas, Sveinn Svavar og Kristján Karl; 2) Kristján, f. 24.5. 1974, lögfræð- ingur og löggiltur fasteignasali. Maki: Hrafnhildur Soffía Hrafns- dóttir umhverfisskipulagsfræðingur. Barn þeirra: Agla, f. 29.8. 2017; 3) Mjöll, f. 7.1. 1979, d. 18.3. 1989; 4) Bergþóra, f. 2.2. 1990, hagfræð- ingur hjá Íslandsbanka. Maki Árni Gíslason sérfræðingur hjá dóms- málaráðuneytinu; 5) Rúnar, f. 8.4. 2002, nemi í FSS; 6) Svanlaug Halla, f. 30.5. 2004, grunn- skólanemi. Systkini Baldurs eru Ólöf, f. 4.11. 1951, lífeindafræðingur, Benedikt Sigurður, f. 6.1. 1955, bílstjóri og leiðsögumaður, og Ársæll, f. 5.10. 1958, læknir, öll búsett á höfuðborg- arsvæðinu. Foreldrar Baldurs voru hjónin Kristján Benediktsson, kennari og borgarfulltrúi, f. 12.1. 1923, d. 1.10. 2015, og Svanlaug Ermenreks- dóttir, kennari og húsmóðir, f. 5.9. 1925, d. 16.3. 2010. Þau bjuggu í Eikjuvogi 4 í Reykjavík. Baldur Benedikt Ermenrekur Kristjánsson Kristján Benjamínsson bóndi síðast á Stóra-Múla Hólmfríður Benjamínsdóttir húsfreyja og bóndi á Stóra-Múla, faðir Hólmfríðar var Benjamín Hansson Hjálmarsson bóndi á Litla-Múla. Móðir hans, Hólmfríður Einarsdóttir, lést við barnsburð áður en hún gat feðrað barnið sem álitinn var vera Bólu-Hjálmar Benedikt S. Kristjánsson bóndi á Stóra-Múla Gíslína Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja á Stóra-Múla í Saurbæ, Dal. Kristján Benediktsson kennari og borgarfulltrúi í Reykjavík, stjúpmóðir hans var Vigfúsína Kristrún Jóns- dóttir húsfreyja á Stóra-Múla Ólafur Magnússon bóndi á Þórustöðum Elísabet Einarsdóttir húsfreyja á Þórustöðum í Bitru Samúel Jónsson smiður í Reykjavík Guðjón Samúelsson húsameistari ríkisins Benedikt Benediktsson söngvari og kennari Emerentíana Ólafsdóttir vinnukona á Hunkubökkum Jón Pálsson bóndi á Hunkubökkum á Síðu Ermenrekur Jónsson byggingameistari í Unuhúsi Ingunn Einarsdóttir húsmóðir í Rvík, búsett lengst í Unuhúsi Kristín María Þórðardóttir húsfreyja, lengst í Borgarholti Einar Gíslason bóndi og formaður í Borgarholti í Stokks- eyrarhreppi, drukknaði á Stokkseyrarsundi Úr frændgarði Baldurs Kristjánssonar Svanlaug Ermenreksdóttir kennari í Reykjavík Á fimmtudag skrifaði ÓlafurStefánsson á Leir: „Nú er hlýtt, óstöðugt loft yfir landinu ; það heyrast stöku þrumur og leift- ur sjást í skýi. Hiti fór í ein 20 stig í Reykjavík, af öllum stöðum, þar sem köld hafgola ríkir flesta daga sem Guð gefur, enda nes þessi val- in til búsetu af goðum heiðnum í árdaga landnáms. Skyldi heimurinn nokkuð vera að farast, þótt Parísarsam- komulagið geri ráð fyrir því? Það má ekki hræða líftóruna úr lýðn- um og allra síst börnunum sem eru að alast upp. Austantórur yfir fjöllin, eiga leið um sinn. Þrumuherja heyrast sköllin, hlær þá djöfullinn. Skúrahryðja hrökk af steini, heppni stýrði þar. Engum varð hún manni’ að meini, en mörgum brugðið var. Náttúran er dyntótt dísa, dapurt mitt spádómspot: hvort eigi nótt sér Veröld vísa, eða verði Heimsins þrot ? Á þriðjudaginn sagðist Pétur Stefánsson hafa lent í rosa rign- ingu í göngutúrnum áðan. Datt þetta í hug: Nú er úti rosa regn, reynist margur stúrinn. Alveg blautur er í gegn eftir göngutúrinn. Og á fimmtudaginn orti Pétur, – nema hvað!: Að geti allur skollinn skeð, skeður öðru hverju. Virðist ennþá vesen með Vestmannaeyjaferju. Ingólfur Ómar var á kvöld- göngu í góða veðrinu og enn og aftur dáðist hann að sólarlaginu og himinninn skartaði sínu feg- ursta. Sígur rjóð í sævardjúp sól á hljóðu kveldi. Skýjaslóð með skærum hjúp skartar glóðareldi. „Vonbrigði“ hugsaði Helgi R. Einarsson og orti: Það gerðist bara’ allt í einu að ungfrúin var ekki’ í neinu, en þetta var draumur og því varð ég aumur. Það er sko alveg á hreinu. Ingólfur Ómar Ármannsson velt- ir fyrir sér eilífðarmálunum: Margir hafa gaddinn gist gengið yst til nafar, biðja þess að betri vist bíði handan grafar. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Austantórur og blautur í gegn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.