Morgunblaðið - 22.07.2019, Side 25

Morgunblaðið - 22.07.2019, Side 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019 Bezt á fiskinn er gæðakrydd sem hentar vel með öllu fiskmeti. Kryddið inniheldur meðal annars steinselju, sítrónupipar, papriku, salt og hvítlauk. Kryddblandan er án allra aukaefna. BEZTÁFISKINN Inkasso-deild karla Haukar – Fjölnir...................................... 1:5 Arnar Aðalgeirsson 11. – Guðmundur Karl Guðmundsson 3., Arnór Breki Ásþórsson 8., Ingibergur Kort Sigurðsson 13., 51., sjálfsmark 65. Njarðvík – Þróttur R............................... 2:3 Ivan Prskalo 32., 77. – Rafael Victor 18., 63., Sindri Scheving 59. Grótta – Víkingur Ó ................................ 2:2 Axel Freyr Harðarson 47., Óliver Dagur Thorlacius 90. (víti) – Emmanuel Eli Keke 51., Harley Willard 71. (víti) Magni – Leiknir R.................................... 0:3 Daníel Finns Matthíasson 30., Vuk Oskar Dimitrijevic 73., sjálfsmark 78. Afturelding – Þór .................................... 1:2 Andri Freyr Jónasson 71. – Bjarki Þór Við- arsson 43., Dino Gavric 90. Fram – Keflavík....................................... 1:2 Tiago Fernandes 58. – Gunnólfur Björgvin Guðlaugsson 45., 67. Staðan: Fjölnir 13 9 2 2 29:12 29 Þór 13 8 2 3 23:13 26 Grótta 13 7 4 2 27:18 25 Víkingur Ó. 13 6 3 4 15:11 21 Leiknir R. 13 7 0 6 23:21 21 Fram 13 6 2 5 19:20 20 Keflavík 13 5 4 4 18:16 19 Þróttur R. 13 5 2 6 27:19 17 Haukar 13 2 5 6 17:25 11 Njarðvík 13 3 1 9 15:25 10 Afturelding 13 3 1 9 16:29 10 Magni 13 2 4 7 14:34 10 2. deild karla Víðir – Leiknir F...................................... 2:0 Atli Freyr Ottesen 60., Ari Steinn Guð- mundsson 71. Vestri – Völsungur .................................. 1:0 Zoran Plazonic 63.(víti) ÍR – Tindastóll ......................................... 2:0 Gylfi Steinn Guðmundsson 27., Gunnar Óli Björgvinsson 45. Fjarðabyggð – Selfoss ............................ 1:3 Guðjón Máni Magnússon 90. – Hrvoje To- kic 29., Þór Llorens Þórðarson 52., Adam Örn Sveinbjörnsson 66. Staðan: Selfoss 12 7 2 3 29:13 23 Leiknir F. 12 6 4 2 22:13 22 Vestri 12 7 0 5 15:17 21 Víðir 12 6 1 5 19:15 19 Þróttur V. 12 5 4 3 18:17 19 ÍR 12 5 3 4 18:15 18 Dalvík/Reynir 12 4 6 2 16:14 18 Fjarðabyggð 12 5 2 5 19:17 17 Völsungur 12 5 2 5 13:16 17 KFG 12 4 0 8 20:27 12 Kári 12 3 2 7 23:29 11 Tindastóll 12 1 2 9 10:29 5 Mjólkurbikar kvenna KR – Þór/KA............................................ 2:0 Ásdís Karen Halldórsdóttir 58., Betsy Has- sett 84. Vináttuleikur U18 karla Lettland – Ísland...................................... 0:2 Orri Hrafn Kjartansson 9., Eyþór Aron Wöhler 89. KNATTSPYRNA Í VESTURBÆ Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is KR leikur til úrslita um Mjólkur- bikar kvenna í fótbolta eftir 2:0- sigur á Þór/KA á heimavelli á laug- ardaginn var. Ásdís Karen Halldórs- dóttir og Betsy Hassett skoruðu mörk KR-inga. KR, sem lengi var í fremstu röð í kvennaknattspyrnu hér á landi, er á leiðinni í úrslitaleik- inn í fyrsta skipti síðan 2011. Fær KR þá tækifæri til að vinna fyrsta stóra titilinn í kvennaflokki síðan 2008. Síðustu ár hafa verið döpur í Vest- urbænum og féll liðið m.a niður í 1. deild árið 2012 er liðið vann aðeins einn deildarleik allt sumarið. KR var í tvö ár í næstefstu deild og hefur gengið illa að ná fyrri styrk. Liðið hefur ekki endað ofar en í sjöunda sæti síðan það fór upp á ný. Það er því kærkomið fyrir alla í Vestur- bænum að kvennalið félagsins sé aft- ur komið almennilega af stað og fái gott tækifæri til að ná í ellefta stóra titilinn. Sigurinn á andlausu Þór/KA-liði var verðskuldaður og sá þriðji í röð í öllum keppnum. Eftir erfitt gengi er liðið búið að vinna alla leiki sína eftir að Bojana Besic lét af störfum og er allt annað að sjá til KR. Það er meiri leikgleði, fótboltinn betri og leik- menn sem áttu mikið inni eru að spila betur. Leikmannahópur KR er sterkur og er fáránlegt að liðið hafi verið á botni efstu deildar, með að- eins einn sigur, fyrir ekki meira en tveimur vikum. Það er hins vegar lítið að gerast hjá Þór/KA. Norðankonur hafa að- eins unnið tvo af síðustu sex leikjum, sem er langt undir væntingum. Breiðablik og Valur eru stungin af í deildinni og var bikarkeppnin gott tækifæri til að bjarga tímabili sem átti á hættu að renna út í sandinn. Eftir að Fylkir sló Breiðablik úr leik og Þór/KA vann Val í bikarnum, var liðið frá Akureyri í kjörstöðu til að vinna sinn fyrsta bikarmeistaratitil. Þór/KA skapaði sér hinsvegar varla mjög gott færi allan leikinn. KR mætir Selfossi í bikarúrslitaleik, sem fáir reiknuðu með fyrir leiktíð- ina. Selfoss hefur unnið fimm leiki í röð án þess að fá á sig mark, en KR- liðið vex með hverjum leiknum. Hólmfríður Magnúsdóttir er besti leikmaður Selfoss. Hún spilaði með Val gegn KR síðast þegar KR fór í úrslit. Valur hafði betur, 2:0. Hún varð svo bikarmeistari árin 2002, 2007 og 2008 með KR. Kærkominn úrslitaleikur eftir erfið ár  KR og Selfoss í bikarúrslitum Morgunblaðið/Árni Sæberg Mark Ásdís Karen Halldórsdóttir fagnar eftir að hafa skorað fyrra mark KR gegn Þór/KA í undanúrslitaleiknum á laugardaginn. Arnór Sigurðsson minnti á sig með glæsilegu marki þegar CSKA Moskva sigraði Orenburg, 2:1, í 2. umferð rússnesku úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu í fyrrakvöld. Arnór skoraði seinna mark CSKA þegar hann tók boltann viðstöðulaust á lofti hægra megin í vítateignum og þrumaði hon- um upp undir þverslána á marki gest- anna. CSKA er þá með þrjú stig eftir tvo fyrstu leikina. Viðar Örn Kjart- ansson kom til Rubin Kazan á laug- ardag í láni frá Rostov og fór beint í byrjunarliðið en Rubin vann Dinamo Moskva 1:0 á útivelli í gær. Glæsilegt mark hjá Arnóri AFP CSKA Arnór Sigurðsson er strax kominn á blað á tímabilinu. Glódís Perla Viggósdóttir, lands- liðskona í knattspyrnu, skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu í Svíþjóð í gær en hún gerði þá fyrsta mark Rosengård í stórsigri á Växjö, 5:0. Svava Rós Guðmundsdóttir var líka á skotskónum og skoraði líka í 5:0 sigri en Kristianstad vann Kungsbacka með sömu markatölu á útivelli á laugardaginn. Íslend- ingaliðin eru bæði í toppbaráttunni en Gautaborg er með 18 stig, Ro- sengård 17, Örebro 16 og Kristians- tad 14 stig í fjórum efstu sætunum. vs@mbl.is Glódís og Svava skoruðu báðar Morgunblaðið/Eggert Svíþjóð Glódís Perla Viggósdóttir er í toppbaráttu að vanda. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þórsarar frá Akureyri komust í annað sæti 1. deildar karla í fót- bolta á laugardaginn þegar þeir unnu dramatískan útisigur gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ. Mikið hefur verið um afgerandi mörk á síðustu mínútum í deildinni að und- anförnu og á Varmárvelli var það króatíski miðvörðurinn Dino Gavr- ic sem skoraði sigurmark Þórs, 2:1, á fyrstu mínútu í uppbótartíma. Þór er þremur stigum á eftir toppliði Fjölnis sem hélt sinni sig- urgöngu áfram með stórsigri á Haukum í Hafnarfirði, 5:1. Staðan var 3:1 eftir 13 mínútna leik og Ingiberg Kort Sigurðsson gerði tvö marka Fjölnis. Engu munaði að nýliðar Gróttu töpuðu í fyrsta skipti í níu leikjum. Óliver Dagur Thorlacius jafnaði fyrir þá, 2:2, úr vítaspyrnu á fimmtu mínútu í uppbótartíma gegn Víkingi frá Ólafsvík á Sel- tjarnarnesi. Grótta náði stiginu en missti Þór uppfyrir sig. Ólafsvík- ingar misstu hinsvegar af góðu tækifæri til að komast nær Gróttu í toppbaráttunni. Framarar drógust aftur úr efstu liðum í gærkvöld þegar þeir töpuðu öðrum leik sínum í röð. Keflvík- ingar unnu 2:1 sigur í Safamýri þar sem Gunnólfur Björgvin Guð- laugsson gerði bæði mörk þeirra. Fjögur neðstu liðin töpuðu öll á heimavelli, auk Hauka og Aftureld- ingar biðu Njarðvík og Magni lægri hlut fyrir Reykjavíkurliðunum Þrótti og Leikni. Eitt stig skilur þessi fjögur neðstu lið að. Þórsarar komust uppfyrir Gróttu Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjölnir Guðmundur Karl Guð- mundsson og félagar eru efstir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.