Morgunblaðið - 22.07.2019, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 22.07.2019, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019 295 Vinnuvettlingar PU-Flex Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk Greinaklippur frá 595 695 Strákú á tann verði Öflug stungu- skófla Garðverkfæri í miklu úrvali frá 995 Garðslöngur í miklu úrvali Fötur í miklu úrvali 3.995 Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar hj með 100 kg burðargetu 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295 Laufhrífur frá 999 Laufsugur 7.495 Úðabrúsar í mörgum stærðum frá 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Pepsi Max-deild karla Fylkir – ÍBV.............................................. 3:0 KA – ÍA ..................................................... 1:1 Víkingur R. – Valur .................................. 2:2 KR – Stjarnan........................................... 2:2 Staðan: KR 13 9 3 1 25:13 30 Breiðablik 12 7 1 4 23:15 22 ÍA 13 6 4 3 19:14 22 Stjarnan 13 5 5 3 21:18 20 Fylkir 13 5 4 4 22:21 19 FH 12 5 4 3 18:18 19 Valur 13 5 2 6 23:20 17 HK 12 4 2 6 15:16 14 Grindavík 12 2 7 3 8:10 13 Víkingur R. 13 2 7 4 18:21 13 KA 13 4 1 8 18:22 13 ÍBV 13 1 2 10 10:32 5 3. deild karla Höttur/Huginn – Kórdrengir.................. 1:2 Sindri – Reynir S...................................... 2:2 Einherji – Skallagrímur .......................... 2:0 KF – Álftanes ........................................... 3:2 Staðan: Kórdrengir 13 10 2 1 35:15 32 KF 13 9 2 2 31:14 29 Vængir Júpiters 13 9 1 3 26:16 28 KV 13 8 2 3 26:17 26 Reynir S. 13 5 5 3 23:22 20 Einherji 13 5 4 4 19:15 19 Álftanes 13 4 3 6 22:22 15 Sindri 13 4 3 6 28:31 15 Höttur/Huginn 13 2 5 6 17:22 11 Augnablik 13 2 4 7 16:25 10 KH 13 2 1 10 16:37 7 Skallagrímur 13 2 0 11 14:37 6 2. deild kvenna Hamrarnir – Álftanes .............................. 2:0 FHL – Grótta............................................ 2:2 Sindri – Grótta.......................................... 2:1 Staðan: Fjarð/Hött/Leikn. 9 5 1 3 28:10 16 Völsungur 6 5 1 0 12:6 16 Grótta 8 4 2 2 16:8 14 Sindri 8 4 0 4 13:19 12 Hamrarnir 8 3 1 4 9:10 10 Álftanes 8 3 0 5 18:16 9 Leiknir R. 7 0 1 6 2:29 1 Bandaríkin Utah Royals – Portland Thorns............. 2:2  Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn með Utah en Dagný Brynjarsdóttir hjá Portland var í fríi vegna eigin brúð- kaups. Noregur B-deild: KFUM Ósló – Aalesund........................... 2:4  Davíð Kristján Ólafsson skoraði eitt marka Aalesund og lagði annað upp. Hólm- bert, Daníel og Aron voru allir í liðinu. Sandefjord – Kongsvinger ..................... 1:0  Viðar Ari Jónsson kom inn á hjá Sand- efjord og lagði upp sigurmarkið. Start – HamKam...................................... 4:1  Kristján Flóki Finnbogason kom inn á og skoraði fjórða mark Start. Aron Sigurð- arson lék allan leikinn. KNATTSPYRNA 0:1 Baldur Sigurðsson 29. 1:1 Tobias Thomsen 57. (v) 2:1 Björgvin Stefánsson 80. 2:2 Hilmar Árni Halldórsson 90. I Gul spjöldArnþór Ingi Kristinsson, Kristinn Jónsson (KR), Rúnar Páll Sigmundsson, Þorri Geir Rúnarsson, Daníel Laxdal, Alex Þór Hauksson (Stjörnunni). Dómari: Pétur Guðmundsson, 9. Áhorfendur: 1.658. KR – STJARNAN 2:2 M Björgvin Stefánsson (KR) Kennie Chopart (KR) Kristinn Jónsson (KR) Tobias Thomsen (KR) Ægir Jarl Jónasson (KR) Baldur Sigurðsson (Stjörnunni) Daníel Laxdal (Stjörnunni) Haraldur Björnsson (Stjörnunni) Hilmar Árni Halldórs. (Stjörn.) Jóhann Laxdal (Stjörnunni. VESTURBÆR/ FOSSVOGUR/ AKUREYRI/ÁRBÆR Pétur Hreinsson Andri Yrkill Valsson Baldvin Kári Magnússon Jóhann Ingi Hafþórsson KR-ingar gengu svekktir af velli í gærkvöldi eftir 2:2 jafntefli við Stjörnuna í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu en það var Hilmar Árni Halldórsson sem jafnaði metin með skalla í uppbótartíma eftir langt inn- kast frá Jóhanni Laxdal. Varamað- urinn Björgvin Stefánsson, 25 ára, eftir undirbúning frá öðrum vara- manni, hinum 21 árs gamla Ægi Jarli Jónassyni, kom „gömlu“ liði KR-inga í 2:1 á 80. mínútu en frá þeim tíma og þar til Hilmar Árni skoraði voru KR- ingar líklegri til þess að bæta við þriðja markinu fremur en hitt. Átta leikja sigurganga KR í deild- inni var þar með á enda. KR er nú átta stigum á undan ÍA og Breiða- bliki en Blikar geta minnkað for- skotið niður í fimm stig í kvöld, takist þeim að sigra Grindvíkinga. Garðbæingar mættu nokkuð óvænt ferskari til leiks en KR í Vest- urbænum þrátt fyrir að hafa tekið töluvert meira á því en KR í Evrópu- einvígi sínu í síðustu viku. Fyrri hálf- leikur spilaðist nákvæmlega eins og Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, hafði óskað sér. KR- liðið var þá steingelt í sóknarleik sín- um og miðverðirnir Skúli og Arnór reyndu trekk í trekk hinar svoköll- uðu lykilsendingar sem Stjörnuliðið réð vel við. Það lá aftarlega og gaf Óskari Erni og félögum í sóknar- teymi KR lítið pláss að vinna með. Rúnar treysti á hinn reynslumikla Baldur Sigurðsson í gær, sem lék fyrir aftan Þorstein Má Ragnarsson. Baldur þakkaði þjálfara sínum traustið með nokkuð undarlegu marki, þar sem Beitir Ólafsson í marki KR og áhorfendur uppi í stúku, töldu að skalli hans hefði farið framhjá. Í samtali við Morgunblaðið eftir leik sagði Beitir að Baldur hefði verið rangstæður alveg fram að aukaspyrnu Hilmars Árna, og við það hafi skapast ringulreið sem erfitt er að lýsa. En á endanum söng boltinn í netinu. Boltann rúllaði töluvert betur hjá KR í síðari hálfleik, sem uppskar fljótt mark úr víti frá Tobiasi Thom- sen, og úr varð hin mesta skemmtun fyrir þá 1.700 áhorfendur sem lögðu leið sína í Vesturbæinn. Sótt var grimmt á báða bóga og fyrir utan þá sóknarþenkjandi miðju- og kant- menn sem voru inni á, voru fimm hreinræktaðir framherjar sem léku síðasta hálftímann í leiknum. Bæði lið ætluðu sér að sækja til sigurs en jafn- tefli var að lokum afar sanngjörn nið- urstaða. peturhreins@mbl.is Logi stríddi Valsmönnum á ný Valsmenn misstu niður tveggja marka forystu þegar liðið heimsótti Víking R. í Fossvoginn, en heima- menn voru í fallsæti fyrir leikinn. Þrátt fyrir að komast í 2:0 náðu Ís- landsmeistararnir ekki að halda út, Víkingar jöfnuðu í 2:2 og komust upp úr fallsæti í kjölfarið. Hinn 18 ára gamli Logi Tómasson myndi örugglega vilja spila við Val í hverri viku. Eftir að hafa skorað stór- brotið mark gegn þeim á Hlíðarenda í fyrstu umferðinni í vor, og samið lag um það í kjölfarið, hefur hann ekki skorað síðan og verið inn og út úr Víkingsliðinu. Í gær kom hann hins vegar af bekknum, skoraði drama- tískt jöfnunarmark á 88. mínútu og fagnaði eins og óður væri – enda ærin ástæða til. Ef Logi hefði ekki rekið smiðs- höggið þá hefði alveg verið sann- gjarnt að einhver annar hefði gert það, því jöfnunarmark Víkings lá svo sannarlega í loftinu. Þeir lentu undir eftir sofandahátt í vörninni en misstu hausinn aldrei niður á bringu heldur héldu alltaf áfram. Það er vel hjá liði í fallsæti gegn ríkjandi meisturum. Davíð Örn Atlason og Kári Árnason stóðu upp úr í Víkingsliðinu sem vantar meiri breidd fram á við. Það hefði þurft ferska fætur þar til þess að gera eitthvað úr sóknarþunganum í lokin og ekki alltaf hægt að treysta á að bakvörður taki af skarið þegar á reynir eins og í gærkvöld. Valsmenn virðast aldrei ætla að ná að reka af sér slyðruorðið sem hefur loðað við þá í allt sumar. Það að hafa Hilmar stöðvaði KR-inga  Jafnaði fyrir Stjörnuna, 2:2, í uppbótartíma í Vesturbænum Morgunblaðið/Árni Sæberg Árbær Ari Leifsson og Gary Martin í viðureign Fylkis og Eyjamanna. 300 Óskar Örn Hauksson, fyrirliði KR, varð í gærkvöld annar í sögunni, á eftir Birki Kristinssyni til að spila 300 leiki í efstu deild hér á landi og hér fylgjast leikmenn KR og Stjörnunnar með honum leika listir sínar. 0:1 Lasse Petry 8. 0:2 Sigurður Egill Lárusson 52. 1:2 Guðmundur A. Tryggvason 59. 2:2 Logi Tómasson 88. I Gul spjöldLasse Petry og Sigurður Egill Lárusson (Val). Dómari: Einar Ingi Jóhannsson, 7. Áhorfendur: 1.237. VÍKINGUR R. – VALUR 2:2 M Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi) Davíð Örn Atlason (Víkingi) Guðmundur Andri Tryggvas. (Vík.) Kári Árnason (Víkingi) Birkir Már Sævarsson (Val) Eiður Aron Sigurbjörnsson (Val) Einar Karl Ingvarsson (Val) Lasse Petry (Val)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.