Morgunblaðið - 22.07.2019, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Ford F-350 Platinum
Litur: Magma red, svartur að innan.
6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque.
FX4 off-road pakki, upphituð/loftkæld sæti,
heithúðaður pallur, fjarstart, trappa í hlera, airbag í
belti í aftursæti
VERÐ
11.390.000 m.vsk
2019 Ram Limited 3500
Nýtt útlit 2019! Litur: Perlurauður/ svartur að innan
(einnig til Granite Crystal). Nýr 6,7L Cummins Turbo
Diesel, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphitan-
leg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing
technology pakki.
VERÐ
11.790.000 m.vsk
2019 Ford F-350 Lariat 35”
Litur: Ruby red/ gray, svartur að innan.
6-manna bíll. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque.
35” dekk. Með FX4 off-road pakka, quad beam
headlights, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall,
fjarstart, Driver altert-pakki, Trailer tow camera
system og airbag í belti í aftursæti.
VERÐ
10.990.000 m.vsk
2019 F-350 Limited 35” breyttur
Litur: Perluhvítur, “cocoa” að innan. 6,7L Diesel, 450
Hö, 925 ft of torque. Breyttur með 35” dekk, 20”
felgur og brettakanta. Með FX4 off-road pakka, top-
pljós (ekki á mynd), upphituð/loftkæld sæti, heithúð-
aðan pall, fjarstart, auka bakkmyndavél fyrir camper
eða trailer, trappa í hlera og airbag í belti í aftursæti.
VERÐ
12.490.000 m.vsk
» Söngkonan Marína Ósk kom fram á Freyjujazzi í Listasafni Íslands í vik-unni ásamt Róberti Þórhallssyni rafbassaleikara og Mikael Mána Ás-
mundssyni rafgítarleikara. Fluttu þau lög af plötunni Athvarf sem væntanleg
er snemma í haust og inniheldur lagasmíðar Marínu Óskar.
Marína Ósk kynnti efni af væntanlegri plötu á Freyjujazzi í Listasafni Íslands
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Söngvaskáld Marína Ósk syngur við meðleik Róberts Þórhallssonar á rafbassa.
1998
HRAFNKELL BIRGISSON
Hér er áhugaverð og ögrandi samsetning kunnug-
legra hluta, kaffibolla og rauðvínsglass. Er bollinn
glas, eða er glasið bolli? Að minnsta kosti er þetta
„Hábolli“ hannaður af Hrafnkeli Birgissyni (1969)
árið 1998. Hér eru bollar af þýskum mörkuðum
komnir á fætur rauðvínsglasa sem eru sér fram-
leiddir í Tékklandi.
Hér er samtímis leikið með súrrealískt teboð Hatt-
arans úr sögunni um Lísu í Undralandi og áminn-
ingu um gildi hluta með tilliti til umhverfisverndar.
Hábollinn hefur farið víða um heim, jafnt á sýningar
sem og ratað í virtar safna- og hönnunarverslanir.
Íslensk hönnun – Hönnunarsafn Íslands
Bolli á hærri stalli en aðrir
Ljósmynd/Hönnunarsafn Íslands/ Elísabet V. Ingvarsdóttir skráði
Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varð-
veita þann þátt íslenskrar menningarsögu sem lýtur
að hönnun, einkum frá aldamótunum 1900 til sam-
tímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og er-
lenda muni, sem margir hafa mikla menningar-
sögulega þýðingu. Safnkosturinn fer sístækkandi,
enda hasla æ fleiri hönnuðir sér völl og koma fram
með vandaða gripi sem standast alþjóðlegan sam-
anburð og eru hvort tveggja nytjamunir og skraut-
munir.
Í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands setti safnið
upp sýninguna 100ár100hlutir á Instagram þar sem
100 færslur eru birtar á jafnmörgum dögum af hönn-
unargripum í eigu safnsins frá árunum 1918 til 2018.
Fyrstu stiklunni úr kvikmynda-
aðlögun söngleiksins Cats var væg-
ast sagt illa tekið jafnt af netverjum
sem gagnrýnendum þegar hún rat-
aði á netið undir lok síðustu viku.
Myndin, sem frumsýnd verður
vestanhafs í lok árs, byggist á
geysivinsælum söngleik Andrews
Lloyds Webbers sem hann samdi
við bók T.S. Eliots um ketti.
Leikstjórinn er Tom Hooper, sem
einnig leikstýrði Les Misérables,
The Danish Girl og The King’s
Speech sem skilaði honum Óskars-
verðlaunum. Í helstu hlutverkum
eru Idris Elba, Judi Dench, Ian
McKellen og Taylor Swift.
Í pistli sem Stuart Heritage skrif-
ar í The Guardian gerir hann alvar-
lega athugasemd við stærðar-
hlutföll kattanna í myndinni sem
virðast sífellt vera á reiki. Hann
spyr sig hvers vegna persónan sem
Judi Dench leikur klæðist loðfeldi
utan yfir eigin feld. Einnig spyr
hann hvers vegna kvenkyns kett-
irnir séu með brjóst. Guy Lodge,
gagnrýnandi hjá Variety og Obser-
ver, er furðu lostinn yfir sér-
kennilegheitum stiklunnar og lýsir
henni sem bæði „hrollvekjandi“ og
„ruglandi“ þar sem persónur mynd-
arinnar séu í senn kettir og mann-
eskjur, sem gangi illa upp.
Fyrstu stiklunni úr kvikmyndinni Cats vægast sagt illa tekið
Til borðs Stilla úr kvikmyndinni Cats.