Morgunblaðið - 22.07.2019, Page 32

Morgunblaðið - 22.07.2019, Page 32
Tónleikaröð Jónasar Sig sem hófst í Fjarðarborg á Borgarfirði eystri í gærkvöldi verður fram haldið í kvöld og næstu tvö kvöld kl. 21. Ein plata Jónasar er tekin fyrir á hverju kvöldi. Í kvöld hljómar Allt er eitt- hvað, á morgun er komið að Þar sem himin ber við haf og á mið- vikudagskvöld Milda hjartað. Allar nánari upplýsingar eru á midi.is. Tónleikaröð Jónasar Sig á Borgarfirði eystri MÁNUDAGUR 22. JÚLÍ 203. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Eftir mörg erfið ár er kvennalið KR á leiðinni í úrslitaleik bikarkeppn- innar í knattspyrnu. KR lagði Þór/ KA að velli í undanúrslitunum á laugardaginn og mætir Selfossi í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli 17. ágúst. Í liði Selfoss er Hólmfríður Magnúsdóttir sem varð þrisvar bikarmeistari með KR á árunum 2002 til 2008. »25 Komnar í bikarúrslit eftir mörg erfið ár ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Erna Sóley Gunnarsdóttir hreppti í gær bronsverðlaunin í kúluvarpi á Evrópumóti U20 ára í frjáls- íþróttum sem þá lauk í Borås í Sví- þjóð. Erna sýndi mikinn styrk við erfiðar aðstæður þegar hún náði sínu besta kasti í síðustu umferð- inni og náði með því bronsinu af franskri stúlku sem virtist með það í hendi sér. »24 Erna náði EM-bronsinu í síðasta kastinu Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Nú í júlí verða tíu ár liðin frá því Páll Bergþórsson, fyrrverandi veð- urstofustjóri, hóf að birta daglegar veðurspár á Facebook-síðu sinni. Hann hefur ekki látið deigan síga þrátt fyrir að hafa verið á ferðalagi undanfarnar vikur um Norður- og Austurland ásamt Bergþóri Páls- syni, syni sínum, og Alberti Eiríks- syni tengdasyni. Samferðamenn- irnir segja Pál skemmtilegan ferðafélaga, hann sé á köflum eins og „talandi alfræðiorðabók“. Slík sé kunnáttan og áhuginn á landslagi. Ekki síst jöklunum. Páll, sem verður 96 ára síðar í sumar, hefur nýtt sér tæknina og skrifað inn veðurspárnar á nýjum slóðum. Til vitnis um það hafa birst myndir af Páli við skriftir á Face- book-síðunni, meðal annars í Sjó- lyst, elsta húsinu á Fáskrúðsfirði sem Carl Tulinius, kaupmaður og franskur ræðismaður, reisti árið 1884. „Ég hef gert þetta daglega í tíu ár en þetta er nú bara fyrir mig. Einhverjir kunna reyndar við að sjá þetta og það eru yfirleitt um 50- 60 manns sem virðast fylgjast með þessu,“ segir Páll. „Það vantar mik- ið upp á að þetta sé eins og í sjón- varpi eða útvarpi, en það er þó ým- islegt sem ég tíni til sem er ekki alltaf þar,“ segir hann. Klukkutími á hverjum degi Meðal þess sem Páll hefur fjallað um á Facebook er staða eldri borg- ara. Hann telur mikilvægt að fólk hafi að einhverjum skyldustörfum að ganga. „Það er alveg hræðilegt að hafa ekkert hlutverk og það er eiginlega það allra versta við allan þennan öldungaskara að það situr hver í sínu horni og er einskis verð- ur. Það munar rosalega um það að gefa fólki einhvern tilgang, segir Páll sem sest við tölvuna á hverjum morgni og spáir í veður. „Á ferða- laginu sest ég við tölvuna þegar ég vakna á morgnana og sit í klukku- tíma. Síðan höfum við daginn til að ferðast og skoða,“ segir hann. „Það er mér afskaplega mikil nauðsyn að hafa eitthvert skyldu- starf. Ég held að allt gamalt fólk ætti að hafa einhverjar skyldur þó að það væri ekki nema í hálftíma á dag. Það væri allt annað líf,“ segir Páll. Ferðalagið lá um Norðurland og þaðan austur um Þingeyjarsýslur og yfir í Vopnafjörð. Þaðan var haldið til Fáskrúðsfjarðar. Þar var boðið í skírnarveislu hjá skyldfólki þar sem þrjú börn voru skírð. Hér til hliðar má sjá ljóð sem Páll samdi og var lesið upp í skírnar- veislunni. Ljósmynd/Bergþór Pálsson Bustarfell Einn þeirra fjölmörgu staða sem Páll heimsótti á ferðalagi sínu nýverið er Bustarfell í Vopnafirði. Skyldustörfin mikilvæg  Páll Bergþórsson hefur gefið út veðurspá á vefnum í tíu ár Ljóð Páll orti þetta ljóð í tilefni þre- faldrar skírnar 15. júlí síðastliðinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.