Morgunblaðið - 16.07.2019, Síða 2
Þar sem ökumenn vöru-
flutningabíla þurfa að sitja
klukkustundum saman við
stýrið getur það reynst
þeim erfitt að halda líkam-
anum í góðri þjálfun.
Vörubílaframleiðandinn
Iveco álítur þetta vandamál
sem verði að leysa og býð-
ur upp á lausn sem bílsmið-
urinn kallar „Klefi í formi“.
Á utanverðum bílnum
með þjálfunarbúnaðinum
eru sérstakir krókar og
festingar fyrir hin ýmsu
tæki og inni í stjórnklef-
anum er að finna sérlegan
búnað til alls konar æfinga,
aðallega með köðlum og
lyftingatækjum. Segir
Iveco að samspil þessara
tækja bjóði upp á ræktun
og þjálfun alls líkamans.
agas@mbl.is
Ökumenn Iveco í fantaformi
Margs konar æfingar
getur bílstjóri Iveco með
klefa í formi stundað
milli aksturslota.
2 | MORGUNBLAÐIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
V
íða á Íslandi má finna
dæmi um óviðunandi veg-
merkingar. Virðist það
eiga bæði við um skilti og
yfirborðsmerkingar að merking-
arnar vanti, þær ónákvæmar eða
orðnar óskýrar. Þá virðist stundum
eins og sé hreinlega ekki vandað
nægilega vel til verka eða veg-
merkingar látnar mæta afgangi, og
t.d. skemmst að minnast Sæbraut-
ar sem í sumar hefur verið án yfir-
borðsmerkinga í nokkrar vikur eft-
ir malbikunarframkvæmdir; eða
gatnamóta Frakkastígs og Lauga-
vegs eftir nýlega breytingu á akst-
ursstefnu, þar sem gleymdist að
fjarlægja merki sem banna inn-
akstur, svo að þegar ekið er að
gatnamótunum virðast ökumenn
hvorki mega beygja til hægri né
vinstri á Laugavegi
Ólafur Guðmundsson umferðar-
öryggissérfræðingur áætlar að á
liðlega helmingi gatnamóta á Ís-
landi sé merkingum ábótavant og
skilti t.d. þannig staðsett að þau
sjást illa þegar að gatnamótunum
er komið, eða þá að skiltin byrgja
ökumönnum sýn á umferð. Hann
bendir líka á að Reykjavíkurborg
hafi markað sér þá stefnu að mála
ekki sebrabrautir þar sem gang-
andi vegfarendur mega þvera
götur: „Þessi stefna á sér langa
sögu og kom til af því að gerðar
voru sebrabrautir yfir fjölfarnar
götur með háan hámarkshraða og
tvær akreinar í báðar áttir. Þar
henta sebrabrautir illa og veittu
þessar gangbrautir gangandi veg-
farendum falskt öryggi svo að slys
hlutust af. Voru þessir slysastaðir
lagfærðir með því að setja upp
gönguljós, brýr eða göng fyrir
gangandi vegfarendur, en um leið
var hætt að mála sebrabrautir þar
sem þær eiga vel við, s.s. á 1+1
vegum með hámarkshraða 50 km
eða undir.“
Þetta þýðir að víða er óvissa um
hvar gangandi hafa forgang, og
hætt við að fótgangandi eða hjól-
andi verði fyrir bíl eftir að hafa
þverað götuna á stað þar sem hann
taldi að ökutækjum væri skylt að
stöðva til að hleypa honum yfir.
Bendir Ólafur t.d. á að margir haldi
ranglega að hraðahindranir séu
gangbrautir, en svo sé ekki, og víða
megi finna gönguþveranir þar sem
auðvelt væri að halda að gangandi
vegfarendur eigi að vera í forgangi
þó að þeir séu það ekki.
Erlendir ferðamenn
vita ekki hvað má
Björn Kristjánsson, sérfræð-
ingur hjá FÍB, tekur undir að það
sé óviðunandi að víða skuli vera
óvissa um hvort bílar þurfi, eða
þurfi ekki að stansa fyrir gangandi
vegfarendum. „Ástandið er breyti-
legt á milli bæjarfélaga og sum
þeirra eru dugleg að mála sebra-
brautir, en Reykjavíkurborg kýs að
nota í staðinn gönguþveranir þar
sem gangandi hafa ekki forgang.“
Þá virðast dæmin sýna að óná-
kvæmar merkingar á þjóðvegum
auki líkurnar á slysum og t.d. allt
of algengt að kantlínur vanti eða að
yfirborðsmerkingum sé illa haldið
við svo að þær verða ógreinilegar.
„Víðast hvar á Vesturlöndum virð-
ist merkingum mun betur sinnt og
því skiljanlegt að þegar erlendir
ferðamenn aka um íslenska vegi
viti þeir oft ekki með vissu hvað má
og hvað má ekki. Á þjóðvegi
Hendinni kastað til
við vegmerkingar
Morgunblaðið/Júlíus
Hraðahindraun er ekki gangbraut. Á þessari mynd má sjá hraðahindrun
þar sem margt lætur vegfarendur halda að gangandi hafi forgang.
Yfirborðsmerkingar vantar á þjóðvegum en í þéttbýli er óljóst
hvar gangandi vegfarendur hafa forgang. Ósamræmi er í merk-
ingum á milli bæjarfélaga og merkingarnar víða svo lélegar að
sjálfakandi bílar ættu erfitt með að átta sig á veginum.
4
Nuro heitir frumkvöðlafyrirtæki í
Houston í Texas í Bandaríkjunum
sem ætlar sér í samkeppni við sendi-
bíla og hjólasendla um dreifingu á
pítsum.
Domino’s-pítsusmiðjan hefur stutt
við bakið á tilraunum með sjálfekna
bíla sem fært hafa neytendum bök-
una frægu hratt og örugglega heim
að húsi.
Gekk Domino’s til samstarfs við
Ford um smíði og þróun lítils flota
pítsu-hraðsendibíla til brúks í Mich-
igan. Og nú hefur Domino’s hafið
samstarf við Nuro um að veita þessa
sömu dreifingarþjónustu í Houston.
Nuro er eitt fjölda fyrirtækja sem
eru að þróa og framleiða sjálfekin
farartæki til matvæla- og vörudreif-
ingar innan borgarsvæða. Komst
það á kortið í byrjun árs er japanska
samsteypan SoftBank fjárfesti í
fyrirtækinu fyrir milljarð dala.
Fram að því hafði Nuro smíðað sex
R1-bíla en nú mun þeim fjölga mjög.
agas@mbl.is
Flatbökum ekið heim að
dyrum á sjálfeknum bílum
Sjálfekni pítsu-
bíllinn leysir
sendilinn af
hólmi.
Í hitabylgjunni að undanförnu
hafa myndast langar raðir við ís-
sölustaði þar sem fólk bíður þess
að komast yfir svalandi ís til mót-
vægis við hitann.
Nú er kominn á markað nýstár-
legur ísbíll sem leysa mun af aðra
gamla bíla sem flestir hafa verið
knúnir gölum dísilvélum. Þeir hafa
spúið ómældri mengun yfir for-
eldra sem beðið hafa í röð með
börnum sínum. Yfirvöld hafa haft
áhyggjur af þessum bílum og ýms-
ar sveitarstjórnir í Bretlandi, til
dæmis, hafa íhugað að banna þá á
miðbæjarsvæðum.
Í London hafa ísbílar verið
leyfðir til þessa á svæðum lítillar
losunar en stæðisgjöld fyrir þá
hafa verið afar há vegna meng-
unarinnar sem stafar frá þeim.
Hafi einhverjir óttast að ísbílar
myndu hverfa með öllu þá geta
þeir tekið gleði sína á ný. Nissan
hefur nefnilega tekið höndum
saman við skoska ísframleiðand-
ann Mackie’s og smíðað fyrsta
mengunarfría ísbíl Bretlands, en
þar er á ferð hreinn rafbíll. Frum-
gerðin er smíðuð upp úr raf-
sendibílnum Nissan e-NV200 og í
honum er allur búnaður til að
þjóna sólgnum ísneytendum.
Ísbíll þessi hefur 200 km drægi
og býr yfir 125 km/klst. hámarks-
hraða. Hann er og búinn 40 kíló-
vattstunda rafgeymi en tækjabún-
aður ísbúðarinnar fær hins vegar
rafmagn frá lausum orkupakka
sem sólarsellur á bílþakinu endur-
hlaða.
agas@mbl.is
Ísinn er eflaust betri úr rafmagnsbílnum en þeim dísilknúnu sem urðu
alltaf að vera í gangi á sölustöðum. Loft- og hljóðmengun er engin.
Mengunarfrír ísbíll léttir brún
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf