Morgunblaðið - 16.07.2019, Qupperneq 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur
í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Hjólastillingar | Smurverkstæði/þjónusta
Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir
sigridurelva@mbl.is
E
ins og flest úr smiðju Merce-
des Benz gerir nýr GLE
heilmikið fyrir augað, og
nær að vera nokkuð renni-
legur þrátt fyrir stærðina. En GLE
er bæði lengri og breiðari en áður, og
í fyrsta sinn fáanlegur í sjö sæta út-
gáfu. Innandyra er hann eins og
hann á kyn til: vandaður, og efnisval
allt fyrsta flokks í farþegarými.
Rúmt er um ökumann og farþega,
sætin eru til mikillar fyrirmyndar og
bjóða til að mynda upp á einhvers
konar smánudd með aukabúnaðinum
Energizing Coach. Hann á meðal
annars að slá á þreytu í langferðum,
og reyndist nuddið hið þægilegasta í
löngum bíltúr út á land. Hugbún-
aðurinn fylgist með líðan ökumanns
og aðlagar þægindakerfi bílsins að
honum.
Takk fyrir takkana!
Nýi GLE er fyrsti jepplingurinn
með upplýsinga- og afþreyingar-
kerfið MBUX, sem var fyrst kynnt
til sögunnar í fyrra í minnsta bróð-
urnum í Benz-fjölskyldunni, A Class.
MBUX-kerfið lærir smám saman inn
á ökumann og aðlagar viðmótið að
hegðun hans. Leggur til dæmis leið-
ina í vinnu á minnið og getur stungið
upp á fljótlegri leið heim lendi maður
í umferðarteppu. Ég er afskaplega
hrifin af útfærslu Benz á upplýsinga-
og afþreyingarskjánum, en tveir
skjáir mynda eina samfellu frá
mælaborði og yfir á snertiskjá þar
sem hægt er að stjórna nánast öllu í
bílnum með einum fingri. Stýrikerfið
er sömuleiðis vel heppnað, bæði
áferðarfallegt og aðgengilegt. Það
gladdi samt mitt litla hjarta þegar ég
uppgötvaði að Benz-menn hafa ekki
farið þá leið að útrýma heiðarlegum
tökkum alveg úr stjórnrýminu, en
fyrir neðan skjáinn er hægt, til dæm-
is, að stjórna hitastiginu í bílnum upp
á gamla mátann. Vilji maður ekki
káma út stjórnborðið er líka hægt að
stjórna flestu frá stýrinu, eða nota
raddstýringu.
Aðstoðarkona með unglingaveiki
Ég hef áður talað um stormasamt
samband mitt við ungfrúna sem
svarar þegar maður ávarpar bílinn:
Tæknitröll
í fögrum
umbúðum
Nýr GLE er lúxuskerra drekkhlaðin nútíma-
tækni. Blessunarlega er ekki búið að fjarlægja
alla stjórntakka til að rýma fyrir snertiskjánum.
Upplýs-
ingaskjár-
inn er sér-
deilis vel
heppnaður.