Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 8
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Oft eru það smáatriðin sem lýsa persónuleika
bíla best. Þannig er ekki hægt að ræsa
Porsche 718 Cayman með því einu að ýta á
takka á mælaborðinu, heldur þarf að snúa
lykli. Porsche gæti hæglega komið fyrir sama
búnaði og finna má í öllum betri bílum í dag,
þar sem skynjari nemur bíllykilinn í vasa
ökumanns og kveikt er á vélinni með því að
þrýsta á stóran „start“-takka, en með því að
þurfa að snúa lykli skapast meiri tenging við
ökutækið og ræsingin verður meiri við-
burður.
Það er í takt við allt annað 718 GT: þar er
farið alla leið í akstursupplifuninni. Þetta er
bíll fyrir þá sem hafa virkilega gaman af að
aka.
Hörðustu Porsche-aðdáendur vita raunar
ekki alveg hvað þeim á að finnast um 718-
línuna. Á blaði er nýi 911 miklu meiri bíll á
alla kanta: stærri, með öflugri vél og um það
bil tvöfalt dýrari. Mætti því halda að 718
væri ágætis byrjenda-Porsche, fyrir þá sem
eru ekki alveg búnir að vinna sig upp í for-
stjórastólinn en langar samt í þýskt trylli-
tæki á nokkuð viðráðanlegu verði. Nema
hvað 718-bílarnir eru jafn liprir og þeir eru
nettir, í einstaklega góðu jafnvægi á alla
kanta, og þegar komið er út á kappakst-
ursbraut er ekkert endilega betra að vera á
911. Bílagagnrýnendur vissu ekki alveg hvað
þeir áttu að halda þegar þeim þótti sumum
sem litli bróðir væri orðinn stóra bróður
fremri.
Kraftar og notagildi
718 Cayman GTS er meðalkröftuga útgáf-
an og hittir á hárrétta punktinn fyrir þá sem
vilja bíl sem veitir líflega akstursupplifun, án
þess samt að fara út fyrir öll velsæmismörk.
Það mætti fara upp um eitt þrep, í Cayman
GT4, fá nærri 50 hestöfl til viðbótar og vera
0,2 sekúndum fljótari í hundraðið, en það
væri kannski fullmikið af hinu góða fyrir
skreppitúra út í Krónuna. Svo mætti fara
Ljósmynd/Ásgeir Ingvarsson
Raketta til hversdagsbrúks
8 | MORGUNBLAÐIÐ
» Flöt 4 strokka 2,5 l bensínvél m.
forþjöppu
» 365 hö (PS) / 430 Nm
» 7 gíra PDK-skipting
» Frá 8,5 l /100 km í blönduðum akstri
» 0-100 km/klst á 4,3 sek.
» Hámarkshr. 290 km/klst.
» Afturhjóladrifinn
» 235/35 ZR 20 dekk að framan,
265/35 ZR 20 að aftan
» Eigin þyngd 1.405 kg
» Farangursrými 275 l samtals
» Sótspor 194 g/km
Nákvæmt listaverð liggur ekki fyrir hjá
Bílabúð Benna en myndi kosta frá 16 millj-
ónum króna.
Grunnútgáfa 718 Cayman, með 300 ha vél,
kostar frá 10,9 milljónum.
Porsche 718
Cayman GTS
Bílablaðamenn vita ekki al-
veg hvað þeir eiga að halda.
Getur verið að litli bróðirinn,
718-línan, sé betri bíll en
ættarlaukurinn 911?
Við Schloss Solitude, vestur af
Stuttgart. Guli liturinn hjálpar til
við að rýma vinstri akreinina á
hraðbrautunum enda sést hann
vel í baksýnisspeglum.
Fallegur er hann frá öllum hornum
og rúmgóður, með bæði fram- og
afturfarangursrými.