Morgunblaðið - 24.07.2019, Side 4

Morgunblaðið - 24.07.2019, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019FRÉTTIR Ert þú ísambandi? R áð gj öf ve gn a hr að hl eð sl us tö ðv a fy rir fy rir tæ ki og sv ei ta rfé lö g V E R K F RÆÐ I S T O F A Segja má að Hermann Guðmunds- son sé eins og blómi í eggi hjá Kemi en um þessar mundir eru lið- in slétt fimm ár síðan hann, ásamt fleiri fjárfestum, keypti þetta rót- gróna fyrirtæki. Reksturinn hefur gengið vel allt frá stofnun árið 1994 og vex jafnt og þétt. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Eins og svo oft áður þarf að gæta vel að rekstrarkostnaði sem eykst í sífellu. Auk þess þarf sífellt að stilla af verðlagningu í samræmi við sviptingar á gengi. Til fyrir- tækja eins og okkar er stöðugt ver- ið að gera auknar kröfur um rekj- anleika og skráningar en sumt af því er ekki mjög gagnlegt eins og þekkt er með skrifræði. Hver var síðasti fyrirlesturinn sem þú sóttir? Ég hef dregið mjög úr mæt- ingum á stórar ráðstefnur og horfi frekar á útsendingar á netinu eða YouTube. Ég hef farið nokkrum sinnum á ársfund Berkshire Hathaway og hlustað þar á Warren Buffett og Charlie Munger. Það er á við MBA-gráðu að hlýða á þessa reynslubolta. Þeir hafa verið sam- an í rekstri í 50 ár og láta hvergi á sjá. Hvaða hugsuður hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Það eru tveir menn sem ég hef fylgst lengi með; annar þeirra er fyrrnefndur Warren Buffett og hinn er Jamie Dimon, bankastjóri JP Morgan, sem er stærsti bank- inn í Bandaríkjunum. Hann skrif- aði mjög áhugaverða bók um sína starfsævi og starfshætti sem heitir Last Man Standing, ég mæli hik- laust með henni. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég les mikið af ævisögum og reynslusögum frá fólki sem hefur raunverulega þurft að takast á við erfið verkefni. Síðan ferðast ég talsvert og þá er ég alltaf með aug- un opin fyrir breytingum og nýj- ungum. Vörusýningar eru líka uppspretta þekkingar. Hugsarðu vel um líkamann? Nei, það er ekki hægt að segja það. Ég geng mikið í golfinu og nota það sem mína útivist og hreyf- ingu. Síðan hef ég ávallt verið reyklaus og edrú – hvort það sé til bóta veit maður aldrei. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Það ríkir stöðugleiki á vinnu- markaði og efnahagslífið er sterkt um þessar mundir. Gallar eru ekki áberandi. Það væri þá helst kostn- aður við fjármögnun, sem er meiri en flestar aðrar þjóðir þurfa að greiða. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Orkuna sæki ég mest með því að lesa góðar viðskiptasögur og með því að tala um viðskipti við vini mína. Hvíldin er líka lykill að því að mæta ferskur til leiks á mánudög- um. Ég sé of marga mæta ör- þreytta í vinnu eftir helgarnar svo þeir geta gefið lítið af sér og jafn- vel minna en þeir fá borgað fyrir. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráður í einn dag? Ég myndi setja ákvæði um há- marksskuldsetningu ríkissjóðs í stjórnarskrá og þannig verja okk- ur skattgreiðendur fyrir mis- heppnuðum ákvörðunum alþing- ismanna. SVIPMYND Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kemi Á við MBA-gráðu að hlýða á tal Buffetts og Mungers Morgunblaði/Arnþór Birkisson Hermann segir óheppilegt hvað fjármögnunarkostnaður er hár á Íslandi. NÁM: Grunnskóli 1978; IESE Barcelona, AMP 2004. STÖRF: Framreiðslunemi á Hótel Holti 1978-1985; sölustörf hjá Myllunni 1986-1988; sölustörf hjá skipadeild Sambandsins/ Samskipa 1988-1990; sölustörf og erlend innkaup hjá Ísboltum heildverslun 1990-1994; og hjá Slípivörum og verkfærum 1994- 2002; fjármálastjóri og framkvæmdastjóri Bílanausts 2002-2006; framkvæmdastjóri Olíufélagsins 2006-2007 og forstjóri N1 2007 til 2012. Framkvæmdastjóri H-Invest 2012-2014; framkvæmda- stjóri Kemi frá 2014. ÁHUGAMÁL: Ég er mest upptekinn af golfi, bíladellu og fótbolta. Auk þess eru viðskipti búin að vera áhugamál mjög lengi. FJÖLSKYLDUHAGIR: Ég á þrjú börn: yngsta dóttir mín er 20 ára, sonurinn er 28 ára og elsta dóttir mín er 31 árs. Ég bý með Svövu Gunnarsdóttur í Mosfellsbæ. HIN HLIÐIN FYRIR LOÐBARNIÐ Það versta við að þurfa að sitja við skrifborð eða vera fastur á verslunargólfi frá níu til fimm er að á meðan þarf kisi eða voffi að bíða aleinn heima. Blessuðum gæludýrunum leiðist örugglega heil ósköp á meðan og eiga það jafnvel til að stytta sér stundir með því að fá útrás fyrir skemmd- arfýsnina á stofusófanum. Petcube Play 2 er græja sem gæludýraeigendur ættu að gefa gaum. Hér er á ferðinni fullkomin gæludýramyndavél sem eigandinn getur notað til að fylgjast með dýrinu hvaðan og hvenær sem er. Tækið er búið hátalara og hljóð- nema svo að heilsa má ferfæt- lingnum. Það sem meira er, þá er Petcube með innbyggðan leysi- bendi sem má fjarstýra og fara í leik við loðbarnið svo það liggi ekki sofandi allan daginn og hlaupi í spik. Myndavélin virkar bæði í birtu og myrkri og hægt að tengja tæk- ið við snjallþjóninn Alexu. Tækið kostar 199 dali vestan- hafs. ai@mbl.is Leysibendinum er stýrt með snjall- síma til að leika við dýrið, yfir netið. Til að hringja í kisa GRÆJAN Flestu fólki þykir það nógu spælandi að glata venjulegum þráðlausum heyrnartólum frá Apple, enda ekki þau ódýrustu á markaðinum og kosta á Íslandi tæpar 27.000 kr, með hleðsluboxi. Það er samt bara klink í samanburði við verðmiðann á dem- antsútgáfu bandaríska skartgripa- hönnuðarins Ians DeLucca. Ekki kemur á óvart að DeLucca skuli starfa í Los Angeles, enda mjög Kaliforníulegt að steypa skel- ina utan um heyrnartólin úr hvíta- gulli og skreyta síðan með þúsund örsmáum demöntum í hæsta gæða- flokki. Hvert par er númerað og verða aðeins 25 framleidd. Með heyrnar- tólunum fylgir sérsmíðaður hleðslu- standur úr marmara og kannski að það útskýri verðmiðann: 20.000 dali eða um 2,5 milljónir króna. ai@mbl.is Heyrnartól sem ekki má týna Ætli hvítagullið auki hljóm- gæðin?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.