Morgunblaðið - 24.07.2019, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019FRÉTTIR
Tími Borisar Johnson er kominn.
Eftir langa og stranga göngu upp
fæðukeðju breskra stjórnmála er
þessi litríki og yfirlýsingaglaði
pólitíkus kominn alla leið á bak
við skrifborðið á Downingstræti
10. Allir vissu svo sem hvert
stefndi og bar Johnson höfuð og
herðar yfir keppinauta sína í bar-
áttunni um hver myndi leiða
Íhaldsflokkinn eftir að Theresa
May ákvað að stíga til hliðar.
Enginn veit samt fyrir víst hvers
má núna vænta. Brexit vofir yfir
bresku atvinnulífi og stjórnmálum
og hefur Johnson heitið því að út-
ganga Bretlands úr ESB verði
klöppuð og klár ekki seinna en 31.
október – með eða án sam-
komulags við Evrópusambandið.
Hann hefur því slétta 100 daga til
stefnu.
Andrúmsloftið á breskum fjár-
málamarkaði virðist einkennast af
svartsýni og jafnvel þreytu á við-
varandi óvissu um Brexit. Ef nota
má gengi punds gagnvart evru
sem mælikvarða á viðhorf fjár-
festa þá vekur Boris ekki mikla
von því pundið hefur gefið eftir,
jafnt og þétt, allt frá því May til-
kynnti um afsögn sína og líklegt
varð að Johnson tæki við af
henni.
Úr fáum kostum að velja
Kannski er of djúpt í árinni
tekið að segja að enginn leið sé til
að vita hvað Johnson hyggst fyr-
ir. Nýi forsætisráðherrann hefur
sagst vilja gera nýjan samning
við ráðamenn í Brussel, en um
leið hefur hann verið svo yfirlýs-
ingaglaður um brexit í gegnum
tíðina að honum standa fáir aðrir
kostir til boða en að sýna fulla
hörku. Johnson var í hópi hávær-
ustu útgöngusinna í aðdraganda
brexit-þjóðartkvæðagreiðslunnar,
og stuðningsmenn hans eru marg-
ir orðnir þreyttir á því hvað það
hefur dregist á langinn að koma
Bretland úr ESB.
Á sama tíma þykir það alveg
ljóst að margir leiðtogar Evrópu
eru ekkert sérstaklega hrifnir af
þessum ljóshærða bola sem hefur
reynst einstaklega laginn við að
smætta andstæðinga sína niður í
ekki neitt með nokkrum vel völd-
um háðsslettum. Hann kann samt
líka þá list að heilla fólk upp úr
skónum og fá það á sitt band.
Johnson er einnig þekktur fyrir að
skafa ekkert utan af hlutunum og
vera ófyrirsjáanlegur pólitíkus.
Hann veit hvernig á að skrúfa frá
sjarmanum og vefja fjölmiðlum
um fingur sér og hann hræðist
ekki að taka slaginn. Eins ólíkur
Theresu May og hægt er að vera.
Fréttaskýrendur höfðu einmitt
ítrekað varað við því að ef ESB
legði sig ekki fram við að koma til
móts við May myndi það greiða
leið Johnsons.
Gæti átt vin í Hvíta húsinu
ESB hefur gefið það út að ekki
komi til greina að breyta þeim
samningum sem May voru boðnir,
en Johnson vill m.a. endursemja
um stöðu Norður-Írlands. Þá hef-
ur hann hótað að greiða ekki 39
milljarða punda útgöngusekt nema
Brussel gefi eftir.
FT greinir frá að Michel
Bernier, aðalsamningamaður ESB
í brexit-deilunni hafi ekki beðið
boðanna heldur sent Johnson skýr
skilaboð á Twitter strax og ljóst
var að hann yrði næsti forsætis-
ráðherra: „Við hlökkum til að eiga
í uppbyggilegu samstarfi […] þeg-
ar hann tekur við embætti, til að
liðka fyrir því að fyrirliggjandi út-
göngusamningur verði sam-
þykktur og brexit gangi skipulega
fyrir sig.“
Það minnkar svigrúm Johnsons
enn frekar að Íhaldsflokkurinn
hefur ekki meirihluta á þingi og
er háður stuðningi flokks norður-
írskra sambandssinna sem taka
ekki í mál brexit-samning sem
kvæði á um að staða N-Írlands
væri ekki sú sama og alls Bret-
lands.
Einu má þó fastlega reikna með
og það er að Johnson reyni að
komast sem fyrst til Bandaríkj-
anna og til að freista þess að gera
verslunarsamning við Trump.
Eins og lesendur ættu að muna
var Obama ekki á þeim buxunum
að gefa Bretum neina sérmeðferð
vegna brexit: Bretar færu „aftast
í röðina“ sagði hann.
Er næsta víst að Johson sé
Trump að skapi og hefur forsætis-
ráðherrann gætt þess að gagn-
rýna Bandaríkjaforseta lítið sem
ekkert á opinberum vettvangi.
Góður samningur við Bandaríkin
myndi vera mikilvægur sigur fyrir
Johnson og ómótstæðilegt tæki-
færi fyrir Trump til að bæði gera
evrópskum þjóðarleiðtogum gramt
í geði og eignast náinn banda-
mann.
Alþjóðahagkerfið í hættu
Fleira er í húfi en efnahagur
Bretlands. Á þriðjudag gaf Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn út upp-
færða spá fyrir þróun alþjóða-
hagkerfisins og varar þar við að
ef Bretland kveður ESB án samn-
ings muni það hafa alvarleg áhrif
víða um heim. Tvær meginógnir
steðji að alþjóðahagkerfinu:
verndartollabrölt Bandaríkjanna
og svo hættan á brexit án samn-
ings. Sjóðurinn spáir núna 3,2%
hagvexti á heimsvísu á þessu ári
og 3,5% á því næsta, en svo lágar
tölur hafa ekki sést í áratug.
Styrkingin á næsta ári er háð því
að takist að finna farsæla lend-
ingu í deilum stórþjóða um milli-
ríkjaviðskipti, og koma stjórn á
efnahagsvanda landa á borð við
Argentínu og Tyrkland.
Fari tollastríð Trump Banda-
ríkjaforseta versnandi og teymi
Johnson Bretland út úr ESB án
samnings myndi það „draga úr
tiltrú [markaða], minnka fjárfest-
ingu, raska aðfangakeðjum á milli
landa og hægja verulega á hag-
vexti,“ segir sjóðurinn.
Brexit er
fyrsta mál
á dagskrá
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Hann er ekkert lamb að
leika sér við og getur, með
nokkrum vel völdum orð-
um, niðurlægt andstæð-
inga sína. Kannski hefur
Boris Johnson það sem
þarf til að binda enda á
Brexit-lönguvitleysuna
með góðu eða illu.
AFP
Boris Johnson liggur ekki á skoðunum sínum. Orð hans og athafnir hafa
fækkað þeim valkostum sem honum standa til boða í brexit-deilunni.
Gengi sterlingspunds gagnvart evru frá ársbyrjun 2016
1.350
1.300
1.250
1.200
1.150
1.100
2016 2017 2018 2019
Gengi: fxtop.com
23. JÚNÍ 2016
Brexit-þjóðaratkvæði
13. JÚLÍ 2016
Theresa May verður
forsætisráðherra
29. MARS 2017
Ríkisstjórn Bretlands virkjar
50. ákvæði Lissabon-sáttmálans
21. FEBRÚAR 2018
Tillögur breskra stjórnvalda
um aðlögunartímabil kynntar
24. MAÍ 2019
Theresa May segir
af sér sem leiðtogi
Íhaldsfl okksins
23. JÚLÍ 2019
Boris Johnson tekur
við lyklunum að
Downingstræti 10
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
• Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré
• Mikið úrval efna, áferða og lita
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is