Morgunblaðið - 24.07.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 24.07.2019, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 2019VIÐTAL Draga má úr bótagreiðslum Ég bið Michele að nefna fleiri atriði sem mætti straumlínulaga. Hún segir að milljónum dala hafi verið eytt í að greiða bætur til farþega, sem kvört- uðu vegna niðurfellinga og seinkana á flugi og því um líku. „Við þurfum að bæta upplifun farþega um borð og í flughöfninni til að draga úr þessu. Við þurfum einnig að hafa betra eftirlit með farangri, til að hann týnist ekki, og eiga í betri og skilvirkari sam- skiptum við viðskiptavinina. Það er hægt að herða sultarólina víða í tekjumódelinu. Og það að nota ekki breiðþotur gerir sitt. Þar voru 81,5 milljónir dala í einskiptiskostnað hjá WOW 1. Það eru fáir efnahagsreikn- ingar sem þola það.“ Michele heldur áfram að ræða hug- myndir sínar fyrir flugfélagið. Hún leggur áherslu á að áhafnirnar verði af réttri stærð og umfangi fyrir reksturinn, og skili hámarks- hagkvæmni, allt frá flugstjórnarklef- anum, til almenna farrýmisins og til fólksins sem sinnir störfum á flugvell- inum. „Við viljum stjórna kostn- aðinum betur og passa okkur á ein- skiptiskostnaðinum. Þetta krefst mikillar áætlanagerðar. Fólkið sem mun stýra þessu mun bera mikla ábyrgð gagnvart hluthöfum og það er vant því hafandi margt hvert rekið flugfélög fyrir opnum tjöldum sem skráð hafa verið í kauphöllina í New York.“ Stýra þarf launakostnaði Laun í íslenska fluggeiranum hafa oft komið til umræðu í tengslum við rekstrarerfiðleika íslensku flugfélag- anna. „Við erum að ræða hvernig er best að stýra þeim kostnaði. Þetta verður að vera hagkvæmt en uppfylla um leið ýtrustu skilyrði.“ Blaðamaður nefnir styrk verka- lýðsfélaganna hér á landi. „Já, ég er meðvituð um það en mér skilst að hér væri hægt að stofna nýtt verkalýðsfélag ef þess þyrfti. En þetta þarf að skoða. Við viljum að all- ir græði. Ég held að það sé allra hag- ur að WOW komi aftur.“ Spurð um tímasetningar segir Mic- hele að það sé háð ákvörðunum Isavia og Samgöngustofu. „Það gæti tekið einhverja mánuði að fá flugrekstr- arleyfið en við erum nú þegar með vottun frá bandarískum flugmála- yfirvöldum fyrir flugi hingað til lands með farþega og vörur.“ Hún nefnir að hægt væri að finna tímabundna lausn á meðan Sam- göngustofa vinnur sína vinnu. „Við gætum þar boðið upp á blandaða lausn sem gæti tímabundið létt þrýst- ingnum af hlutum og komið þannig flugsamgöngum strax í gang til Bandaríkjanna. Tekjumódelið þar á bak við væri að 60% teknanna kæmu frá bandarískum ferðamönnum. Það er hrífandi hugmynd til að hrinda í framkvæmd sem allra fyrst. Það myndi einnig nýtast Íslendingum á leið til Bandaríkjanna og þeim sem koma frá Evrópu og vilja ná tengi- flugi til Ameríku.“ Michele segir að greiðslum fyrir WOW sé að ljúka og hinir keyptu hlutir séu margvíslegar rekstr- arvörur, varahlutir, tæki og hand- bækur m.a. „Ástæðan fyrir því að ég kom hingað núna í eigin persónu var að ég vildi sjá þessa hluti með eigin augum. Fólkið mitt úti í Bandaríkjunum sem er sérfrótt um þessa hluti átti dálítið erfitt með að átta sig á öllu sem kom fram í Excel-skjölunum og fannst vanta einstaka vörunúmer.“ Til útskýringar segir hún að það hafi skapað ákveðið flækjustig að WOW notaði fimm mismunandi gerð- ir af þotuhreyflum. „Hver tegund krefst mismunandi varahluta. Það verður hluti af straumlínulögun fé- lagsins að vera með eina tegund af flugvélum og eina tegund af hreyfl- um.“ Kaupverðið er trúnaðarmál Hvað munt þú borga þrotabúinu fyrir WOW? „Það er ekki tímabært að upplýsa um kaupverðið enn sem komið er. Ég geri ráð fyrir að skiptastjórarnir muni gera það þegar þar að kemur.“ Eitt af því sem Ballarin ræddi á fundi sínum við Isavia var þróun Keflavíkurflugvallar til framtíðar. „Þetta er fallegur flugvöllur. En hér er oft kalt þótt stundum geti verið hlýtt. Eitt af því sem ég ræddi við Isavia var hvernig hægt væri að bæta upplifun farþega. Það er erfitt fyrir fólk með lítil börn eða fyrir eldra fólk að þurfa að fara úr flugvél í vondu veðri og komast ekki beint inn í flug- stöðina, dauðþreytt eftir að hafa verið kannski í 5 til 6 tíma í flugi. Isavia hefur unnið gott starf við að stjórna flugvellinum síðustu ár og þau segjast vilja horfa til langs tíma. Í Bandaríkjunum erum við með langa reynslu af langtíma áætlanagerð. Að sjá fyrir sér mannfjöldaþróunina, ímynda sér álagið á grunninnviðina, þjóðvegina, lestir og flugvelli og tengja þetta allt saman.“ Hún segir að mikilvægt sé að sjá fyrir sér hvernig þróunin verði til næstu 20-30 ára. Frumkvöðlasinnuð þjóð eins og Íslendingar er þurfi að geta leitað út og þrýstingur muni aukast þegar mannfjöldi hér fer að vaxa umfram það sem hann er í dag. „Isavia og forstjóri félagsins við- urkenna þessar áskoranir. Þá langar að byggja gang frá aðalflugvellinum, til þess sem þeir kalla austur- flugstöðvarbygging, þannig að fólk geti þar gengið beint frá borði inn í flugstöðina. Við ræddum hvað við gætum gert til að hjálpa til og þeir buðu okkur til annars fundar til að ræða þau mál. Við munum mæta með allt teymið okkar frá Bandaríkjunum til þeirra viðræðna en þær munu snú- ast um vöxt og viðgang flugvallarins.“ Ballarin segist vilja byggja flug- skýli. „Við ætlum að byggja vöru- flutningahlutann hratt upp og á ein- hverjum tímapunkti þurfum við að byggja okkar eigið flugskýli. Þangað til munum við verða í flugskýli 885 á svæði varnarliðsins.“ Ballarin segist vilja að nýsköpun og hugmyndaauðgi verði leiðarstef í rekstri WOW 2. Þar er hún með hug- mynd sem hún kynnti fyrir Isavia og tengist upplifun WOW-farþega. „Ég vil byggja sérstaka WOW-setustofu (e. lounge) á flugvellinum. Það er ekkert sem veldur meiri streitu hjá fólki sem er að koma kannski með lítil börn úr löngu flugi en að þurfa að sitja úti á göngum í bið eftir tengi- flugi. Ég vil byggja frekar stóra setu- stofu þar sem okkar farþegar geta farið og hlaðið batteríin, fengið sér hressingu, og börnin leikið sér í ró- legheitum. Það þekkja allir setustof- ur fyrir fólk á viðskiptafarrými, en ég vil snúa þessu við. Fólkið á fyrsta far- rými sem notar setustofurnar í dag er ekki fólkið sem heldur rekstri flug- félaganna gangandi. Það er fólkið í al- menna farrýminu sem það gerir. Markmiðið með þessu er að bæta upplifunina sem verður til þess að kvörtunum fækkar og þar með lækk- ar rekstrarkostnaður þegar bóta- greiðslum fækkar. Fólk sem lendir í því að týna farangri, tefjast eða missa af flugi, er ólíklegra til að kvarta og vera neikvætt þegar það fær góða þjónustu. Svona setustofu munum við einnig útbúa í WOW-höfuðstöðv- unum á Dulles-flugvelli.“ Spurð að því hvort slík setustofa samræmist lággjaldamódelinu, segir hún svo vera, vegna sparnaðarins sem hlýst af þjónustunni, vegna færri kvartana eins og útskýrt var hér að framan. Ballarin segist jafnframt vera á móti því að rukka fólk t.d. fyrir vatns- flöskur um borð í flugvélunum. Betra sé að sýna góðvild og láta fólki líða betur. „Við viljum gera flugupplif- unina aftur skemmtilega.“ Hún nefnir einnig að henni komi spánskt fyrir sjónir sú of- uráhersla á stærð á tösk- um og slíku við flug- innritun. „Það getur verið mjög pirrandi og jafnvel vandræðalegt að þurfa að umpakka tösk- unum þínum, strax við innritunarborðið. Þannig byrjar ferðin strax á slæmum nótum. Þarna byrjar í raun kvörtunarferlið.“ Tæknilausnir mikilvægar Þá nefnir Ballarin að mikilvægt verði að hafa gott app í snjall- símanum svo auðvelt verði að breyta hlutum, skipuleggja, bóka og borga, hitt og þetta sem tengist fluginu. „Við viljum einfalda hlutina fyrir farþeg- ann.“ Nú hafa fyrrverandi stjórnendur WOW air sótt um flugrekstrarleyfi fyrir nýtt flugfélag sem þeir kalla WAB (We Are Back). Þá er Iceland- air umsvifamikið á markaðnum. Hræðist hún samkeppnina? „Nei, samkeppni er af hinu góða. Ég kem úr frjálsu hagkerfi þar sem ríkir mikil samkeppni. Þjóðríki á ekki að vera háð einu flugfélagi. Þá ertu að borga of há fargjöld. Samkeppni hræðir mig ekki. Ef rekstrarmódelið okkar er gott þá er ekkert að óttast. Íslendingar og íslensk stjórnvöld þurfa valkost í flugi. Og ef við erum góð í því sem við gerum mun fólk velja okkur.“ Mun félagið leita eftir láns- fjármagni hjá íslenskum bönkum? „Nei. Við erum skuldlaus. Við vinnum með eigið fé, ekki lánsfé.“ En hvað um alþjóðlegt rekstr- arumhverfi. Olíuverð er hátt um þessar mundir. Veldur það þér áhyggjum? „Þú verður að kaupa varnir í þeim efnum og það er það sem við munum gera til að draga úr áhættu. Enginn getur spáð fyrir um verð á olíu. Þar eru ólíkir utanaðkomandi kraftar sí- fellt að togast á. Þú verður að átta þig á að sumir af mínum helstu viðskipta- félögum eru frá Texas og þeir skilja alveg hvernig olíumarkaðurinn virk- ar.“ Þú nefndir áðan að þú hefðir hitt Skúla Mogensen. Tengist hann þess- um fyrirætlunum á einhvern hátt? „Nei, það gerir hann ekki. En hann vann ótrúlega gott starf við uppbygg- ingu vörumerkisins. Vel gert, Skúli! Það hefur verið erfitt fyrir hann að ganga í gegnum þetta og ég finn til með honum. Ég þekki Skúla og hann hefur sagt mér frá því hvernig draumurinn kviknaði og varð að veruleika og einnig frá þeim áskor- unum sem hann þurfti að mæta. Stundum verða hlutirnir ofviða ein- um manni. Við viljum bara finna góð- ar lyktir á því verkefni sem hann setti af stað.“ Mun WOW 2 verða með höfuð- stöðvar hér á landi? „Já, við verðum til húsa mjög ná- lægt gömlu höfuðstöðvunum í Katr- ínartúni. Við viljum vera nálægt fal- legu stóru kirkjunni uppi á hæðinni.“ Mikil kirkjunnar kona Það er engin tilviljun að Michele nefnir Hallgrímskirkju í þessu sam- bandi. USAerospace, er fyrirtæki sem byggt er á trúarlegum grunni. „Við erum með sterkar rætur í krist- inni trú. Við lifum og störfum sam- kvæmt því. Ég veit að margir urðu undrandi hér á landi þegar við báðum fólk að biðja borðbæn áður en við borðuðum með því á veitingahúsum. En þetta gerum við alltaf. Í uppeld- inu var mér kennt að vera þakklát fyrir það sem ég fékk. Og á tímum eins og við lifum á í dag gleymir fólk gjarnan rótum sínum og uppruna. Rætur okkar eru djúpar, bæði í hin- um veraldlega heimi en einnig í heimi kristinnar kirkju.“ Til að undirstrika trúarlegan grunn fyrirtækisins og allra aðstand- enda segir Michele að áður en fyrsta WOW 2-flugvélin fari í loftið, muni hún fá hingað til lands biskupinn í Kirkju Jóhannesar skírara í Virginíu- ríki, kirkjunni sem hún sækir messu í á hverjum sunnudegi og hann ásamt íslenskum trúarleiðtoga muni helga fyrsta flugið og flugfélagið. „Þau munu í sameiningu biðja fyrir vel- gengni og öryggi þessa endurreista Morgunblaðið/Hari Gríðarlegur óróleiki hefur verið á íslenskum flugmarkaði síðasta árið. Hann náði hámarki með gjaldþroti WOW air 28. mars síðastliðinn. Síðan þá hafa harðvítugar deilur staðið milli flugvélaleigu- fyrirtækisins ALC og Isavia um kyrrsetningu vélarinnar TF-GPA á Keflavíkurflugvelli. Vélin fór af landi brott í liðinni viku. Enn standa Boeing 737 MAX-vélar Icelandair kyrrsettar um heim allan. ” Svona aðstoð eins og í Sómalíu snýst ekki um að senda hjálpar- gögn heldur að koma á viðskiptum. Þannig fær fólk lífsviðurværi og get- ur komið á jafnvægi til lengri tíma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.