Smári - 01.02.1929, Blaðsíða 2

Smári - 01.02.1929, Blaðsíða 2
2 S M Á R I Nafnið. Lesið: Luk. 2,21. Stysta og að því er mörgum I finst efnisminsta guðspjallið er haft | yfir á nýásdag. Menn segja: „Guð- spjallið segir eiginlega aðeins frá því, j hvenœr og hvaða nafn Jesús hlaut. ! Eins og það skifti nokkru uin nafn- ið!“ — En er nú alveg víst að iitlu skifti um nafnið? Þrjár staðreyndir koma hjer til greina. Eigi verður því neitað, að mikið líða sum börn sakir þess, að skuggi fellur á framtíðar- veg þeirra af nöfnum foreldranna. Það þarf svo sem ekki mikið til. Stundum getur jafnvel ósjálfráð fá- tækt foreldrnnna valdið því, að börn- in þeirra eru eigi metin að verðleik- um. En stundum eiga foreldrarnir beinlínis sök á því, þar eð nöfn þeirra eru raunverulega flekkuð — en svo gjalda blessuð börnin þess. Þeim er j vantreyst. Þau eru tortrygð. Þau eru j börn skuggans. — Þá er og hittlíka til, að ljóminn af nöfnum sumra for- eldra gerir bjart umhverfis börn þeirra. Hvar sem þau fara, njóta þau velvildar. Allir vilja hjálpa þeim. Allir treysta þeim. Allir vilja hafa þau hjá sjer. Þau eru börn sólskinsins. En, litla sólskinsbarn! Ofmetnastu eigi. Gæt þess miklu fremur, að þess er jafnan vænst, að þú, sem ert af svo góðu bergi brotið, sjert ætíð góða \ barnið. Uppfyllir þú þær kröfur, þá eykur þú Ijóma ættar þinnar. En hugsir þú hinsvegar aðeins um að láta eftir Iægstu hvötum þínum, þá er hætt við að þú fyrirgerir góðu nafni fyr eða síðar — föður þínum og móður þinni til sárrar sorgar. Þriðja staðreyndin er, að bæði er hægt aö fyrirgera góðu nafni og að vinna sjer gott nafn. Börn skuggans heyri það, að gott nafn geta þau unnið sjer. Verið því hughraust. Vand- ið ráð ykkar. Vakið og biðjið. Þá birtir senn. Ykkur græðist álit með hverju árinu og nöt'n ykkar fá hug- þekkan hljóm f eyrum samtíðarmann- anna. En. vinur minn ! Hvort sem þú ert sólskins- eða skuggans barn, þá mundu þetta: Gef þig eigi á vald víns eða tóbaksnautnar. Þær nautnir hafa margt sólskinsbarnið teygt nið- ur í skuggadalinn, og mörgum þeim haldið föstum í myrkri og skugga, sem þó þráðu Ijós og yl. Nýtt ár er byrjað. Takið þá ákvörðun, þjer ungu menn, að halda fast við hugsjónir barnastúknanna. Heilir til hildar með kjörorð þ.irra í hjarta og sál! Þá munu þið verða til heiðurs nafni hans, sem á nýársdag hlaut nafnið Jesú. — Guð blessi ykkur árið! Fundarbyrjun. (Unglingareglan.) Sjá, ættarland, þinn æskuher — þitt ungra vona lið! Um templarfánann fylkir sjer hin fríða sveit, og lýtur þjer. j : Hún sækir frain á svið. : | Við þykjum ærið ærslagjörn, en oftast reynum við að standast eins og voldug vörn, þó vín og tóbak ginni börn. | : Kom, kom —og legg oss lið.: | Nú hittumst við á heillastund. Upp herör skera þarf. Með grandvart hjarta, glaða lund við guði helgum þennan fund. | : Hann styðji göfugt starf. : | Gm. 12858 2

x

Smári

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Smári
https://timarit.is/publication/1371

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.