Smári - 01.02.1929, Blaðsíða 8

Smári - 01.02.1929, Blaðsíða 8
hugsaði sig um, hvernig sem hún lagði sig fram, var henni ómögulegt að muna eftir því, að hún hefði nokkru sinni, meðan hún lifði á jörð- unni, gefiö nokkrum manni fimm aura virði, varið nokkrum eyri í annara þágu af óeigingjörnum kjærleika. — Börnin mín! Bestu fjársjóðirnir, sem við getum safnað okkur á jörð- unni, er þroskun þess göfgasta og besta, sem í eðli okkar finnst er Ijósið og kærleikurinn, sem gefur öðr- um, sem lýsir og vermir í kringum sig, hvar sem hann fer. Það eru fjár- sjóðir, sem vjer aldrei þuríum að skiljast við, heldur fylgja oss inn í eilífðina, lieim til hins góða guðs. Sv. V. Sitt af hverju. .,Smári“ kemur sex sinnum út á árinu, fimm blöðin átta biaðsíður hvert, en sjötta blaðið — jólablaðið helm- ingi stærra, auk aug- lýsinga. Verð árgangs- ins er 1 króna, sem greiðist fyrirfram, nema öðruvísi sje um samið. Alt „Smára“ viðvíkjandi sendist ábyrgð- armanni hans: Vald. V. Snævarr, Norð- firöi. Kaupendur eru beðnir að til- kynna, ef vanskil verða á blaðinu. — Mun þá tafariaust úr því bætt. Ger- ist áskrifendur! í tómstundum. Ráðningar sbr. síðasta blað: — Reikningsgáta: 10 ára. — Eldspýtnaþraut: Raðið 31 eldspýtu svona. — Takið svo 11 þeirra burtu, þann- ig, að þær, sem eftir ir veröa, myndi þrjá rjetthyrninga og 2 kvaðröt. — (Um rjetthyrninga og kvaðröt lesið þið í reikningsbókunum ykkar). Stúkuheiti. Fyrsti stafurinn er í prýði, en ekki í lýti. Annar í elli, en ekki í œsku. f'riðji í raun, en ekki í laun. Fjórði í laun, en ekki í raun. Fimti í alt, ekki í sex. Falin nöfn. 1. Jeg fann alt. 2. Þú sást alt. 3. Hann flaug at’tur. 4. Hún klauf eyrnagullið. Hjer í eru falin 4 kvenmannsnöfn: eitt þeirra er stuttnefni. — Frœndsemisgáta. Hvað er tengdamóðir konu bróður I rníns mikið skyld mjer? Taflþraut. nr. 4. (Th. Herlin.) Hvítt: Svart Hh8 Ka8 Kgó Hb8 De4 Ha7 Hal b7 Hvítt á leik. Mátar í 2 leikji Kennarinn: Maður á aldrei að hefna sín, heldur jafnan að fyrirgefa óvinum sínu.Ti. Hvað mundir þú þá gera, Siggi, ef drengi r kæmi til þín og slæi þig? Siggi: Ja— það færi nú eftir því, hve stór strákurinn væri! Prentsmiðja Sig. Þ. Guðmundssonar, Seyðisfirði

x

Smári

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Smári
https://timarit.is/publication/1371

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.