Smári - 01.02.1929, Page 4
4
S M A R I
Smágreinar um tafllistina.
(Samtíningur víðsvegar að.)
IV.
Hjer skal birt tafl, seni teflt var í II. flokki á Eskifirði 1927.
Óregluleg byrjuri.
T. J. Hartmann. D. S. T- j . Hartmann. D. S.
Hvítt. Svart. Hvítt. Svart.
1. e2—e4 e7—e5 14. Bc3—a4 Db6-a7
2. Rgl—f3 Rb8—có 15. Ra4Xc5 Da7Xc5
3. c2—c3 d7—d5 16. b2-b4 Dc5—d6
4. e4Xd5 Dd8Xd5 17. Cd2- e3 g7—g5
5. d2—d3 Bf8-d6 18. Bc3—c5 Dd6—d7
6. h2—h3 h7—h6 19. b4-b2 a6Xb5
7. c3—c4 Dd5—a5 20. c4Xb5 Be6Xh3
8. Bcl—d2 Da5—b6 21. b5Xc6 Dd7—g4
9. Ddl—c2 Bc8—e6 22. c6Xb7 f- Kc8—b8
10. Rbl—c3 Rg8—f6 23. Rf3—el Dg4—d7
11. a2—a3 a7—a6 24. Hal—b1 Bh3—e6
12. Bfl—e2 Bd6—c5 25. Dc2—c3 Be6—d5
13. 0-0 0-0-0 26. Bc5—a71 Gefið.
Skátareglan.
Naumast mun nokkur fjelagsskap-
ur ungra manna, sá er til siðbóta
horfir, hafa náð jafn mikilli útbreiðslu j
víðsvegar um lönd á jafn skömmum
tíma eins og skátareglan. Er hún og
að ýmsu Ieyti einsdæmi í sögunni.—
Hún er stofnuð árið 1907 af enska
hershöfðingjanum Sir Robert Baden-
Poweil. Hún er því aðeins röskra 20
ára, en þó eru samt skátaflokkar
starfandi í öllum menningarlöndum
heimsins og bókmentir um skátastarf-
semina til á öllum helstu tungumál-
unum.
Allir skátaflokkar, hvar sem er í
heiminum, starfa á sama grundvelli
og í aðalatriðunum eftir sömu regl-
um. Er ekki gott, að svona æfintýri
skuli gerast með þjóðunum, þrátt
fyrir alt?
Markmið skátareglunnar er: „Að
vekja og glæða ættjarðarást ungra
manna, svo að þeir, eftir aldri og
þro.ska, haf: jafnan fyrir augum gagn
og sóma ættjarðarinnar í allri fram-
komu sinni, framfaraviðleitni og elju
við öll störf. Að styrkja skyldurækni
þeirra á heimilunuin. Að auka sóma-
tilfinningu ungra manna, svo að þeir
herði æ meir og meir á kröfum til
sín og fjelaga sinna um ráðvendni,
orðheldni, drengskap og fjelagslyndi.
Að venja unga menn á, að ieggja
kapp á dugnað, stundvísi og vand-
virkni. Að venja unga menn á að
I beygja sig með glöðu geði undir aga
og að hlýða fyrirskipunum rjettrayf-
j irboðara sinna. Að hvetja unga menn
j til að iifa hollu og fjörugu útilífi og
vekja ást þeirra á náttúrunni. Að gera
unga menn hagsýna, með því að
I venjaþá á ýmiskonar tómstundastörf,