Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.1992, Blaðsíða 10
Sveitarsjóðareikningar 1987-1988
Árin 1987og 1988 vorufjármál sveitarfélagannasemnæst
í jöfnuði. Umsvif sveitarfélaga, mæld sem hlutfall gjalda og
tekna af vergri landsframleiðslu, námu um 9% fyrra árið og
um 10% árið eftir. í því samhengi þarf að hafa í huga að
landsframleiðslan jókst um 9,2% að magni til árið 1987, en
seinna árið dróst hún lítils háttar saman eða um 0,3%. Á
árabilinu 1979-1986 mældist umfang sveitarfélaganna 9-
10% af landframleiðslunni og hefur það jafngilt ríflega
fjórðungi af umfangi hins opinbera. Á sama tíma jókst
landsframleiðslan talsvert að magni til eða umríflega fjórðung.
Tekjur sveitarfélaganna eru af þrennum toga, þ.e. skatt-
tekjur, eigin rekstrartekjur og framlög frá öðrum. Síðasttaldi
tekjustofninn kemur aðallega frá ríkinu og er vegna greiðslu
á hlutdeild þess í sameiginlegum verkefnum með sveitar-
félögum. I þeim yfirlitum, sem hér eru sýnd, er hugtakið
þjónustutekjur notað sem samheiti fyrir eigin rekstrartekjur
sveitarfélaga af veittri þjónustu auk framlaga frá öðrum til
rekstrar, svo sem vegna kostnaðarhlutdeildar annarra í
sameiginlegum rekstri.
Af útgjöldum sveitarfélaganna renna um þrír fjórðu hlutar
til rekstrar- og fjármagnskostnaðar og um fjórðungur til
fjárfestingar. Þessi hlutföll hafa haldist nokkuð stöðug á
undanförnum árum.
Afkoma sveitarfélaga er afar mismunandi. Þar sem þau
eru mjög breytileg að stærð, legu og íbúafjölda er erfitt að
finna hentugan mælikvarða til að bera fjármál þeirra saman
með góðu móti. Til að fá vísbendingu um mismunandi
afkomu þeirra eru hér dregnar fram ýmsar upplýsingar um
tekjur og gjöld sveitarfélaga á hvem íbúa þeirra. Þetta kemur
fram í 2. yfirliti en þar eru sveitarfélög með svipaðan
íbúafjölda flokkuð saman og afkoma þeirra sýnd á hvern íbúa
í samanburði við önnur sveitarfélög árin 1987 og 1988.
2. yfirlit. Afkoma sveitarfélaga á hvern íbúa 1987 og 1988
Table 2. Local government fmances pr. inhabitant by size of municipalities 1987 and 1988
f krónum á verðlagi hvers árs Höfuð- Önnur sveitarfélög eftir íbúafjölda ISK at current prices
Landið borgar- Other municipalities with number ofinhab.
Whole svæðið
country Capital >3.000 1.000- 400- <400
region 3.000 999
Árið 1987: 1987
Fjöldi sveitarfélaga 216 9 7 20 26 154 Number of municipalities
Fjöldi íbúa 1. desember 247.357 137.941 40.624 29.877 15.469 23.446 Number of inhabitants
% af íbúafjölda landsins 100,0 55,8 16,4 12,1 6,3 9,5 Per cent ofwhole country
Heildartekjur 72.767 76.027 72.602 76.154 72.599 49.663 Total revenue
Heildargjöld -74.248 -74.322 -78.482 -88.034 -76.897 -47.167 Total expenditure
Tekjujöfnuður -1.482 1.705 -5.880 -11.880 -4.298 2.496 Revenue balance
Árið 1988: 1988
Fjöldi sveitarfélaga 214 9 7 20 26 152 Number of municipalities
Fjöldi íbúa 1. desember 251.690 141.938 41.099 30.192 15.373 23.088 Number of inhabitants
% af íbúafjölda landsins 100,0 56,4 16,3 12,0 6,1 9,2 Per cent ofwhole country
Heildartekjur 97.961 103.776 94.886 102.659 94.193 64.053 Total revenue
Heildargjöld -98.971 -101.220 -102.122 -110.680 -99.763 -63.693 Total expenditure
Tekjujöfnuður -1.009 2.556 -7.236 -8.020 -5.570 360 Revenue balance
Nominal percentage change
Breyting 1986-1987, 1986-1987‘>
Heildartekjur 23,6 18,3 35,6 28,3 26,3 30,9 Revenue balance
Heildargjöld 24,4 17,5 36,2 36,9 28,9 26,5 Total expenditure
Nominal percentage change
Breyting 1987-1988, %» 1987-1988')
Heildartekjur 34,6 36,5 30,7 34,8 29,7 29,0 Revenue balance
Heildargjöld 33,3 36,2 30,1 25,7 29,7 35,0 Total expenditure
0 Til samanburðar má nefna að vísitala framfærslukostnaðar hækkaði að meðaltali um 18,8% milli áranna 1986 og 1987 og um 25,5% milli áranna 1987 og
1988. Forthesake ofcomparison itcan bementionedthatthe consumerprice index rose by 18.8percentbetween 1986 and 1987andby 25.5percentbetween
1987 and 1988.