Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.11.1996, Blaðsíða 30
28
S veitarsjóðareikningar 1995
22. yfirlit. Útgjöld sveitarfélaga til leikskóla 1992-1995
Summary 22. Local government expenditure on daycare institutions!992-1995
Rekstur dagvista sveitarfélaga á verðlagi hvers árs Operational outlays and revenue ofmunicipal daycare at current prices Tekjur sem hlutfall af útgjöldum, % Revenue as percent of expenditure Framlög til rekstrar dagvista annarra Transfers to other daycare Framlög sem hlutfall heildar- útgjalda, % Transfers as percent oftotal expenditure Vísitala rekstrarútgjalda Index of operational outlays
Gjöld Expenditure Tekjur Revenue
1992 2.732,5 947,7 34,7 61,1 2,2 86,0
1993 2.933,9 1.047,9 35,7 70,1 2,3 88,7
1994 3.246,8 1.199,5 36,9 118,1 3,5 96,8
1995 3.412,9 1.301,9 38.1 148,9 4,2 100,0
Samkvæmt 22. yfirliti jukust tekjur sveitarfélaga af leik-
skólum úr 37% af útgjöldum til þeirra árið 1994 í 38% árið
1995. Þessar tekj ur eru fyrst og fremst greiðslur foreldra fyrir
vist barna sinna en til viðbótar koma greiðslur úr ríkissjóði
vegna svonefndra stuðningsbarna; barna sem vegna fötlunar
þurfa eftirlit og aðstoð umfram önnur börn. Rekstrarútgjöld
sveitarfélaga vegna þessa málaflokks jukust um 3% á föstu
verðlagi frá 1994 til 1995 (9% 1993-1994). Á sama tíma
fjölgaði „heilsdagsbörnum“ í vist á vegum sveitarfélaga um
20% eða úr 8.100 börnum árið 1994 í rösklega 9.700 börn
árið 1995 (6% 1993-1994). í yfirlitinu sést að rekstrar- og
styrktarframlög sveitarfélaga til leikskóla sem reknir eru af
öðrum námu um4% af heildarútgjöldum sveitarfélaganna til
leikskóla.
23. yfírlit. Dagvist barna á einkaheimilum 1994-1995
Summary 23. Childcare in private homes 1994-1995
Fjöldi í árslok 0-2 ára years 3-5 ára years Börn 6-10 ára Fjöldi barna í hlutfalli af aldursflokki Fjöldi dagmæðra Child
End-of-year Heils- Percentage ofage groups
data Alls dagsvist Alls dagsvist Children 0-2 ára 3-5 ára 6-10 ára
Total 7-8 hours Total 7-8 hours 6-10 years years years years minders
1994 1.521 490 423 88 127 11,4 3,1 0,6 526
1995 1.800 742 352 128 19_________2,5 0,1 481
í 23. yfirliti sést fjöldi barna í dagvist á einkaheimilum hjá
skráðum dagmæðrum í sveitarfélögum með 400 eða fleiri
íbúa árin 1994 og 1995. Fyrra árið voru 2.071 barn í slíkri
dagvist, þar af 578 í heilsdagsvist. Árið 1995 var 2.171 bam
í dagvist á einkaheimilum, þar af 870 í heilsdagsvist. Þannig
fjölgaði börnum í heilsdagsvist á einkaheimilum mun meira
en nam heildarfjölgun barna sem vistuðust þar. Urn 83%
barna í vist af þessu tagi voru 2 ára og yngri árið 1995, 73%
árið áður. Dagmæðrum fækkaði uni 70 árið 1994 borið
saman við árið næsta á undan og urn 45 árið 1995. Reiknaður
fjöldi ,,heilsdagsbarna“ á hvert heimili jókst úr 2,5 börnum
árið 1994 í 3,2 börn á heimili árið 1995.
Samkvæmt þessum niðurstöðum um dagvist barna á
leikskólum og í heimahúsum voru nær 14% allra barna 2 ára
og yngri í heilsdagsvist á árinu 1995 og 24,0% barna 3-5 ára.
Þegar fjöldi barna í skemmri vist á leikskólum og í
heimahúsum er lagður saman verður niðurstaðan sú að 23%
barna 2 ára og yngri og 61 % barna 3-5 ára hafa verið í dagvist
hluta úr degi árið 1994. Hér kann að gæta tvítalningar í þeim
tilvikum þar sem barn er í leikskóla hluta úr degi og hjá
dagmóður hinn hlutann. Með fyrirvara um tvítalningu er
niðurstaðan sú að 37% af öllum börnum 2 ára og yngri og
85% af öllum börnum 3-5 ára hafa verið í dagvist á árinu
1995.