Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.2000, Blaðsíða 30
28
Sveitarsjóðareikningar 1999
reikningi sveitarsjóða er dregin fram peningaleg staða sem
niðurstöðutala en ekki er lagt upp úr að sýna eiginfjárstöðu
í samræmi við almennar reikningsskilaaðferðir atvinnufyrir-
tækja. Sveitarsjóðum ber því að beita sértækri reiknings-
skilaaðferð sbr. a. lið 9. gr. reglugerðar nr. 280/1989. Þar
skipta eftirfarandi atriði mestu máli:
a. Skatttekjur, ráðstöfun þeirra og fjármagnshreyfingar
með samanburði við fjárhagsáætlun.
b. Peningaleg staða í upphafi og við lok tímabils.
c. Lykiltölur.
d. Skýringar.
Eftirfarandi yfirlit sýnir helstu frávik í reikningsyfirlitum
sem byggjast á almennum reikningsskilum annars vegar og
þar sem beitt er sértækri reikningsskilaaðferð hins vegar.
Sveitarfélögin hafa smám saman verið að þróa uppgjörsað-
ferðir sínar í átt til sértækra reikningsskila og kemur hér
einnig fram hvenær helstu breytingar áttu sér stað.
Almenn aðferð
Rekstrarreikningur
„Sjóðstreymi“ (hét einnig
fjármagnsyfirlit en var í raun
sjóðstreymi)
Efnahagsreikningur (eiginfjárstaða)
Sértœk aðferð
Rekstrar- og framkvæmdayfirlit
Fjármagnsyfirlit
Hvenœr breytt
Með ársreikningi 1979
Með ársreikningi 1990
(nýtt fjármagnsyfirlit)
Efnahagsreikningur (peningaleg staða)
Raunbreyting peningalegrar stöðu
Lykiltölur
Með ársreikningi 1990
Með ársreikningi 1990
Með ársreikningi 1990
Uppsetning rekstrar- og framkvæmdayfirlits var svipuð
bæði árin 1989 og 1990. Þó er rétt að nefna tvær breytingar.
Arið 1990 voru allar skatttekjur færðar undir liðinn sam-
eiginlegar tekjur en ýmsar tekjur, sem voru áður færðar á
þennan lið, bókfærast nú á viðkomandi málaflokka. Fram til
ársins 1989 voru færslur vaxta í reikningsskilum sveitarfél-
aga mismunandi og hefur það gert samanburð á reikningum
þeirra erfiðari. Frá 1990 er sveitarfélögum gert að færa allar
vaxtatekjur, vaxtagjöld og verðbætur í málaflokk 28 og þar
er einnig gert ráð fyrir möguleika á færslum reiknaðra
fjármagnsliða.
Meginmarkmið efnahagsreiknings sveitarsjóðs og þeirra
fyrirtækja og stofnana sveitarfélaga sem beita sértækum
reikningsskilaaðferðum er að draga fram peningalega stöðu
þeirra í árslok. Peningaleg staða er í raun sú fjárhæð í efna-
hagsreikningi sveitarsjóðs sem mestu máli skiptir. Fastafjár-
munir eru sýndir ósundurliðaðir. Sundurliðun þeirra kemur
fram í sérstöku yfirliti sem Hagstofan óskar eftir frá sveitar-
félögunum. Með nákvæmri skilgreiningu á peningalegri
stöðu skiptir færsla annarra eigna í efnahagsreikningi sveitar-
sjóðs minna máli en áður. Einnig er mikilvægt ákvæði í
reglugerð nr. 280/1989 þess efnis að sveitarfélög eigi að
halda nákvæma eignaskrá. Gert er ráð fyrir að í efnahags-
reikningi komi fram tilvísun í skýringar á eignum og skuld-
bindingum utan efnahagsreiknings. Fram til ársins 1989
miðaði úrvinnsla Hagstofu við að „hrein eign eigin fyrir-
tækja með sjálfstæðan fjárhag" færðist sem sjálfstæður liður
í eignahlið efnahagsreiknings sveitarsjóðs. Frá ársbyrjun
1990 var þessi liður felldur úr efnahagsreikningnum.
Frá árinu 1990 er raunbreyting á peningalegri stöðu frá
upphafi reikningsárs til ársloka miðað við vísitölu byggingar-
kostnaðar reiknuð út á sérstöku yfirliti í reikningum sveitar-
sjóða. Breytingu á peningalegri stöðu má stemma af við
heildamiðurstöður á rekstrar- og framkvæmdayfirliti þegar
sú fjárhæð hefur verið færð til verðlags í árslok.
Hinu nýja fj ármagnsyfirliti er fyrst og fremst ætlað að sýna
ráðstöfun á skatttekjum sveitarfélagsins og aðrar peninga-
legar hreyfingar á því tímabili sem það tekur til.
Breytingar á efnahag í ársreikningum sveitarfélaga 1999
f janúar 1999 gerði Bókhaldsnefnd Sambands íslenskra
sveitarfélaga tvær samþykktir er varða breytta meðferð
hlutafjáreignar og lífeyrisskuldbindinga í efnahagsreikningi
sveitarfélaga. f þeim fólst nokkuð breytt skilgreining á
peningalegri stöðu.
A undanförnum ámm hefur nokkuð borið á mismunandi
aðferðum við færslu hlutabréfa í reikningsskilum sveitar-
félaga, þ.e. hvenær þau em meðtalin í peningalegri stöðu.
Bókhaldsnefndin taldi nauðsynlegt að gefa út leiðbeiningar
íþessu efni til að tryggjainnbyrðis samræmi milli sveitarfélaga
í þessu tilliti. Samþykkt nefndarinnar gerir ráð fyrir að
hlutabréf í eigu sveitarfélaga sem em á markaði séu færð á
meðal peningalegra eigna sveitarsjóðs í samræmi við
almennar reikningsskilavenjur.
Þá lagði nefndin til að lífeyrisskuldbindingar yrðu færðar
á efnahagsreikning sveitarsjóðs næst á eftir peningalegum
eignum og skuldum. Gert er ráð fyrir að á efnahagsreikningi
komi fram annars vegar peningaleg staða án lífeyris-
skuldbindinga og hins vegar peningaleg staða að þeim
meðtöldum. Jafnframt gerði samþykktin ráð fyrir að þegar
uppsafnaðar lífeyrisskuldbindingar fyrri ára em teknar inn í
efnahagsreikningin í fyrsta skipti séu þær færðar um
eiginfjárreikning en ekki um rekstrarreikning. Eftir það beri
að færa skuldbindingar hvers reikningsárs um rekstrar-
reikning. Gert er ráð fyrir að sveitarfélög fái upplýsingar um
skuldbindingar sínar hjá viðkomandi lífeyrissjóðum í lok
hvers árs.
Framangreindar tillögur bókhaldsnefndarinnar komu
almennt til framkvæmda í ársreikningum sveitarsjóða fyrir
árið 1999.
Úrvinnsla ársreikninga 1999.
Bókhaldslykill sveitarfélaga gerir meðal annars ráð fyrir að
útgjöld til málaflokka séu brúttófærð. Við það er einnig
miðað á eyðublöðum Hagstofu. I þessari skýrslu em sýndar
þrjár megintöflur fyrir fjármál sveitarfélaga á árinu 1999 og
ein tafla fyrir fjármál fyrirtækja sveitarfélaga.