Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.2000, Qupperneq 30

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.2000, Qupperneq 30
28 Sveitarsjóðareikningar 1999 reikningi sveitarsjóða er dregin fram peningaleg staða sem niðurstöðutala en ekki er lagt upp úr að sýna eiginfjárstöðu í samræmi við almennar reikningsskilaaðferðir atvinnufyrir- tækja. Sveitarsjóðum ber því að beita sértækri reiknings- skilaaðferð sbr. a. lið 9. gr. reglugerðar nr. 280/1989. Þar skipta eftirfarandi atriði mestu máli: a. Skatttekjur, ráðstöfun þeirra og fjármagnshreyfingar með samanburði við fjárhagsáætlun. b. Peningaleg staða í upphafi og við lok tímabils. c. Lykiltölur. d. Skýringar. Eftirfarandi yfirlit sýnir helstu frávik í reikningsyfirlitum sem byggjast á almennum reikningsskilum annars vegar og þar sem beitt er sértækri reikningsskilaaðferð hins vegar. Sveitarfélögin hafa smám saman verið að þróa uppgjörsað- ferðir sínar í átt til sértækra reikningsskila og kemur hér einnig fram hvenær helstu breytingar áttu sér stað. Almenn aðferð Rekstrarreikningur „Sjóðstreymi“ (hét einnig fjármagnsyfirlit en var í raun sjóðstreymi) Efnahagsreikningur (eiginfjárstaða) Sértœk aðferð Rekstrar- og framkvæmdayfirlit Fjármagnsyfirlit Hvenœr breytt Með ársreikningi 1979 Með ársreikningi 1990 (nýtt fjármagnsyfirlit) Efnahagsreikningur (peningaleg staða) Raunbreyting peningalegrar stöðu Lykiltölur Með ársreikningi 1990 Með ársreikningi 1990 Með ársreikningi 1990 Uppsetning rekstrar- og framkvæmdayfirlits var svipuð bæði árin 1989 og 1990. Þó er rétt að nefna tvær breytingar. Arið 1990 voru allar skatttekjur færðar undir liðinn sam- eiginlegar tekjur en ýmsar tekjur, sem voru áður færðar á þennan lið, bókfærast nú á viðkomandi málaflokka. Fram til ársins 1989 voru færslur vaxta í reikningsskilum sveitarfél- aga mismunandi og hefur það gert samanburð á reikningum þeirra erfiðari. Frá 1990 er sveitarfélögum gert að færa allar vaxtatekjur, vaxtagjöld og verðbætur í málaflokk 28 og þar er einnig gert ráð fyrir möguleika á færslum reiknaðra fjármagnsliða. Meginmarkmið efnahagsreiknings sveitarsjóðs og þeirra fyrirtækja og stofnana sveitarfélaga sem beita sértækum reikningsskilaaðferðum er að draga fram peningalega stöðu þeirra í árslok. Peningaleg staða er í raun sú fjárhæð í efna- hagsreikningi sveitarsjóðs sem mestu máli skiptir. Fastafjár- munir eru sýndir ósundurliðaðir. Sundurliðun þeirra kemur fram í sérstöku yfirliti sem Hagstofan óskar eftir frá sveitar- félögunum. Með nákvæmri skilgreiningu á peningalegri stöðu skiptir færsla annarra eigna í efnahagsreikningi sveitar- sjóðs minna máli en áður. Einnig er mikilvægt ákvæði í reglugerð nr. 280/1989 þess efnis að sveitarfélög eigi að halda nákvæma eignaskrá. Gert er ráð fyrir að í efnahags- reikningi komi fram tilvísun í skýringar á eignum og skuld- bindingum utan efnahagsreiknings. Fram til ársins 1989 miðaði úrvinnsla Hagstofu við að „hrein eign eigin fyrir- tækja með sjálfstæðan fjárhag" færðist sem sjálfstæður liður í eignahlið efnahagsreiknings sveitarsjóðs. Frá ársbyrjun 1990 var þessi liður felldur úr efnahagsreikningnum. Frá árinu 1990 er raunbreyting á peningalegri stöðu frá upphafi reikningsárs til ársloka miðað við vísitölu byggingar- kostnaðar reiknuð út á sérstöku yfirliti í reikningum sveitar- sjóða. Breytingu á peningalegri stöðu má stemma af við heildamiðurstöður á rekstrar- og framkvæmdayfirliti þegar sú fjárhæð hefur verið færð til verðlags í árslok. Hinu nýja fj ármagnsyfirliti er fyrst og fremst ætlað að sýna ráðstöfun á skatttekjum sveitarfélagsins og aðrar peninga- legar hreyfingar á því tímabili sem það tekur til. Breytingar á efnahag í ársreikningum sveitarfélaga 1999 f janúar 1999 gerði Bókhaldsnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga tvær samþykktir er varða breytta meðferð hlutafjáreignar og lífeyrisskuldbindinga í efnahagsreikningi sveitarfélaga. f þeim fólst nokkuð breytt skilgreining á peningalegri stöðu. A undanförnum ámm hefur nokkuð borið á mismunandi aðferðum við færslu hlutabréfa í reikningsskilum sveitar- félaga, þ.e. hvenær þau em meðtalin í peningalegri stöðu. Bókhaldsnefndin taldi nauðsynlegt að gefa út leiðbeiningar íþessu efni til að tryggjainnbyrðis samræmi milli sveitarfélaga í þessu tilliti. Samþykkt nefndarinnar gerir ráð fyrir að hlutabréf í eigu sveitarfélaga sem em á markaði séu færð á meðal peningalegra eigna sveitarsjóðs í samræmi við almennar reikningsskilavenjur. Þá lagði nefndin til að lífeyrisskuldbindingar yrðu færðar á efnahagsreikning sveitarsjóðs næst á eftir peningalegum eignum og skuldum. Gert er ráð fyrir að á efnahagsreikningi komi fram annars vegar peningaleg staða án lífeyris- skuldbindinga og hins vegar peningaleg staða að þeim meðtöldum. Jafnframt gerði samþykktin ráð fyrir að þegar uppsafnaðar lífeyrisskuldbindingar fyrri ára em teknar inn í efnahagsreikningin í fyrsta skipti séu þær færðar um eiginfjárreikning en ekki um rekstrarreikning. Eftir það beri að færa skuldbindingar hvers reikningsárs um rekstrar- reikning. Gert er ráð fyrir að sveitarfélög fái upplýsingar um skuldbindingar sínar hjá viðkomandi lífeyrissjóðum í lok hvers árs. Framangreindar tillögur bókhaldsnefndarinnar komu almennt til framkvæmda í ársreikningum sveitarsjóða fyrir árið 1999. Úrvinnsla ársreikninga 1999. Bókhaldslykill sveitarfélaga gerir meðal annars ráð fyrir að útgjöld til málaflokka séu brúttófærð. Við það er einnig miðað á eyðublöðum Hagstofu. I þessari skýrslu em sýndar þrjár megintöflur fyrir fjármál sveitarfélaga á árinu 1999 og ein tafla fyrir fjármál fyrirtækja sveitarfélaga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.