Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 15.01.1997, Síða 13

Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd - 15.01.1997, Síða 13
Utann'kisverslun 1995, Vöruflokkar og viðskiptalönd 11 snertir og framleiðslulönd hvað varðar innflutning. Þannig er leitast við að greina endanlegan áfangastað útfluttrar vöru og upprunaland innfluttrar vöru en ekki kaup- eða söluland eða það land sem útflutningurinn fer til eða innflutningurinn kemur frá. Fyrir kemur að útflytjanda eða innflytjenda er ókunnugt um endanlegt móttökuland eða upprunaland vörunnar og verður þá að skrá á skýrslu það land sem útflutningurinn fer til eða innflutningurinn kemur frá í stað notkunarlands eða upprunalands. Verðreikningur Verðmæti innfluttrar vöru er ýmist sýnt á cif-verði eða fob- verði en verðmæti útflutnings á eingöngu fob-verði. Með fob-verði (free on board) er átt við verð vörunnar komið urn borð í flutningsfar í útflutningslandi. 1 cif-verði (cost, insur- ance, freight) er einnig talinn sá kostnaður sem fellur á vöruna þar til henni er skipað upp í innflutningslandi. Er hér aðallega um að ræða flutningsgjald og vátryggingu. I hagskýrslum um utanríkisverslun er venjan sú að inn- flutningur er talinn á cif-verði en útflutningur á fob-verði. Eðli málsins samkvæmt á þó þessi regla ekki við um ferskan fisk sem seldur er í erlendum höfnum. Við verðákvörðun þessa útflutnings er farið eftir reglum Fiskifélags Islands um útreikning útflutningsverðmætis ísfisks og bræðslufisks þar sem frá brúttósöluverði eru dregnir tilteknir kostnaðar- liðir, mismunandi eftir löndum. Hér er um að ræða löndunar- kostnað og hafnargjöld, toll og sölukostnað. Tölur um verðmæti innflutnings eru fengnar með því að umreikna verðmæti vörunnar í erlendum gjaldeyri til ís- lenskra króna miðað við sölugengi viðkomandi gjaldmiðils. Aftur á móti eru útflutningstölur miðaðar við kaupgengi. Viðmiðunargengið er svokallað tollgengi sem er hið opinbera gengi skráð af Seðlabanka íslands 28. hvers mánaðar eða, ef það er ekki virkur dagur, næsta rúmhelgan dag. Magn Með magni útflutnings og innflutnings er átt við nettóþyngd (þ.e. þyngd án umbúða) hans í tonnum nema annað sé tilgreint sérstaklega. I þessu riti er í töflum 19 og 21 tilgreind- ur fjöldi útfluttra hrossa í stað þyngdar þeirra í tonnum en þyngd þeirra er meðtalin í samtölu fyrir landbúnaðarvörur í töflu 19. Utanríkisverslun 1995 Vöruskiptajöfnuður í 1. yfirliti er sýnd þróun utanríkisverslunar áratuginn 1986- 1995, annars vegar á gengi hvers árs og hins vegar á meðalgengi ársins 1995. Innflutningur er hér sýndur á cif- verði en útflutningur á fob-verði. Á árinu 1995 nam verðmæti vöruútflutningsins í heild 116,6 milljörðum króna fob á móti 113,6 milljarða heildarvöruinnflutningi cif. Þetta þýðir að útflutningur umfram innflutning á árinu 1995 nam 3,0 milljörðum. Á þennan mælikvarða hefur verið halli á utan- ríkisversluninni allan þennan áratug að undanskildum síðastliðnum þremur árum (1993-1995). Hallinn hefur verið mismikill eða frá um 0,7% af útflutningsverðmæti árið 1989, reiknað á föstu gengi, upp í 15,4% árið 1987. Afgangur á vöruviðskiptunum síðastliðin þrjú ár hefur verið 3,5% af útflutningsverðmæti árið 1993,9,0% árið 1994 og 2,6% árið 1995. 1. yfirlit. Utanríkisverslun 1986-1995 í millj. kr. á gengi hvers árs í millj. kr. á gengi ársins 1995 " Útflutt umfram innflutt í % af útflutningi Útflutt fob Innflutt cif Útflutt umfram innflutt (fob-cif) Útflutt fob Innflutt cif Útflutt umfram innflutt (fob-cif) 1986 44.968 45.905 -938 85.345 87.124 -1.779 -2,1 1987 53.053 61.232 -8.179 97.113 112.073 -14.960 -15,4 1988 61.667 68.723 -7.057 98.854 110.122 -11.268 -11,4 1989 80.072 80.599 -528 102.033 102.705 -672 -0,7 1990 92.625 96.621 -3.996 105.951 110.522 -4.571 -4,3 1991 91.560 104.129 -12.569 104.733 119.110 -14.377 -13,7 1992 87.833 96.895 -9.063 99.969 110.284 -10.315 -10,3 1993 94.658 91.307 3.351 99.480 95.959 3.521 3,5 1994 112.654 102.541 10.113 112.541 102.439 10.102 9,0 1995 116.607 113.614 2.993 116.607 113.614 2.993 2,6 Miðað við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Innflutningur er gerður upp á fob-verði í íslenskum þjóð- hagsreikningum. Mismunur cif-verðs og fob-verðs, aðallega farmgjöld og vátrygging, færist þá á útgjaldahlið þjónustu- reiknings. Niðurstaðan á viðskiptareikningi (sem er samtala vöru- og þjónustureiknings) verður því hin sama óháð því hvorri aðferðinni er beitt. Tölur um vöruskiptajöfnuð breytast hins vegar mikið. Þetta kemur fram í 2. yfirliti sem sýnir vöruskiptajöfnuðinn þar sem verðmæti útflutnings og inn- flutnings er hvort tveggja reiknað á fob-verði. Til þess að gefa betri vísbendingu um stærð vöruskiptajafnaðarins er jafnframt sýnt hlutfall hans af vergri landsframleiðslu sam- kvæmt tölum Þjóðhagsstofnunar. Innflutningur fob 1995
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198

x

Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Utanríkisverslun. Vöruflokkar og viðskiptalönd
https://timarit.is/publication/1381

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.