Gistiskýrslur - 01.04.1997, Page 9
Inngangur
Introduction
1. Gistináttatalning Hagstofu íslands
1. Overnight stays statistics
Gistiskýrslur 1996 er fjórða ritið sem Hagstofan gefur út í
ritröðinni Gistiskýrslur. Aður hafa komið út Gistiskýrslur
1984-1993, Gistiskýrslur 1994 og Gistiskýrslur 1995. í
inngangi þessa rits eru yfirlitstöflur fyrir árin 1985-1996 ásamt
myndum. Töfluhluti ritsins nær ytirleitt tvö til þrjú ár aftur í
tímann en töflur um gestakomur ná einungis til ársins 1996. I
töfluhlutanum er talnaefnið sundurliðað eftir landsvæðum,
rikisfangi og tímabilum. Upplýsingaöflun Hagstofunnar fer
þannig fram að gististöðum og öllum þeim er selja gistiþjónustu
eru send skýrslueyðublöð til útfyllingar en á þau skal færa
fjölda gesta og gistinátta sundurliðaðan eftir ríkisfangi.
Ríkisföngin eru auk Islands 14 Evrópulönd, þaðan sem flestir
ferðamenn koma, Bandarikin, Kanada og Japan. Aðrir gestir
teljast sem aðrir Evrópubúar eða frá öðrum löndum. Fram til
ársins 1995 var einungis safnað tölum um fjölda gistinátta en
í júní árið 1995 var auk þess byrjað að safna upplýsingum um
fjölda næturgesta. Byrjunarörðugleikar háðu talningu gesta-
koma framan af og því er ekki hægt að birta tölur um þær fyrr
en frá árinu 1996. Réttur Hagstofu til að krefja seljendur
gistiþjónustu upplýsinga er byggður á 10. gr. laga um veitinga-
og gististaði nr. 67/1985. Þar segir: “Rekstraraðilar, er undir
þessi lög falla, skulu veita stjómvöldum upplýsingar skv. nánari
fyrirmælum Hagstofu Islands. Slfkar upplýsingar skulu
einungis notaðar til könnunar og skipulagningar á ferða-
þjónustunni almennt og/eða rekstri veitinga- og gistihúsa
sérstaklega sem atvinnugreinar.” I samræmi við þessa
lagagrein og venjur skuldbindur Hagstofan sig til að fara með
allar upplýsingar um starfsemi einstakra gististaða sem
trúnaðamál og lætur aðeins í té upplýsingar í töflum eins og
fram kemur í þessu riti.
Skýrslueyðublöð þau sem Hagstofan sendir seljendum
gistiþjónustu til útfyllingareru þrjú. Tvö þeirra eru svokölluð
hjálparblöð, annað er fyrir gestakomur en hitt fyrir gistinætur.
Þessi blöð em einungis ætluð til notkunar á gististöðunum
og er hægt að fylla þau út eftir hvern dag. Þriðja eyðublaðið
„Gistiskýrsla til Hagstofu” er eina blaðið sem senda skal
Hagstofunni. Á það skal færasamtölur mánaðarins afhjálpar-
blöðunum ásamt upplýsingum um gistirými. Eyðublöðin em
einnig til í tölvutæku formi fyrir Excel.
2. Flokkun gististaða
2. Classification of tourist accommodation
Gistiþjónusta í landinu er fjölbreytt. I úrvinnslu Hag-
stofunnar er henni skipt í sex meginflokka.
Fyrsti flokkur er hótel og gistiheimili. Nánar tiltekið hótel,
hótelíbúðir og gistiheimili starfandi allt árið, Edduhótel, önnur
sumarhótel og sumargistiheimili. I þessum flokki em öll hótel
og gistiheimili sem em með sérstaka gestamóttöku og bjóða
upp á lágmarks hótelþjónustu, þ.e. dagleg þrif á herbergjum
og salemum. Auk þess em í þessum flokki gistiheimili þar
sem gistirými er 16 rúm eða fleiri og/eða 8 herbergi eða fleiri.
Þessi viðmiðun er samkvæmt 26. gr. reglugerðar nr. 288/1987
um veitinga- og gististaði. Þessi flokkur gistiþjónustu tekur til
stærsta hluta allrar gistiþjónustu í landinu. Tveir þriðju hlutar
þeirra gistinátta sem Hagstofan hefur upplýsingar um em á
gististöðum í þessum flokki.
Annar flokkur gististaða er heimagististaðir. Fram til
ársins 1995 var þessi flokkur kallaður bœndagististaðir en
var þá skipt í annars vegar í hótel eða gistiheimili og hins
vegar heimagististaði. Fyrmm bændagististaðir, sem voru
árið 1995 með gistirými við áðurnefnd viðmiðunarmörk eða
stærra, flokkast nú sem hótel eða gistiheimili, hinir minni
sem heimagististaði. Til heimagististaða telst öll gisting á
einkaheimilum fólks hvort sem er í kaupstöðum eða á sveita-
býlum. Bændur eru ósjaldan með eitt til tvö sumarhús að
auki og þar sem erfitt hefur reynst að fá þessa gistingu
nákvæmlega sundurliðaða frá hinni hefðbundnu heima-
gistingu er sú gisting talin með í heimagistingunni. Leigi
bændur sumarhús sín út til stéttar- eða starfsmannafélaga er
sú gisting ekki meðtalin hér.
Þriðji flokkur gististaða er sumarhús/smáhýsi. Þá er átt
við sumarhúsa- eða smáhýsahverft með a.m.k þremur húsum.
Umfang sumarhúsagistingar er mun umfangsmeira en
heimagistingar í þeim tilvikum þegar þessar tvær tegundir
gistingar eru reknar samhliða. Einungis er átt við sumarhús
sem leigð eru út í hagnaðarskyni, ekki t.d. sumarhús stéttar-
og starfsmannafélaga.
Fjórði flokkur gististaða er farfuglaheimili. Farfugla-
heimili bjóða upp á gistingu í rúmum með sæng og kodda
en gestir þurfa að hafa með sér sængurföt eða leigja þau á
staðnum. Gestir geta einnig notað eigin svefnpoka. 011
farfuglaheimili eru í Bandalagi íslenskra farfugla sem er aðili
að Alþjóðasamtökum farfugla (IYHF).
Fimmti flokkur gististaða nær til svefiipokagististaða. Þeir
geta verið sumarhótel, félagsheimili og skólar sem selja
gistingu í svefnpokum á gólfdýnum í stærri vistarverum.
Ymsir gististaðir bjóða upp á svefnpokagistingu í rúmum en
sú gisting telst með gistingu í uppbúnum rúmum.
Sjötti flokkur gististaða eru tjaldsvæði og skálar. Til hans
teljast öll tjaldsvæði og gistiskálar þar sem gjald er tekið.
Þessum flokki er skipt niður í tjaldsvæði í dreifbýli og þétt-
býli, tjaldsvæði á hálendi og skála á hálendi. Hálendinu er
síðan skipt í þrjú svæði, norðurhálendi, austurhálendi og
suðurhálendi. Skipting hálendisins er í samræmi við tillögu
Landmótunar h/f sem vinnur að skipulagi hálendisins.
Loks má nefna sjöundu tegund gististaða, orlofshús
félagasamtaka. Ekki hefur reynst unnt að afla upplýsinga
um nýtingu í þessum flokki en hjá Fasteignamati ríkisins
fengust þó upplýsingar um tjölda og stærð sumarbústaða
sem ekki eru í einkaeign. I yfírlitstöflum 20 og 21 kemur
fram fjöldi og meðalstærð sumarhúsa í eigu stéttar- og
starfsmannafélaga og húsa í eigu fyrirtækja sem ekki reka
gistiþjónustu heldur leigja/lána húsin starfsmönnum og/eða
viðskiptavinum sínum.