Gistiskýrslur - 01.04.1997, Síða 22
20
Gistiskýrslur 1996
15. yfirlit sýnir meðaldvalarlengd eftir tegund gistingar og
landsvæðum árið 1996. Aberandi er nokkuð lengri dvalarlengd
á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. A hótelum og
gistiheimilum á höfuðborgarsvæðinu var dvalarlengd að
meðaltali 2,1 nótt hjá Islendingum og 2,5 hjá útlendingum,
nokkru skemur í annarri tegund gistingar eða 1,9 og 1,8 nætur.
Næstlengst dvalarlengd var á Norðurlandi eystra 1,7 nætur að
meðaltali. Lengd dvalar er yfirleitt styst á Suðumesjum 1,2-
1,3 nætur og 1,5 nætur hjá Islendingum í annari tegund
gististaða en hóteli eða gistiheimili.
Heildarfjöldi gistinátta 1986-1996. Árið 1996 var í fyrsta
skipti hægt að áætla heildarfjölda gistinátta í öllum tegundum
gistingar samkvæmt öruggum heimildum. Heimtur gisti-
skýrslna í flokki hótela og gistiheimila voru um og yfir 80%
og í flokki heimagististaða 75% og yfir. Heimtur frá farfugla-
heimilum og sumar- og smáhýsahverfum voru u.þ.b. 90%.
Áætlun fjölda gistinátta á gististöðum sem ekki hafa sent
Hagstofunni gistiskýrslur er byggð á upplýsingum um gisti-
rými og nýtingu. Gistirými er þekkt á öllum gististöðum.
Skýrslur bárust frá 70% svefnpokagististaða og áætlanir á
þá staði sem ekki skila skýrslum er aðallega byggð á
samtölum t.d. við þá sem selja gistingu í félagsheimilum og
skólum, ferðamálafulltrúa, starfsmenn sveitarfélaga og fleiri.
Gistiskýrslur bárust frá 65% tjaldsvæða. Þar sem stærstu og
þekktustu tjaldsvæðin skiluðu skýrslum er áætlaður fjöldi
gistinátta einungis u.þ.b. 5% af áætluðum heildarfjölda.
Áætlanir fyrir hálendisskála og tjaldsvæði eru eins og með
svefnpokagististaðina mest byggðar á samtölum við þá sem
tengjast ferðaþjónustunni, einnig er stuðst við eldri gögn.
Árin 1986-1994 voru áætlanir fyrir hótel og gistiheimili,
farfuglaheimili og bændagististaði gerðar á grundvelli gagna
um framboð og nýtingu. Sama á við árið 1995 en þá var auk
þess áætlað á heimagististaði með sama hætti. Fram til ársins
1996 bárust skýrslur frá helmingi skráðra svefnpoka-
gististaða, lítið var vitað um þá staði sem ekki skiluðu
skýrslum og því var farið varlega í gerð áætlana. Árin 1986-
1994 má ætla að gistitölur á tjaldsvæðum nái til u.þ.b. 75-
80% en heimtur skýrslna árin 1995 og 1996 voru mun betri.
I 16. yfirliti kemur fram að gistinóttum á tjaldsvæðum og í
skálum fjölgaði árið 1995 miðað við árið 1994 en aukning-
una ber að skoða með fyrirvara. Hún á aðallega rætur að
rekja til betri skýrsluskila en auk þess hefur eflaust verið
vanáætlað á tjaldsvæði og skála árið 1994.
16. yfirlit. Áætlaður heildarfjöldi gistinátta eftir tegund gistingar 1986-1996
Summary 16. Estimated total number of overnight stays by type of accommodation 1986-1996
Þúsund Thous. Alls Total Hótel og gistiheimili Hotels and guesthouses Bænda- gististaðir Farm guesthouses Heimagisting Private-home accommo- dation Sumar- og smáhýsahverfi Summer-house accommo- dation Farfugla- heimili Youth hostels Svefnpoka- gisting Sleeping-bag accommo- dation Tjaldsvæði og skálar Camping sites and lodges
1986 821,6 533,8 7,2 0,9 32,2 12,9 234,6
1987 921,4 613,2 19,9 0,9 37,1 17,4 232,9
1988 929,3 594,8 22,9 0,8 35,5 19.3 256,0
1989 947,7 604,4 22,8 U 39,4 19,2 260,8
1990 1.028,5 645,0 39,0 1,0 37,3 24,2 282,0
1991 1.060,3 668,3 42,3 2,2 36,0 25,0 286,5
1992 1.025,7 662,9 54,1 3,5 31,1 28,9 245,2
1993 1.022,3 661,0 54,1 5,6 30,6 24,6 246,4
1994 1.182,4 745,3 82,2 7,5 34,8 25,2 287,4
1995 ’> 1.269,7 844,1 67,7 37,8 18,3 301,8
1996 2> 1.348,5 896,0 56,8 26,7 40,2 24,5 304,3
" Árið 1995 var flokki bændagististaða skiptannars vegar íhótel oggistiheimiii og hins vegarheimagististaði. Þeir bændagististaðir sem hafa 8 herbergi eða
fleiri og/eða 16 rúm eða fleiri teljast nú til hótela og gistiheimila. Nánari skýringar í texta. In 1995farm guesthouses were reclassified as either hotels and
guesthouses orprivate-home accommodation. Farrn guesthouses with at least 8 rooms and/or 16 beds are now classified as hotels or guesthouses, others as
private-home accommodation.
21 Gisting í sumarhúsa- og smáhýsahverfum hefur verið aðgreind frá hinni hefðbundnu heimagistingu. Summer-house accommodation, c.f. notes lo Summary
8 has been classified separately from traditional private-home accommodation.
16. yfírlit sýnir heildarfjölda gistinátta í öllum tegundum
gistingarárin 1986-1996. Gistinætur vom 1.348.500 árið 1996
og hafði þeim fjölgað um 6% frá árinu 1995 en þá var fjöldi
þeirra 1.269.700. Gistinóttum í flokki hótela og gistiheimila
fjölgaði um 6% frá árinu 1995 en ef litið er á aðrar tegundir
gistingar en hótel og gistiheimili í heild sést að þar hefur
gistinóttum fjölgað um rúm 6%. Minnstu breytingar 1995-
1996 vom í flokki tjaldsvæða og skála, gistinóttum fjölgaði
um tæpt 1%, vom 301.800 árið 1995 en 2.500 fleiri árið 1996
eða 304.300. Hlutfall gistinátta á hótelum og gistiheimilum af
heildarfjölda gistinátta var 65% árið 1986, 63% árið 1991 og
66% árið 1996. Hlutfall gistinátta í bænda-, heima- og
sumarhúsagistingu hefur hækkað úr tæpu 1% árið 1986 í 4%
árið 1991 ogí6%árið 1996. Á móti kemur fækkun gistinátta
á tjaldsvæðum því þar hefur hlutfallið lækkað úr 28% árið
1986127% 1991ogí23% 1996. Ámynd9séstglöggthvemig
gistinætur skiptast niður á hinar ýmsu tegundir gistingar.