Gistiskýrslur - 01.04.1997, Qupperneq 22

Gistiskýrslur - 01.04.1997, Qupperneq 22
20 Gistiskýrslur 1996 15. yfirlit sýnir meðaldvalarlengd eftir tegund gistingar og landsvæðum árið 1996. Aberandi er nokkuð lengri dvalarlengd á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. A hótelum og gistiheimilum á höfuðborgarsvæðinu var dvalarlengd að meðaltali 2,1 nótt hjá Islendingum og 2,5 hjá útlendingum, nokkru skemur í annarri tegund gistingar eða 1,9 og 1,8 nætur. Næstlengst dvalarlengd var á Norðurlandi eystra 1,7 nætur að meðaltali. Lengd dvalar er yfirleitt styst á Suðumesjum 1,2- 1,3 nætur og 1,5 nætur hjá Islendingum í annari tegund gististaða en hóteli eða gistiheimili. Heildarfjöldi gistinátta 1986-1996. Árið 1996 var í fyrsta skipti hægt að áætla heildarfjölda gistinátta í öllum tegundum gistingar samkvæmt öruggum heimildum. Heimtur gisti- skýrslna í flokki hótela og gistiheimila voru um og yfir 80% og í flokki heimagististaða 75% og yfir. Heimtur frá farfugla- heimilum og sumar- og smáhýsahverfum voru u.þ.b. 90%. Áætlun fjölda gistinátta á gististöðum sem ekki hafa sent Hagstofunni gistiskýrslur er byggð á upplýsingum um gisti- rými og nýtingu. Gistirými er þekkt á öllum gististöðum. Skýrslur bárust frá 70% svefnpokagististaða og áætlanir á þá staði sem ekki skila skýrslum er aðallega byggð á samtölum t.d. við þá sem selja gistingu í félagsheimilum og skólum, ferðamálafulltrúa, starfsmenn sveitarfélaga og fleiri. Gistiskýrslur bárust frá 65% tjaldsvæða. Þar sem stærstu og þekktustu tjaldsvæðin skiluðu skýrslum er áætlaður fjöldi gistinátta einungis u.þ.b. 5% af áætluðum heildarfjölda. Áætlanir fyrir hálendisskála og tjaldsvæði eru eins og með svefnpokagististaðina mest byggðar á samtölum við þá sem tengjast ferðaþjónustunni, einnig er stuðst við eldri gögn. Árin 1986-1994 voru áætlanir fyrir hótel og gistiheimili, farfuglaheimili og bændagististaði gerðar á grundvelli gagna um framboð og nýtingu. Sama á við árið 1995 en þá var auk þess áætlað á heimagististaði með sama hætti. Fram til ársins 1996 bárust skýrslur frá helmingi skráðra svefnpoka- gististaða, lítið var vitað um þá staði sem ekki skiluðu skýrslum og því var farið varlega í gerð áætlana. Árin 1986- 1994 má ætla að gistitölur á tjaldsvæðum nái til u.þ.b. 75- 80% en heimtur skýrslna árin 1995 og 1996 voru mun betri. I 16. yfirliti kemur fram að gistinóttum á tjaldsvæðum og í skálum fjölgaði árið 1995 miðað við árið 1994 en aukning- una ber að skoða með fyrirvara. Hún á aðallega rætur að rekja til betri skýrsluskila en auk þess hefur eflaust verið vanáætlað á tjaldsvæði og skála árið 1994. 16. yfirlit. Áætlaður heildarfjöldi gistinátta eftir tegund gistingar 1986-1996 Summary 16. Estimated total number of overnight stays by type of accommodation 1986-1996 Þúsund Thous. Alls Total Hótel og gistiheimili Hotels and guesthouses Bænda- gististaðir Farm guesthouses Heimagisting Private-home accommo- dation Sumar- og smáhýsahverfi Summer-house accommo- dation Farfugla- heimili Youth hostels Svefnpoka- gisting Sleeping-bag accommo- dation Tjaldsvæði og skálar Camping sites and lodges 1986 821,6 533,8 7,2 0,9 32,2 12,9 234,6 1987 921,4 613,2 19,9 0,9 37,1 17,4 232,9 1988 929,3 594,8 22,9 0,8 35,5 19.3 256,0 1989 947,7 604,4 22,8 U 39,4 19,2 260,8 1990 1.028,5 645,0 39,0 1,0 37,3 24,2 282,0 1991 1.060,3 668,3 42,3 2,2 36,0 25,0 286,5 1992 1.025,7 662,9 54,1 3,5 31,1 28,9 245,2 1993 1.022,3 661,0 54,1 5,6 30,6 24,6 246,4 1994 1.182,4 745,3 82,2 7,5 34,8 25,2 287,4 1995 ’> 1.269,7 844,1 67,7 37,8 18,3 301,8 1996 2> 1.348,5 896,0 56,8 26,7 40,2 24,5 304,3 " Árið 1995 var flokki bændagististaða skiptannars vegar íhótel oggistiheimiii og hins vegarheimagististaði. Þeir bændagististaðir sem hafa 8 herbergi eða fleiri og/eða 16 rúm eða fleiri teljast nú til hótela og gistiheimila. Nánari skýringar í texta. In 1995farm guesthouses were reclassified as either hotels and guesthouses orprivate-home accommodation. Farrn guesthouses with at least 8 rooms and/or 16 beds are now classified as hotels or guesthouses, others as private-home accommodation. 21 Gisting í sumarhúsa- og smáhýsahverfum hefur verið aðgreind frá hinni hefðbundnu heimagistingu. Summer-house accommodation, c.f. notes lo Summary 8 has been classified separately from traditional private-home accommodation. 16. yfírlit sýnir heildarfjölda gistinátta í öllum tegundum gistingarárin 1986-1996. Gistinætur vom 1.348.500 árið 1996 og hafði þeim fjölgað um 6% frá árinu 1995 en þá var fjöldi þeirra 1.269.700. Gistinóttum í flokki hótela og gistiheimila fjölgaði um 6% frá árinu 1995 en ef litið er á aðrar tegundir gistingar en hótel og gistiheimili í heild sést að þar hefur gistinóttum fjölgað um rúm 6%. Minnstu breytingar 1995- 1996 vom í flokki tjaldsvæða og skála, gistinóttum fjölgaði um tæpt 1%, vom 301.800 árið 1995 en 2.500 fleiri árið 1996 eða 304.300. Hlutfall gistinátta á hótelum og gistiheimilum af heildarfjölda gistinátta var 65% árið 1986, 63% árið 1991 og 66% árið 1996. Hlutfall gistinátta í bænda-, heima- og sumarhúsagistingu hefur hækkað úr tæpu 1% árið 1986 í 4% árið 1991 ogí6%árið 1996. Á móti kemur fækkun gistinátta á tjaldsvæðum því þar hefur hlutfallið lækkað úr 28% árið 1986127% 1991ogí23% 1996. Ámynd9séstglöggthvemig gistinætur skiptast niður á hinar ýmsu tegundir gistingar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Gistiskýrslur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.