Gistiskýrslur - 01.04.1997, Side 28

Gistiskýrslur - 01.04.1997, Side 28
26 Gistiskýrslur 1996 Skýringar Töflur 1-7 innihalda tölur um gistinætur, gistirými og nýtingu þess, gestakomur og meðaldvalarlengd á hótelum og gistiheimilum. I fyrstu tveimur töflunum eru tölur um gistirými, annars vegar fyrir gististaði sem opnir eru allt árið og hins vegar sumargististaði. Gistirými gististaða sem opnir eru allt árið, sem birt er í töflu 1, er gistirými sumarmánaðanna, en þá er rýmið nokkuð meira en er á vetuma. I töflu 3 eru tölur um gistirými eftir ársþriðjung- um. Tölur um fjölda gistinátta, nýtingu gistirýmis og gestakoma er að fínna í töflum 4-6. Gististöðum er skipt í tvo flokka eftir stærð. Fyrri flokkurinn nær til hótela og gistiheimila með 1-59 rúm, sá síðari til þeirra með 60 rúm eða fleiri. Ekki þótti ráðlegt að hafa flokkana fleiri þar sem víða hefði einungis verið eitt eða tvö gistihús í flokki og þá ekki hægt að birta nýtingartölur fyrir þann flokk. Yfir vetrarmánuðina eru gististaðir í nokkrum landshlutum þó of fáir í öðrum hvorum flokknum til að hægt sé að birta sundurliðaðar nýtingartölur. Þeir lands- hlutar em merktir með stjörnu (*) fyrir viðkomandi mánuð. Hjá Hagstofunni er hægt að fá ítarlegri sundurliðun eftir stærð fyrir einstaka landshluta, sé skilyrðum fullnægt um fjölda í hverjum flokki. Töflur 8-10 sýna fjölda gistinátta, gestakoma og meðal dvalarlengd í annarri tegund gistingar en hótel eða gistiheimili. Með annarri tegund er átt við heimagistingu, sumarhús, farfuglaheimili, svefnpokagistingu, tjaldsvæði og skála. Tafla 11 hefur að geyma upplýsingar um gistinætur á heimagististöðum og í sumarhúsum. Arið 1995 var fyrst hægt að áætla heildartölur á heimagististöðum á lands- byggðinni og árið 1996 einnig á höfuðborgarsvæðinu. Sumarhúsagisting var talin með heimagistingunni þar sem eigendur heimagististaða voru ósjaldan með eitt eða fleiri sumarhús auk heimagistingarinnar og erfiðlega gekk að fá gistingu í sumarhúsum sundurliðaða frá hinni hefð- bundnu heimagistingu. Arið 1996 þótti sýnt að sumar- húsagisting væri á mörgum stöðum svo umfangsmikil að hana yrði að sundurliða sérstaklega. Því var farin sú leið við töfluhluta að flokka sérstaklega sumarhúsa- eða smáhýsahverfi þar sem sumarhúsin eru a.m.k. þrjú og gisting í sumarhúsum mun umfangsmeiri en í heimagistingunni ef hún er fyrir hendi. Til að auðvelda samanburð við fyrra ár eru niður- stöðurnar fyrir heimagistingu og sumarhús lagðar saman í töflunni og einnig sundurliðaðar fyrir hvora tegund um sig. • Töflur 12 og 13 innihalda upplýsingar um fjölda gistinátta á farfuglaheimilum. I fyrri töflunni er gistinóttum skipt eftir mánuðum og rikisfangi, þar er einnig sýnd hlutfallsleg skipting eftir ríkisfangi. I seinni töflunni er gistinóttum skipt eftir landshlutum. Suðurnesjum og Vesturlandi var slegið saman svo og Vestfjörðum og Norðurlandi vestra þar sem farfuglaheimili á þessum svæðum eru of fá til að hægt sé að birtar sundurliðaðar tölur fyrir hvert landsvæði fyrir sig. • Töflur 14 og 15 innihalda upplýsingar um gistinætur á svefnpokagististöðum Tölur ársins 1996 eru heildartölur. Fyrir árin 1994 og 1995 eru birtar skráðar gistinætur en þá voru skýrsluskil ekki nægilega góð til að hægt væri að áætla heildartölur. Engar gistinætur eru skráðar fyrir tímabilið október til desember. • Töflur 16-17 eru um tjald- og skálagistingu. Þær ná til áranna 1995 og 1996. Árið 1994 var ekki hægt að áætla heildartölur og er því sleppt hér þar sem tölurnar eru hvort eð er ekki sambærilegar við árin 1995 og 1996. • Töflur 18-20 hafa að geyma upplýsingar um gistinætur, gestakomur og meðal dvalarlengd í öllum tegundum gistingar samanlagt. Árið 1996 eru heildartölur fyrir allar tegundir gistingar. Árið 1995 eru heildartölur fyrir allar tegundir gistingar nema svefnpokagistingu og heima- gistingu á höfuðborgarsvæðinu og er heildarfjöldi gisti- nátta hér þvf nokkuð lægri en kemur fram í yfirliti 16 hér að framan. • I töflum 21 og 22 er að finna upplýsingar frá Utlendinga- eftirlitinu um fjölda ferðamanna til landsins. • Tafla 23 sýnir gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum og útgjöld íslendinga erlendis.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Gistiskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.