Gistiskýrslur - 01.06.1999, Blaðsíða 15
Gistiskýrslur 1998
13
heildarfjölda á hótelum og gistiheimilum árið 1995 og 54%
árið 1998. Norðurland eystra og Suðurland komu næst með
12-13% hlutdeild árin 1995 og 1998. Nokkrar breytingar
hafa verið á hlutfalli gistinátta útlendinga eftir landsvæðum
milli áranna 1995 og 1998. Á Suðurnesjum voru 82%
gistinátta tilkomnar vegan útlendinga árið 1995 en 70% árið
1998. Á Vestljörðum hækkaði hlutfall útlendinga úr 22%
árið 1995 í 37% árið 1997 en lækkaði aftur í 26% árið 1998.
Nýting gistirýmis lækkaði nánast undantekningalaust í
öllum mánuðum frá árinu 1985 og fram til ársins 1995.
Ástæða þess er sú að á sama tíma og gistinóttum hefur fjölgað
mikið hefur gistirými stóraukist. Árið 1994 er eins og
botninum hafi verið náð, mánuðina janúar-mars og október-
desember árið 1995 er nýting gistirýmis betri en árið áður.
Árið 1998 var nýting gistirýmis einnig betri mánuðina júní-
desember i samanburði við sömu mánuði árið 1995. Ástæður
þess að nýting gistirýmis er léleg yfir vetrar- og vormánuði
má einkum rekja til þess að opnunartími gististaða sem eru
ekki starfræktir allt árið hefur verið að lengjast. Margir
gististaðir sem áður voru opnir aðeins yfir hásumarið eru nú
einnig opnir vor og haust. Mynd 6 sýnir nýtingu herbergja
árin 1997 og 1998 en þar sést vel hve nýtingin er mun betri
tímabilið júlí-desember árið 1998 en árið 1997.
6. yfirlit. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum eftir landsvæðum 1995-1998
Summary 6. Overnight stays at hotels and guesthouses by region 1995—1998
Gistinætur alls, þús. Overnight stays, thous. Hlutfall útlendinga, % Foreigners, percent of total
1995 1996 1997 1998 1995 1996 1997 1998
Alls Total 844,1 896,0 991,7 1.100,7 70,9 71,0 70,7 71,9 Total
Höfuðborgarsvæði 447,2 470,2 504,3 593,7 84,0 83,6 82,5 83,4 Capital region
Suðumes 21,8 25,4 28,4 31,8 82,1 81,9 78,5 70,4 Southwest
Vesturland 48,7 48,9 58,2 57,4 49,1 52,4 53,6 57,0 West
Vestfirðir 19,8 23,0 24,2 24,2 22,2 23,0 37,2 26,4 Westfjords
Norðurland vestra 26,3 25,7 28,0 29,6 48,7 49,8 50,4 53,3 Northwest
Norðurland eystra 108,8 115,6 124,2 138,1 59,7 58,7 60,1 61,8 Northeast
Austurland 66,7 74,0 101,2 89,8 55,5 59,3 63,2 61,2 East
Suðurland 104,8 113,0 123,0 136,3 58,9 58,8 57,2 57,6 South
Mynd 6. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum eftir mánuðum árin 1995 og 1998
Figure 6. Overnight stays in hotels and guesthouses by month 1995 and 1998
1995
1998