Gistiskýrslur - 01.06.1999, Side 23

Gistiskýrslur - 01.06.1999, Side 23
Gistiskýrslur 1998 21 Fjöldi nœturgesta og meóuldvalarlengil. Íjúníárið 1995 var byrjað að safna upplýsingum um fjölda næturgesta. Tilgangur með talningu næturgesta er fyrst og fremst sá að afla upplýsinga um meðaldvalarlengd gesta en hún er mismunandi bæði eftir landsvæðum og ríkisfangi. Auk þess geta tölur um næturgesti gefið góða hugmynd um fjölda ferðamanna eftir einstökum svæðum. Meðaldvalarlengd er reiknuð með því að fjölda næturgesta er deilt upp í fjölda gistinátta. Þess ber að gæta að með dvalarlengd er átt við dvalarlengd á gististað en ekki lengd dvalar í landinu eða á ferðalagi. I yfirliti 17 kemur fram meðaldvalarlengd íslendinga og útlendinga á annars vegar hótelum og gistiheimilum og hinsvegar á öðrum gististöðum eftir landsvæðum árin 1996- 1998. Ekki hafa orðið miklar breytingar á dvalarlengd. Lengd dvalar útlendinga á hótelum og gistiheimilum á höfuðborgar- svæðinu, 2,5 nætur árið 1998, var áberandi lengri en dvalar- lengd annars staðar. 17. yfirlit. Meðaldvalarlengd eftir tegund gististaða og landsvæðum 1996-1998 Summary 17. Average length of stay by type of accommodation and region 1996-1998 Hótel og gistiheimili Hotel and guesthouses Aðrir gististaðir en hótel og gistiheimili Other accommodation than hotels or guesthouses íslendingar Icelanders Útlendingar Foreigners íslendingar Icelanders Útlendingar Foreigners 1996 1997 1998 1996 1997 1998 1996 1997 1998 1996 1997 1998 AUs Total 1,6 1,6 1,6 1,9 2,1 2,0 1,5 1,4 1,5 1,4 1,3 1,4 Höfuðborgarsvæði Capital region 2,1 1,9 2,0 2,5 2,7 2,5 1,9 1,9 2,0 1,8 1,5 1,7 Suðumes Southwest 1,2 1,3 1,3 1,3 1.4 1,6 1,5 1,1 1,5 1,2 1,3 1,2 Vesturland West 1,4 1,5 1,4 1,5 1,7 1,5 1,6 1,7 1,9 1,3 1,8 1,3 Vestfirðir Westfjords 1,6 1,6 1,5 1,6 1,3 1,4 1,4 1,4 1,2 1,3 1,2 1,4 Norðurland vestra Northwest 1,2 1,3 1,3 1,1 1,0 1,1 1,6 1,4 1,7 1,2 1,0 1,1 Norðurland eystra Northeast 1,7 1,6 1,6 1,7 1,8 1,6 1,6 1,3 1,6 1,5 1,3 1,3 Austurland East 1,5 1,4 1,4 1,3 1,2 1,2 1,4 1,3 1,5 1,2 1,1 1,3 Suðurland South 1,5 1,5 1,5 1,6 1,7 1,5 1,5 1,4 1,5 1,4 1,5 1,4 Heildarfjöldi gistinátta 1986-1998. Árið 1996 var í fyrsta skipti, samkvæmt öruggum heimildum, hægt að áætla heildartjölda gistinátta í öllum tegundum gistingar. Áætlun fjölda gistinátta á gististöðum sem ekki hafa sent Hagstofurmi gistiskýrslur er aðallega byggð á vitneskju um gistirými og nýtingu.Gistirými er þekkt á öllum gististöðum nema á svefnpokagististöðum og tjaldsvæðum enda er oft erfitt að gera sér grein fýrir gistirými á þeim stöðum. Áætlanir um gistingu á svefnpokagististöðum sem ekki berast skýrslur frá eru aðallega byggðar á samtölum t.d. við þá sem selja gistingu í félagsheimilum og skólum, ferðamálafulltrúa, starfsmenn sveitarfélaga og fleiri. Einnig er notast við eldri gögn þar sem þau eru til. Gistiskýrslur berast reglulega frá stærstu og tjölsóttustu tjaldsvæðunum og er áætlaður fjöldi gistinátta einungis u.þ.b. 5% af áætluðum heildartjölda. Áætlanir fyrir hálendisskála og tjaldsvæði eru, eins og áætlanir fyrir svefnpokagististaði, mest byggðar á samtölum við þá sem tengjast ferðaþjónustunni, einnig er stuðst við eldri gögn ef til eru. Árin 1986-1994 voru áætlanir fyrir hótel og gistiheimili, farfuglaheimili og bændagististaði gerðar á grundvelli gagna um ífamboð og nýtingu. Sama á við árið 1995 en þá var auk þess áætlað á heimagististaði með sama hætti. Fram til ársins 1996 bárust skýrslur frá helmingi skráðra svefnpoka- gististaða, lítið var vitað um þá staði sem ekki skiluðu skýrslum og því var farið varlega í gerð áætlana. Árin 1986- 1994 má ætla að gistitölur á tjaldsvæðum nái til u.þ.b. 75- 80% þeirra en heimtur skýrslna árin 1995 og 1996 voru mun betri. í ló.yfirlitikemurffamaðgistinóttumátjaldsvæðum og í skálum fjölgaði árið 1995 miðað við árið 1994 en aukninguna ber að skoða með fýrirvara. Hún á aðallega rætur að rekja til betri skýrsluskila, auk þess hefúr eflaust verið vanáætlað á tjaldsvæði og skála árið 1994. Heildarfjöldi gistinátta hefur aukist jafnt og þétt allt frá því gistináttatalning Hagstofunnar hófst. Frá árinu 1994 til ársins 1998 hefur gistinóttum fjölgað um 6-7% á ári og voru 1.541 þúsund árið 1998. Fjölgun gistinátta má að mestu rekja til hótela og gistiheimila en þar voru 71% allra gistinátta árið 1998. Gistinóttum á hótelum og gistiheimilum fjölgaði um 11% milli áranna 1997 og 1998. Gistinætur voru færri árið 1998 miðað við árið 1997 á heimagististöðum, svefnpokagististöðum og á tjaldsvæðum en fleiri á farfugla- heimilum, í orlofshúsabyggðum og í skálum. Yfirlit 18 sýnir heildarfjölda gistinátta frá árinu 1986. Eins og áður hefúr komið ffam var gerð nokkur breyting á flokkun gististaða árið 1995. Árið 1995 var 66% gistinátta bundin hótelum og gistiheimilumog21%tjaldsvæðum. Árið 1998eruhlutfollin 71% á hótelum og gistiheimilum og 16% á tjaldsvæðum. Val á gistingu hefúr því færst ffá tjaldsvæðum yfir í hærra þjónustustig s.s. hótel og gistiheimili.

x

Gistiskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.