Gistiskýrslur - 01.06.1999, Qupperneq 23
Gistiskýrslur 1998
21
Fjöldi nœturgesta og meóuldvalarlengil. Íjúníárið 1995
var byrjað að safna upplýsingum um fjölda næturgesta.
Tilgangur með talningu næturgesta er fyrst og fremst sá að
afla upplýsinga um meðaldvalarlengd gesta en hún er
mismunandi bæði eftir landsvæðum og ríkisfangi. Auk þess
geta tölur um næturgesti gefið góða hugmynd um fjölda
ferðamanna eftir einstökum svæðum. Meðaldvalarlengd er
reiknuð með því að fjölda næturgesta er deilt upp í fjölda
gistinátta. Þess ber að gæta að með dvalarlengd er átt við
dvalarlengd á gististað en ekki lengd dvalar í landinu eða á
ferðalagi. I yfirliti 17 kemur fram meðaldvalarlengd íslendinga
og útlendinga á annars vegar hótelum og gistiheimilum og
hinsvegar á öðrum gististöðum eftir landsvæðum árin 1996-
1998. Ekki hafa orðið miklar breytingar á dvalarlengd. Lengd
dvalar útlendinga á hótelum og gistiheimilum á höfuðborgar-
svæðinu, 2,5 nætur árið 1998, var áberandi lengri en dvalar-
lengd annars staðar.
17. yfirlit. Meðaldvalarlengd eftir tegund gististaða og landsvæðum 1996-1998
Summary 17. Average length of stay by type of accommodation and region 1996-1998
Hótel og gistiheimili Hotel and guesthouses Aðrir gististaðir en hótel og gistiheimili Other accommodation than hotels or guesthouses
íslendingar Icelanders Útlendingar Foreigners íslendingar Icelanders Útlendingar Foreigners
1996 1997 1998 1996 1997 1998 1996 1997 1998 1996 1997 1998
AUs Total 1,6 1,6 1,6 1,9 2,1 2,0 1,5 1,4 1,5 1,4 1,3 1,4
Höfuðborgarsvæði Capital region 2,1 1,9 2,0 2,5 2,7 2,5 1,9 1,9 2,0 1,8 1,5 1,7
Suðumes Southwest 1,2 1,3 1,3 1,3 1.4 1,6 1,5 1,1 1,5 1,2 1,3 1,2
Vesturland West 1,4 1,5 1,4 1,5 1,7 1,5 1,6 1,7 1,9 1,3 1,8 1,3
Vestfirðir Westfjords 1,6 1,6 1,5 1,6 1,3 1,4 1,4 1,4 1,2 1,3 1,2 1,4
Norðurland vestra Northwest 1,2 1,3 1,3 1,1 1,0 1,1 1,6 1,4 1,7 1,2 1,0 1,1
Norðurland eystra Northeast 1,7 1,6 1,6 1,7 1,8 1,6 1,6 1,3 1,6 1,5 1,3 1,3
Austurland East 1,5 1,4 1,4 1,3 1,2 1,2 1,4 1,3 1,5 1,2 1,1 1,3
Suðurland South 1,5 1,5 1,5 1,6 1,7 1,5 1,5 1,4 1,5 1,4 1,5 1,4
Heildarfjöldi gistinátta 1986-1998. Árið 1996 var í fyrsta
skipti, samkvæmt öruggum heimildum, hægt að áætla
heildartjölda gistinátta í öllum tegundum gistingar. Áætlun
fjölda gistinátta á gististöðum sem ekki hafa sent Hagstofurmi
gistiskýrslur er aðallega byggð á vitneskju um gistirými og
nýtingu.Gistirými er þekkt á öllum gististöðum nema á
svefnpokagististöðum og tjaldsvæðum enda er oft erfitt að
gera sér grein fýrir gistirými á þeim stöðum. Áætlanir um
gistingu á svefnpokagististöðum sem ekki berast skýrslur
frá eru aðallega byggðar á samtölum t.d. við þá sem selja
gistingu í félagsheimilum og skólum, ferðamálafulltrúa,
starfsmenn sveitarfélaga og fleiri. Einnig er notast við eldri
gögn þar sem þau eru til. Gistiskýrslur berast reglulega frá
stærstu og tjölsóttustu tjaldsvæðunum og er áætlaður fjöldi
gistinátta einungis u.þ.b. 5% af áætluðum heildartjölda.
Áætlanir fyrir hálendisskála og tjaldsvæði eru, eins og
áætlanir fyrir svefnpokagististaði, mest byggðar á samtölum
við þá sem tengjast ferðaþjónustunni, einnig er stuðst við
eldri gögn ef til eru.
Árin 1986-1994 voru áætlanir fyrir hótel og gistiheimili,
farfuglaheimili og bændagististaði gerðar á grundvelli gagna
um ífamboð og nýtingu. Sama á við árið 1995 en þá var
auk þess áætlað á heimagististaði með sama hætti. Fram til
ársins 1996 bárust skýrslur frá helmingi skráðra svefnpoka-
gististaða, lítið var vitað um þá staði sem ekki skiluðu
skýrslum og því var farið varlega í gerð áætlana. Árin 1986-
1994 má ætla að gistitölur á tjaldsvæðum nái til u.þ.b. 75-
80% þeirra en heimtur skýrslna árin 1995 og 1996 voru mun
betri. í ló.yfirlitikemurffamaðgistinóttumátjaldsvæðum
og í skálum fjölgaði árið 1995 miðað við árið 1994 en
aukninguna ber að skoða með fýrirvara. Hún á aðallega rætur
að rekja til betri skýrsluskila, auk þess hefúr eflaust verið
vanáætlað á tjaldsvæði og skála árið 1994.
Heildarfjöldi gistinátta hefur aukist jafnt og þétt allt frá
því gistináttatalning Hagstofunnar hófst. Frá árinu 1994 til
ársins 1998 hefur gistinóttum fjölgað um 6-7% á ári og voru
1.541 þúsund árið 1998. Fjölgun gistinátta má að mestu rekja
til hótela og gistiheimila en þar voru 71% allra gistinátta
árið 1998. Gistinóttum á hótelum og gistiheimilum fjölgaði
um 11% milli áranna 1997 og 1998. Gistinætur voru færri
árið 1998 miðað við árið 1997 á heimagististöðum,
svefnpokagististöðum og á tjaldsvæðum en fleiri á farfugla-
heimilum, í orlofshúsabyggðum og í skálum. Yfirlit 18 sýnir
heildarfjölda gistinátta frá árinu 1986. Eins og áður hefúr
komið ffam var gerð nokkur breyting á flokkun gististaða
árið 1995. Árið 1995 var 66% gistinátta bundin hótelum og
gistiheimilumog21%tjaldsvæðum. Árið 1998eruhlutfollin
71% á hótelum og gistiheimilum og 16% á tjaldsvæðum.
Val á gistingu hefúr því færst ffá tjaldsvæðum yfir í hærra
þjónustustig s.s. hótel og gistiheimili.