Gistiskýrslur - 01.07.2001, Side 5

Gistiskýrslur - 01.07.2001, Side 5
Formáli Gistiskýrslur 2000 er áttunda rit Hagstofu íslands um niður- stöður talningar á gistinóttum og gestakomum á gististöðum í landinu. Hagstofan hóf reglubundna söfnun upplýsinga um framboð á gistirými og fjölda gistinátta á gististöðum í júní 1984. Söfnunin hefur tekið til allrar seldrar gistiþjónustu, að orlofs- húsum félagasamtaka undanskildum. Arið 1995 var byrjað að afla upplýsinga um gestafjölda auk gistinátta í því skyni að kanna meðallengd dvalar á gististað. Skýrsluskil frá hótelum, gistiheimilum, farfuglaheimilum og orlofshúsabyggðum hafa verið góð og sama má segja um flest vinsælustu tjaldsvæðin. Eigendur nýaa gististaða eru greinilega vel upplýstir um mikilvægi gagnasöfttunarinnar því frá þeim hafa gistiskýrslur yfirleitt borist fljótt og vel. Skýrslu- skil seljenda annarrar gistiþjónustu voru viðunandi á síðasta ári en kostuðu þó tímafrekan eftirrekstur. Arið 1996 var í fyrsta skipti hægt að áætla heildafjölda gistinátta fyrir allar tegundir gististaða sem gistináttatalningin nær til. Af samtölum við þá sem ekki skila skýrslum hefur ósjaldan komið í ljós að þeir telja starfsemi sína svo veigalitla að ekki svari fyrirhöfninni að útbúa skýrslur. Þessar upplýsingar eru engu að síður mikilvægar því Hagstofunni er ekki kunnugt um annað en að gististaðurinn sé opinn og í fullum rekstri. Fáir gestgjafar hika nú orðið við að senda Hagstofunni upplýsingar um gistinætur enda er þeim greinilega vel kunnugt um að með allar upplýsingar sem Hagstofan safnar til hag- skýrslugerðar og varða einstaka rekstraraðila, er farið sem trúnaðarmál. Meginregla Hagstofunnar er að hagskýrslu- upplýsingar, er varða einstaklinga eða fyrirtæki, eru aldrei lámar öðrum í té, hvorki opinberum aðilum né einkaaðilum, og eru aðeins birtar samandregnar í töfluyfirlitum. Töflugerðin miðast við það að upplýsingamar verði ekki raktar beint eða óbeint til einstakra aðila. Þá má benda á að upplýsingar þær sem gestgjafar láta Hagstofu Islands í té koma ekki síst þeim sjálfum til góða við skipulagningu starfseminnar og markaðs- rannsóknir. Á Hagstofunni hafa Þórarinna Söebech og Magnús Bergmann haft umsjón með öflun og úrvinnslu gistiskýrslna, en ásamt þeim hefur Sigrún Sigurjónsdóttir unnið að söfnun og úrvinnslu. Þórarinna Söebech sá um gerð þessa rits og umbrot annaðist Sigurborg Steingrímsdóttir. Hagstofu íslands í júlí 2001 Hallgrímur Snorrason Preface Tourist Accommodation 2000 is the eighth report issued by Statistics Iceland on the subject. In June 1984 Statistics Ice- land began collecting data on a regular basis on the supply and use of tourist accommodation. The data collection ex- tended to ovemight stays and arrivals in all types of tourist accommodation with the exception of trade-union summer houses. In 1995 the data collection was extended to cover guest arrivals in order to acquire information on average length of stay. Response rates from hotels and guesthouses, youth hos- tels and summer houses have been very satisfactory and the same applies to the most popular camping sites. The data collection from other purveyors of tourist accommodation proved more time consuming but rendered satisfactory fi- nal response rates. Owners of new tourist accommodation have tumed out to be well informed of the importance of tourist accommodation statistics and have responded well to requests for data. On the whole, the data collection has improved and coverage has increased appreciably. In 1996 it became possible for the first time to make an estimate of the number of ovemight stays for all types of accommoda- tion covered by the tourist accommodation statistics. At Statistics Iceland, Þórarinna Söebech and Magnús Bergmann have been in charge of the collection of tourist accommodation reports and the subsequent data process- ing. Sigrún Sigurjónsdóttir assisted them in collecting the reports. Þórarinna Söebech edited this publication and the lay-out was in the hands of Sigurborg Steingrímsdóttir. Statistics Iceland in July 2001 Hallgrímur Snorrason

x

Gistiskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.