Gistiskýrslur - 01.07.2001, Page 5
Formáli
Gistiskýrslur 2000 er áttunda rit Hagstofu íslands um niður-
stöður talningar á gistinóttum og gestakomum á gististöðum
í landinu.
Hagstofan hóf reglubundna söfnun upplýsinga um framboð
á gistirými og fjölda gistinátta á gististöðum í júní 1984.
Söfnunin hefur tekið til allrar seldrar gistiþjónustu, að orlofs-
húsum félagasamtaka undanskildum. Arið 1995 var byrjað
að afla upplýsinga um gestafjölda auk gistinátta í því skyni að
kanna meðallengd dvalar á gististað.
Skýrsluskil frá hótelum, gistiheimilum, farfuglaheimilum
og orlofshúsabyggðum hafa verið góð og sama má segja um
flest vinsælustu tjaldsvæðin. Eigendur nýaa gististaða eru
greinilega vel upplýstir um mikilvægi gagnasöfttunarinnar því
frá þeim hafa gistiskýrslur yfirleitt borist fljótt og vel. Skýrslu-
skil seljenda annarrar gistiþjónustu voru viðunandi á síðasta
ári en kostuðu þó tímafrekan eftirrekstur. Arið 1996 var í fyrsta
skipti hægt að áætla heildafjölda gistinátta fyrir allar tegundir
gististaða sem gistináttatalningin nær til. Af samtölum við þá
sem ekki skila skýrslum hefur ósjaldan komið í ljós að þeir
telja starfsemi sína svo veigalitla að ekki svari fyrirhöfninni
að útbúa skýrslur. Þessar upplýsingar eru engu að síður
mikilvægar því Hagstofunni er ekki kunnugt um annað en að
gististaðurinn sé opinn og í fullum rekstri.
Fáir gestgjafar hika nú orðið við að senda Hagstofunni
upplýsingar um gistinætur enda er þeim greinilega vel kunnugt
um að með allar upplýsingar sem Hagstofan safnar til hag-
skýrslugerðar og varða einstaka rekstraraðila, er farið sem
trúnaðarmál. Meginregla Hagstofunnar er að hagskýrslu-
upplýsingar, er varða einstaklinga eða fyrirtæki, eru aldrei
lámar öðrum í té, hvorki opinberum aðilum né einkaaðilum,
og eru aðeins birtar samandregnar í töfluyfirlitum. Töflugerðin
miðast við það að upplýsingamar verði ekki raktar beint eða
óbeint til einstakra aðila. Þá má benda á að upplýsingar þær
sem gestgjafar láta Hagstofu Islands í té koma ekki síst þeim
sjálfum til góða við skipulagningu starfseminnar og markaðs-
rannsóknir.
Á Hagstofunni hafa Þórarinna Söebech og Magnús
Bergmann haft umsjón með öflun og úrvinnslu gistiskýrslna,
en ásamt þeim hefur Sigrún Sigurjónsdóttir unnið að söfnun
og úrvinnslu. Þórarinna Söebech sá um gerð þessa rits og
umbrot annaðist Sigurborg Steingrímsdóttir.
Hagstofu íslands í júlí 2001
Hallgrímur Snorrason
Preface
Tourist Accommodation 2000 is the eighth report issued by
Statistics Iceland on the subject. In June 1984 Statistics Ice-
land began collecting data on a regular basis on the supply
and use of tourist accommodation. The data collection ex-
tended to ovemight stays and arrivals in all types of tourist
accommodation with the exception of trade-union summer
houses. In 1995 the data collection was extended to cover
guest arrivals in order to acquire information on average
length of stay.
Response rates from hotels and guesthouses, youth hos-
tels and summer houses have been very satisfactory and the
same applies to the most popular camping sites. The data
collection from other purveyors of tourist accommodation
proved more time consuming but rendered satisfactory fi-
nal response rates. Owners of new tourist accommodation
have tumed out to be well informed of the importance of
tourist accommodation statistics and have responded well
to requests for data. On the whole, the data collection has
improved and coverage has increased appreciably. In 1996
it became possible for the first time to make an estimate of
the number of ovemight stays for all types of accommoda-
tion covered by the tourist accommodation statistics.
At Statistics Iceland, Þórarinna Söebech and Magnús
Bergmann have been in charge of the collection of tourist
accommodation reports and the subsequent data process-
ing. Sigrún Sigurjónsdóttir assisted them in collecting the
reports. Þórarinna Söebech edited this publication and the
lay-out was in the hands of Sigurborg Steingrímsdóttir.
Statistics Iceland in July 2001
Hallgrímur Snorrason