Útvegur - 01.09.2002, Side 17

Útvegur - 01.09.2002, Side 17
Aðferðir og hugtök 15 1. Aðferðir og hugtök 1. Methods and concepts Hagstofa íslands gefur nú út ársritið Útveg í fjórða sinn. Að þessu sinni er gerð grein fyrir sjávarútveginum á árinu 2001. Grunnskipulag Úh’egs 2001 er það sama og í Útvegi 2000. Leitast er við að hafa samspil texta, mynda og taflna þannig úr garði gert að ritið sé í raun ársskýrsla um sjávar- útveg sem innhaldi helstu lykilupplýsingar. Itarlegri vitneskja, t.d. um einstaka verkunarstaði, er að finna á sam- nefndum geisladiski og á heimasíðu Hagstofunnar. Þess er vænst að ritið nýtist áhugamönnum um íslenskan sjávar- útveg, jafnt leikum sem lærðum. 1.1 Heimildir 1.1 Sources Megnið af þeim tölum sem birtar eru í ritinu eru fengnar úr vigtarskýrslum og ráðstöfunarskýrslum og annast Fiskistofa söfnun þeirra. Öllum fiskkaupendum og/eða fiskverkendum, þ.m.t. fiskmörkuðum og vinnsluskipum ber skylda til að skila Fiskistofu útfylltum vigtar- og ráðstöfunarskýrslum fyrir hvem mánuð ársins, sbr. 2. mgr. 12. gr. laga nr. 57/ 1996. Fiskistofa skráir og yfirfer skýrslumar og sendir niðurstöður þeirra til Hagstofunnar til frekari úrvinnslu. Vigtarskýrslur innihalda upplýsingar um aflakaup. Þar kemur m.a. fram nafn fiskkaupanda, númer skráningar o.fl. ásamt öllum nauðsynlegum upplýsingum um keyptan afla, svo sem fisktegund, stærðarflokkun, gæðaflokkun, magn og verð. Ein skýrsla er gerð fyrir hvert skip sem keypt er af og nær skýrslan í flestum tilfellum yfir mánaðarviðskipti fiskkaupandans við skipið, tilgreind eftir dögum. Fiskkaup- andi útbýr vigtarskýrsluna og sendir Fiskistofu sem sér um skráningu hennar. Vigtarskýrslur eru sendar rafrænt eða eftir hefðbundnum leiðum. Við opinbert eftirlit sjávarafurða er leitast við að fylgja afla eftir, allt frá því að hann er veiddur og þar til búið er að vinna hann og afurðirnar komnar í hendur kaupenda. Hluti af eftirlitinu felst í því að fylgjast með vinnslu afla og myndun afurða hjá framleiðendum. I núverandi skipulagi fer þetta eftirlit þannig fram að framleiðendur (aflakaup- endur) senda Fiskistofu skýrslu um ráðstöfun afla. Ráðstöfunarskýrslur eru sendar Fiskistofu mánaðarlega. Greint er frá afla sem var til ráðstöfunar í hverjum mánuði og hvernig honum var ráðstafað. Afli til ráðstöfunar saman- stendur af birgðum í upphafi tímabils ásamt fiskkaupum samkvæmt vigtarskýrslum. Afli til ráðstöfunar er annað hvort unninn eða seldur óunninn. Því verður það aflamagn sem til ráðstöfunar er að vera jafnt því aflamagni sem er verkað eða selt óunnið. Ráðstöfunarskýrsla sýnir hvaða verkun aflinn fær. Hins vegar er ekki hægt að sjá á ráð- stöfunarskýrslu hvaða afurðir verða til hjá framleiðendum. f stuttu máli veita vigtarskýrslumar upplýsingar um allan afla upp úr sjó en ráðstöfunarskýrslurnar segja til um vinnsluaðferð hans. Fjölmargar upplýsingar sem birtast í Utvegi eru frá Hagstofu Islands, t.d. upplýsingar um starfsfólk í sjávar- útvegi og tölur um útflutning. Skipaskrá Siglingastofnunar íslands er notuð við gerð taflna um fiskiskipastólinn, Landssamband smábátaeigaenda leggur til upplýsingar um grásleppuafla og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) gögn um heimsafla og skiptingu hans eftir löndum og veiðisvæðum. Alþjóða hafrannsóknar- ráðið (ICES) veitti upplýsingar um veiðar erlendra skipa við ísland. Eins og fyrr sagði varðveitir Fiskistofa ráðstöfunar- og vigtarskýrslur. Upplýsingar um fjármuna- myndun og fjármunaeign í veiðum og vinnslu eru fengnar frá Þjóðhagsstofnun. 1.2 Skýringar 1.2 Explanatory notes Allur afli í ritinu er umreiknaður í óslægðan afla (fisk upp úr sjó) og skiptir þá ekki máli í hvaða ástandi honum er landað. Reiknistuðlar fyrir ákveðnar fisktegundir eru gefnir upp í töflu 1.1. aftar í þessum kafla. Verðmætatölur eru vergar (brúttótölur) nema annað sé tilgreint. Afli sem seldur er á markaði, hvort heldur sem er innanlands eða utan, er tilgreindur á söluverði. Verðmæti selds afla erlendis miðast við gengi á söludegi. Kafli 2 fjallar um fjármunamyndun í sjávarútvegi. Fjár- munamyndun er skilgreind sem eignfærð útgjöld fyrirtækja og opinberra aðila en fjármunaeign sýnir verðmæti fram- leiðslufjármuna í lok hvers árs. Upplýsingar um fjármuna- myndun og fjármunaeign eru fengnar frá Þjóðhagsstofnun. Þriðji kafli, um vinnuafl í sjávarútvegi, er að öllu leyti unninn upp úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. I kaflanum koma fram upplýsingar um fjölda starfandi, starfsaldur, vinnustundirog stéttarfélagsþátttöku starfsfólks í atvinnugreininni sjávarútvegi. Með sjávarútvegi er bæði átt við fiskveiðar og fiskvinnslu. Litið er svo á að við fisk- veiðar starfi bæði sjómenn sem og þeir sem starfa í landi við útgerð. Meðfiskvinnsluerátt við vinnslu ílandi. Fiskvinnsla um borð í fiskiskipum telst því til fiskveiða. Fjöldi starfandi í sjávarútvegi er áætlaður heildarfjöldi starfandi manna. Vinnustundir eru unnar klukkustundir. Með starfsaldri er átt við tímann frá því fólk hóf störf í tilgreindu fyrirtæki fram til viðmiðunarmánaðar. Með stéttarfélagi er átt við við hagsmunafélag launþega sem á sjálfstæða aðild að kjarasamningi í samræmi við lög um stéttarfélög og vinnu- deilur (nr. 80/1938) og lög um opinbera starfsmenn (nr. 94/ 1986). Svarendur í vinnumarkaðsrannsókn eru sjálfir látnir meta hvort þeir séu félagsmenn í stéttarfélagi eða ekki og þannigermæld stéttarfélagsþátttaka. Viðmiðunarvika byrjar á laugardegi og er síðasta heila vikan áður en viðtal fer fram. I fjórða kafla er fjallað um fiskiskipastól Islendinga. Fiskiskipastóllinn samanstendur af opnum fiskihátum, vélskipum og togurum. Opnir fiskibátar eru fiskibátar sem ekki eru með heilt, vatnsþétt þilfar. Þilfarsskip eru skip sem eru smíðuð með heilt, vatnsþétt þilfar stafna á milli sem aðeins errofið með vatnsþéttum yfirbyggingum. Þilfarsskip
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236

x

Útvegur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvegur
https://timarit.is/publication/1384

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.