Útvegur - 01.09.2002, Side 19

Útvegur - 01.09.2002, Side 19
Aðferðir og hugtök 17 hvemig aflanum er landað, í hvaða ástandi aflinn er og til hvaða nota hann er ætlaður. Löndunartegundir eru eftir- farandi: • Til vinnslu innanlands. Utgerð selur aflann beint til vinnslustöðvar. • I gáma til útflutnings. Afla er landað ferskum í gám sem sendur er til útlanda. • Landað erlendis til brœðslu. Afla er landað erlendis þar sem hann fer til bræðslu. ■ Sjófryst. Afli sem er frystur um borð. • Sjófryst til endurvinnslu innanlands. Afli sem er sjófrystur en fer síðan til endurvinnslu innanlands. • A markað til vinnslu innanlands. Afli sem seldur er í gegnum uppboðsmarkað innanlands og er unninn innan- lands. • A markað, í gáma til útflutnings. Afli sem seldur er í gegnum uppboðsmarkað innanlands og fer síðan í gám til útflutnings (og er unninn í útlöndum). • Sjósaltað. Afli sem er saltaður um borð. • Selt úr skipi erlendis. Skip sigla sjálf og selja aflann erlendis. Greint er á milli vinnslutegunda eftir vinnsluaðferð aflans innanlands og eftir flutningsaðferðinni við að koma honum í vinnslu erlendis. Vinnslutegundir eru eftirfarandi: • Landfrysting. Afli er frystur í vinnslustöð. • Sjófrysting. Afli er frystur um borð. • Söltun. Afli er saltaður í vinnslustöð. ■ Hersla. Afli er hertur til útflutnings (skreið). • Brœðsla. Afli er unninn í mjöl og lýsi. • Niðursuða. Afli er niðursoðinn í niðursuðuverksmiðju. ■ Reyking. Afli er reyktur. • Innanlandsneysla. Afli fer til neyslu innanlands. • Útfluttflatt. Afli er flattur og fluttur út ferskur í gámum. ■ Isfiskur. Afli sem landaður er í erlendri höfn (úr skipinu sem veiddi hann). • Gámar. Ferskur afli sem sendur er til útlanda í gámum og er seldur þar. • Isað í flug. Ferskur afli sem sendur er til útlanda með flugi, heill eða í flökum. í töflu 6.10 koma fyrir eftirfarandi tegundir ráðstöfunar, þar sem greint er á milli ráðstöfunar landaðs afla eftir tegund löndunar: • Verkað innanlands. Afli sem er verkaður innanlands er samtala afla sem er landaður „til vinnslu innanltuids" og afla sem fer á „markað til vinnslu innanlands". • Þar af í heimahöfn. Hér er átt við afla sem verkaður er innanlands en er landaður og unninn í heimahöfn. Með heimahöfn er átt við heimahafnir skipanna sem landa aflanum. Við útreikning á þessum afla er tekið tillit til tilfærslu skipa milli hafna með því að reikna aflann fyrir hvem mánuð ársins. • Landað unnið. Afli sem er landaður unninn er samtala afla sem landaður er „sjófrystur“, „sjófrystur til endur- vinnslu innanlands" og “sjósaltaður”. • Landað erlendis. Afli sem er landaður erlendis er samtala afla sem er „seldur úr skipi erlendis“ og afla sem er „andað erlendis til bræðslu“. • Gámafiskur. Gámafiskur er afli sem landaður er „í gáma til útflutnings" og afli sem fer „á markað, í gáma til útflutnings". í 5. kafla er afla íslenskra fiskiskipa skipt niður á kvóta- flokka skipanna. Kvótaflokkamir eru skilgreindir í lögum nr. 38/1990 um stjóm fiskveiða. Flokkamir eru: togarar, skip með aflamark, smábátar með aflamark, þorskafla- hámarksbátar, línu- og handfærabátar, handfærabátar, smábátar með sóknardaga og krókaaflamarksbátar. Ósamræmi er milli einstakra taflna um afla í fimmta og sjötta kafla. Þetta stafar af því að töflurnar eru unnar úr tveimur meginskrám (vigtarskýrslum og ráðstöfunar- skýrslum).Mismunurmilliþessaratveggjaskráaertæknilegs eðlis og má segja að hann stafi af eftirfarandi: a) í ráðstöfunarskýrslunum er miðað við vinnslustað en ekki löndunarstað afla. Þegar fyrsti kaupandi fisks selur hluta aflans í annað sveitarfélag kemur fram misræmi milli gagna úr vigtarskýrslum og ráðstöfunarskýrslum. Dæmi: Vinnslustöð í Grindavík kaupir 10 tonn af bát. Þau viðskipti eru skráð á kaupandann í Grindavík. Ef hann selur síðan t.d. vinnslustöð í Keflavík 2 tonn af þessum afla, skráist vinnslan á þessum tveimur tonnum í Keflavík. Þetta hefur í för með sér að í ráðstöfunarskýrslu er skráður afli bæði í Grindavík (8 tonn) og í Keflavík (2 tonn). Viðskiptin milli upphaflegs kaupanda og báts (10 tonn) sem fram koma í vigtarskýrslu eru hins vegar eingöngu skráð í Grindavík. b) Hafi afla ekki verið ráðstafað í ákveðna vinnslu er hann talinn til birgða um mánaðamót. Þvíkemur fram mismunur milli þessara skráa í samanburði á mánuðum og stafar það af birgðabreytingum. c) Tilfærsla milli tegunda getur orðið við að afli er ekki vandlega tegundagreindur. Við vigtun koma stundum í ljós tegundir sem ekki eru skráðar í viðskiptum báts og stöðvar. Oftast er um óverulegt magn að ræða. d) í einstaka tilfellum verður rýmun á magni frá frumsölu til vinnslu. e) Afli er í flestum tilfellum skráður í tonnum og verð í þúsundum króna. Einhver munur kemur fram þegar tölur eru hækkaðar eða lækkaðar í næstu heilu tölu. í 7. kafla er gerð grein fyrir útflutningi sjávarafurða. Upplýsingar um útfluttar sjávarafurðir koma frá Utanríkis- verslun Hagstofunnar. Þar hefur verið unnið að endurskoðun og breytingum á því flokkunarkerfi sem lagt er til gmndvallar. Tölur yfir útflutning sem birtar eru í Utvegi eru hinar sömu og Utanríkisverslun Hagstofunnar birtir. Samkvæmt þessari flokkun eru niðursoðnar sjávarafurðir nú flokkaðar sem iðnararvara. Þessi endurskoðun þýðir að töflur 7.4 og 7.5 (á geisladiski) innihalda ekki upplýsingar um sjávarafurðir í loftvörðum umbúðum. Einnig gildir að upplýsingar um árin 2000 og 2001 í töflu 7.3, myndum 7.1 - 7.3 og mynd 7.9, eru unnar skv. þessari breyttu skilgreiningu. Fyrir þá sem kynnu að sakna þess að niðursoðnar sjávarafurðir eru undanskildar, skal bent á að í töflum 7.1 og 7.2 er sérstakur dálkur þar sem gerð er grein fyrir magni og virði niðursoðinna afurða aftur til ársins 1979. Samtölurþessarrataflnaeruþví aðrar, en í töflum 7.3 - 7.5, fyrir árin 2000 til 2001. Stefnt er að því að flokka eldri gögn með þessari nýju aðferð og verða töflur þá endurskoðaðar m.t.t. þess. Sem nýmæli í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236

x

Útvegur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvegur
https://timarit.is/publication/1384

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.