Sveitarstjórnarkosningar - 01.03.1999, Síða 20

Sveitarstjórnarkosningar - 01.03.1999, Síða 20
18 Sveitarstjórnarkosningar 1998 fy rst og fremst skipt máli þar sem birtar eru tölur fyrir einstök sveitarfélög. Það er miður að ekki skuli nást fullkomnar skýrslur alls staðar að, því að líta verður á það sem óaðskiljanlegan hluta af lýðræðislegri kosningu til sveitarstjómar að greina frá framkvæmd hennar og niðurstöðum í opinberri skýrslu. 4. Almennt yflrlit yfir sveitarstjórnarkosningar 1930- 1998 4. General overview oflocal government elections 1930- 1998 I 1. yfirliti eru sýndar helstu niðurstöður úr skýrslum Hag- stofunnar um sveitarstjórnarkosningar 1930-1998. Arið 1929 var lögum um kosningar í málefnum sveita og kaupstaðafrál92637 breyttþannigaðfrájanúarmánuði 1930 skyldi kjósa fulla tölu bæjarfúlltrúa í öllum kaupstöðum landsins, en eldri umboð falla niður. Skyldu svo kosningar fara fram í janúarmánuði fjórða hvert ár á öllum bæjar- fúlltrúum og vera hlutfallskosningar. Áður hafði kosningar- tími ekki verið sá sami í einstökum kaupstöðum og einungis kosið um hluta fúlltrúasætanna hverju sinni. Eftir sem áður var kosið effir gamla laginu í hreppunum, um helmingur fulltrúa kjörinn á þriggja ára fresti til sex ára hver fúlltrúi, og kosning fór fram í heyranda hlj óði nema hreppsnefnd ákvæði leynilega kosningu eða '/6 hluti kjósenda krefðist hennar. I lögum um sveitarstjómarkosningar frá 1936 var ákveðið, að kjósa skyldi í kaupstöðum og kauptúnahreppum síðasta sunnudag í janúarmánuði, en í öðrum hreppum síðasta sunnudag í júnímánuði,38 og skyldu allar sveitarstjómar- kosningar vera leynilegar. Sveitarstjómarlög frá 196139 og lög um sveitarstjórnar- kosningar frá 196240 tóku við af lögunum frá 1936, og giltu til 1986. Kosningarréttur til sveitarstjórnar hefúr verið rýmkaður nokkrum sinnum síðan 1930. Kosningaraldur var 21 ár í kosningunum 1930-1966,41 20 ár í kosningunum 1970- 198242 og 18árfrá 1986.43 Skilyrði lagannafrá 1929 um að maður skyldi hafa átt lögheimili í sveitarfélaginu síðasta árið íyrir kjördag og að maður mætti ekki standa í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk vegna leti, óreglu eða hirðuleysis sjálfs sín,44 vomfelld niður 1936.4S Skilyrði um óflekkað mannorð var fellt niður með sveitarstjórnarlögunum frá 1961. Ríkis- borgarar annars staðar af N orðurlöndum fengu kosningarrétt 37 Lög nr. 42/1926, sbr. lög nr. 23/1929. Eftir breytingu gefm út sem lög nr. 59/1929. 38 4. gr. laga nr. 81/1936. 3’ Lögnr. 58/1961. ,0 Lögnr. 5/1962. 41 1. mgr. 1. gr. laga nr. 59/1929. 42 1. mgr. 18. gr. laga nr. 58/1961, sbr. 1. gr. laga nr. 81/1967. 43 l.mgr. 19. gr.laganr. 8/1986. 44 í lögum nr. 42/1926 var meðal skilyrða fyrir kosningarrétti að standa ekki í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk. Það að þessu ákvæði var breytt í lögum nr. 23/1929áþannvegað kosningarréttur yrði háður því að „standa ekki í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk vegna leti, óreglu eða hirðuleysis sjálfs sín“ þýddi að kosningarréttur var rýmkaður vegna þess að ef skuldin var orðin til af öðrum ástæðum olli það ekki lengur missi kosningarréttar í sveitarstjómar- kosningunum 1930. 45 6. gr. laga nr. 81/1936. til sveitarstjórnar árið 1982 ef þeir höfðu átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt miðað við 1. desember næstan fyrir kjördag.46 Skilyrði um að maður væri ekki sviptur lögræði til þess að eiga kosningarrétt féll niður 1986.47 í 1. yfirliti sést að kjósendum á kjörskrá á öllu landinu hefúr fjölgað um 184% ffá 1938, er skýrslumar ná fyrst til landsins alls. Þar sést líkahvehlutfallkjósenda afíbúatölunni hefur breyst á tímabilinu. Því veldur að nokkm leyti rýmkun kosningarréttar, einkum lækkun kosningaraldurs 1986, en breytt aldursskipting þjóðarinnar skiptir miklu máli. Lækkandi hlutfall eftir miðja öldina endurspeglar tiltölulega fámenna árganga sem ná kosningaraldri, vegna þess að fæðingum fækkaði á ljórða áratugnum, ogmikinnbamafjölda á sjötta áratugnum þegar fæðingum hafði fjölgað stórlega. Eftir 1970 hefúr svo til allur vöxtur mannfjöldans orðið við fjölgun fólks ákosningaraldri en fjöldi bama hefúr haldist að heita má óbreyttur. Kosningaþátttaka hefúr alltaf verið minni í kosningum til sveitarstjómar en til Alþingis, sérstaklega þar sem kosið er óbundinni kosningu til sveitarstjómar. Mest hefúr þátttakan á öllu landinu verið 1974, en þá og 1978 var kosið til hrepps- nefnda í öðrum hreppum en kauptúnahreppum samtímis alþingiskosningum svo að fleiri gerðu sér erindi á kjörfúnd en endranær. Ikaupstöðumhefúrþátttakanyfirleittveriðtiltölulega mikil og mest varð hún 1958, 90,0%. I sveitarfélögum með 1.000 íbúa og fleiri var þátttakan 82,1% 1998. Á því tímabili sem tölur eru til fyrir, 1974-1998, urðu frambjóðendur þar sem var bundin hlutfallskosning flestir árið 1986, 3.853 eða2,6%kjósendaákjörskráíviðkomandi sveitarfélögum. Tala þeirra 1998, 2.740, svarar á sama hátt til l,4%afkjósendatölunni. Hlutfallkvennaáframboðslistum hefur verið eftirfarandi: 1974 22,0% 1990 38,0% 1978 30,8% 1994 36,9% 1982 36,5% 1998 38,0% 1986 36,5% Tölur um karla og konur í sveitarstjómum ná aftur til 1950. Þá vom 1.136 karlar kosnir og 7 konur. Hlutfall kvenna í sveitarstjómum hefúr síðan verið sem hér segir: 1950 0,6% 1978 6,1% 1954 0,4% 1982 12,5% 1958 1,0% 1986 19,2% 1962 1,0% 1990 21,8% 1966 1,6% 1994 24,8% 1970 2,4% 1998 28,2% 1974 3,6% í sveitarstjórnarkosningum hefur framboðum stjórnmála- flokkanna verið hagað með síbreytilegum hætti og mikið um framboð annarra aðila og stjómmálaflokka í samstarfi við þá. 1 5. yfirliti eru sýnd kosningarúrslit þar sem hlutbundin kosning fór ffam árin 1974-1998. 46 3. mgr. 18. gr. laga nr. 58/1961, sbr. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 9/1982. 47 Lögnr. 8/1986.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Sveitarstjórnarkosningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarkosningar
https://timarit.is/publication/1386

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.