Fréttablaðið - 30.10.2019, Síða 46
Síðastliðinn mánudag kom út myndband við lagið Klámstrákur með Hatara. Klemens Hannigan, annar söngvari sveitarinnar, var listrænn stjórnandi við
gerð myndbandsins en hann segir
það ádeilu á stöðu karlmannsins
í nútíma samfélagi. Honum finnst
mikilvægt að hefja umræðuna,
hvort sem það er um klámfíkn,
sjálfsmynd, narsissisma og eða
þörfina til að sættast við sjálfan sig.
Skömm, sjálfsvorkunn og egó
„Í myndbandinu vörpum við fram
spurningum um eitraða karl-
mennsku og sjálfsmynd tuttugustu
og fyrstu aldar karlmannsins. Ég
er að líta inn á við og skoða hvar ég
stend í minni kynverund og -vit-
und. Hvernig mér finnst ég passa
inn í samfélagið. Í myndbandinu
snertum við á þemum á borð við
skömm, sjálfsvorkunn og egóið,“
segir Klemens.
Karen Briem og Andri Hrafn
Unnarsson hafa verið sérlegir
stílistar bandsins til þessa en hafa
verið mikið erlendis undanfarið.
Klemens fékk því fatahönnuðinn og
listakonuna Hörpu Einarsdóttur til
liðs við sig og stíliseruðu þau útlit og
klæðnað í sameiningu. Hljómsveit-
in notaði einmitt mikið af f líkum
frá merki Hörpu, Myrka, þegar þeir
komu fram í Tel Avív um árið.
„Harpa steig inn mjög sterk. Svo
leikstýrðum við Baldvin Vern-
harðsson og klipptum mynd-
bandið. Áhorfendur geta svo túlkað
myndbandið á mismunandi vegu.
Hvort sem þá að Matthías sé í hlut-
verki geðlæknis og ég sjúklingur og
hann sé í raun að reyna að lækna
mig af klámstrákseinkennum eða
við séum tvær hliðar á sama ein-
staklingnum að berjast í togstreitu.“
Langur súlufimistími
Klemens fór í einkatíma í súlufimi
hjá Eríal Pole þar sem hann lærði
réttu handtökin hjá Guðrúnu Helgu
Reynisdóttur, en hann sýnir glæsi-
lega takta í myndbandinu.
„Það gekk mjög vel. Við vorum
að dilla okkur og hnykla alls konar
vöðva í líkamanum sem maður
notar ekki dagsdaglega.“
Hve lengi þurftir þú að æfa fyrir
myndbandið?
„Ég fór bara í einn tíma.“
Bara einn tíma?
„Já, en hann var mjög langur. Við
vorum í fjórar vikur í einangrun á
Svalbarða þar sem ég lærði súlufimi
af mikilli nákvæmni fyrir mynd-
bandið. Stúderaði „pole fitness“ í
bak og fyrir með Eríal pole.“
Hatarakommúnan
En hvar var myndbandið gert?
„Bara í stofunni heima og í skurð-
stofunni okkar. Þetta var skurðstofa
3 í höfuðstöðvum Svikamyllu ehf.
þar sem allir sem starfa með Hatara
eða eru á launaskrá hjá fyrirtækinu
verða að búa saman í kommúnu.
Þau fá ekkert um það að segja,“ segir
Klemens.
Klámstrákur var frumsýnt á
heimasíðu breska götublaðsins
Metro, sem er alls ótengt veitinga-
staðnum hérlendis.
„Sunday Times var ekki að sýna
þessu nógu mikinn áhuga þannig
að við ákváðum að frumsýna á síðu
Metro.“
Næst spilar hljómsveitin á Ice-
land Airwaves en svo munu stórir
útgáfutónleikar fara fram í febrúar
til að fagna sveitarinnar fyrstu
breiðskífu, Neyslutrans. Áður hafði
hún þó gefið út stuttskífuna Neyslu-
vara.
„Við spyrjum okkur spurninga
um neysluhyggju og samfélagið sem
við búum í á nýju plötunni.“
Vegan ostakökur frá aðdáendum
Í kjölfarið fer sveitin í Evróputúr
sem fengið hefur yf irskriftina
Europe will crumble, það verða
tveir tveggja vikna túrar. Klemens
segir hljómsveitina þakkláta þeim
dyggu aðdáendum sem hún á hvar-
vetna um heiminn.
„Við eigum góða aðdáendur
sem fylgja okkur af móð. Okkur er
boðið út um allan heim. Svo kemur
fólk með bakaðar vegan ostakökur
og býður okkur í kökuboð eftir
tónleika. Í kringum Eurovision
var þetta kannski f lóknara og við
vorum að upplifa meira áreiti og
ógnandi tilburði frá þeim sem voru
ósammála okkur. Núna er minna
um það.“ steingerdur@frettabladid
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÞAÐ GEKK MJÖG VEL
FYRIR SIG. VIÐ VORUM
AÐ DILLA OKKUR OG HNYKLA
ALLS KONAR VÖÐVA Í LÍKAM-
ANUM SEM MAÐUR NOTAR EKKI
DAGSDAGLEGA.
Alltaf nóg til af humri hjá Norðanfiski...
STÓRUM HUMRI!!
Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu á
úrvals sjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa.
Einnig má finna vörur Norðanfisks í
neytendapakkningum í verslunum
Bónus um land allt.
Hafið samband á nordanfiskur@nordanfiskur.is eða í síma 430 1700
Blekhylki.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind
Ódýr blekhylki
og tónerar!
www.artasan.is
Fæst í næsta
apóteki og helstu
stórmörkuðum
Mundir þú eftir að
bursta og skola í
morgun?
Tannlæknar mæla með GUM tannvörum
GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51
Varpa fram
spurningum
um eitraða
karlmennsku
Á mánudaginn kom út myndband við
nýjasta lag Hatara, Klámstrákur. Klemens,
annar söngvara sveitarinnar, segir lagið
fjalla um stöðu nútímakarlmannsins í
tuttugustu og fyrstu aldar samfélagi.
Klemens stíliseraði sjálfur myndbandið með fatahönnuðinum Hörpu Einarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Opnaðu myndavélina í símanum,
skannaðu merkið og sjáðu nýjasta
tónlistarmyndband Hatara.
3 0 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
0
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:2
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
D
-8
1
E
0
2
4
1
D
-8
0
A
4
2
4
1
D
-7
F
6
8
2
4
1
D
-7
E
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K