Fréttablaðið - 19.10.2019, Síða 6
Mun ríkissjóður
standa undir þessu
með góðu móti á næstu
árum án þess að hallinn
verði verulegur
Þorsteinn Víg-
lundsson, þing-
maður Viðreisnar
Málið er birtingar-
mynd viðhorfa
opinberra stofnana á Íslandi
til blaðamanna
Ari Brynjólfsson
blaðamaður
Gran Canaria
22. október í 21 nótt
595 1000
Flug frá kr.
49.900Sæti báðar leiðirmeð tösku og handfarangri
Notkun: 2 hylki tvisvar á dag við vægum gigtarverkjum. Notist ekki ef ofnæmi fyrir jarðhnetum eða soja, eða sár
í maga eða þörmum er þekkt. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til
læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um
lyfið á www.florealis.is og www.serlyfjaskra.is.
Haltu þínu striki!
Harpatinum er eina viðurkennda jurtalyfið
á Íslandi til að draga úr gigtarverkjum
Fæst án lyfseðils í næsta apóteki www.florealis.is
EFNAHAGSMÁL „Ríkisstjórnin segist
vera að forgangsraða í mennta- og
velferðarmálum. Auðvitað er mesta
aukningin í milljörðum talið í
þessum málaf lokkum, enda eru
þetta langstærstu útgjaldaliðirnir.
En þegar við horfum á hlutfalls-
lega aukningu eru þessir liðir langt
undir meðaltali,“ segir Þorsteinn
Víglundsson, fulltrúi Viðreisnar í
fjárlaganefnd.
Þorsteinn segir það sláandi
hversu mikil hlutfallsleg útgjalda-
aukning sé til opinbera kerfisins og
opinbers reksturs. Hann birtir í dag
aðsenda grein á vef Fréttablaðsins,
frettabladid.is, þar sem hann gagn-
rýnir hið vaxandi ríkisbákn.
„Þetta er bara stjórnlaus út-
gjaldaaukning. Áhyggjuefnið er
tvíþætt. Af koma ríkissjóðs mun
Gagnrýnir stjórnlausa útgjaldaaukningu
FISKELDI Vestfirska fiskeldisfyrir-
tækið Arctic Fish opnaði í gær nýja
seiðaeldisstöð í Tálknafirði. Um
er að ræða stærstu einstöku fjár-
festingu í fiskeldi hér á landi en
þetta verður ein tæknivæddasta
landeldisstöð í heimi sem byggist á
vatnsendurnýtingarkerfi.
Sig u rðu r Pét u r sson, f r a m-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá
Arctic Fish, segir að undirbúningur
að uppbyggingu stöðvarinnar hafi
hafist fyrir sjö árum. Um er að ræða
eina stærstu byggingu Vestfjarða,
eða yfir 10 þúsund fermetra.
Sigurður segir að fjárfesting í
seiðaeldisstöðinni í Norður-Botni,
Tálknafirði sé um 4 milljarðar
króna og er ein stærsta fjárfesting
sem ráðist hefur verið í á Vestfjörð-
um á undanförnum árum. „Fjár-
festing í sérhæfðum tækjabúnaði
er langstærsti hluti framkvæmdar-
innar enda er að finna margvíslegan
búnað og tæki í stöðinni sem á sér
fáar hliðstæður,“ segir Sigurður.
Bryndís Sigurðardóttir, sveitar-
stjóri Tálknafjarðarhrepps, segir
að fiskeldi sé einn helsti vaxtar-
broddur atvinnulífs Vestfjarða og
uppbygging greinarinnar sé mikið
hagsmunamál fyrir byggðina. Sam-
kvæmt upplýsingum Vestfjarða-
stofu hafa á síðustu árum orðið til
rúmlega 300 ný störf við eldi og
afleidd störf á sunnanverðum Vest-
fjörðum.
„Svona fjárfesting skiptir miklu
máli fyrir lítið svæðisbundið hag-
kerfi og vinnusóknarsvæði sem
sunnanverðir Vestfirðir eru, enda er
oftast talað um sunnanverða Vest-
firði sem eitt atvinnusvæði. Hag-
vöxtur á Vestfjörðum hefur verið
lítill og opinberar tölur hafa sýnt
stöðnun og samdrátt á svæðinu,“
segir Bryndís. „Það er mikil bjart-
sýni hér og okkur finnst allt vera að
gerast.“
Sigurður segir að rúmlega 30
manns hafi starfað við byggingar-
framkvæmdirnar þegar mest var.
Framkvæmdirnar sköpuðu um
45 milljónir króna í útsvarstekjur
hjá Tálknafjarðarhreppi. Þá voru
á árunum 2015-2018 keypt aðföng
og þjónusta frá innlendum birgjum
fyrir um 424 milljónir króna.
„Með stöðinni verða til 15 heils-
ársstörf á Tálknafirði sem mun
fjölga í 25 manns á annatíma við
seiðaútsetningar á sumrin. Fyrir-
tækið er stærsti atvinnurekandinn
í bæjarfélaginu,“ segir Sigurður.
„Við áætlum að starfsemin skapi
um 16 milljónir króna í útsvars-
tekjur á ári fyrir sveitarfélagið. Að
auki er aðkeypt þjónusta og aðföng
áætluð 320 milljónir króna á ári.
Þess utan eru önnur aðfangakaup,
t.d. kaup á hrognum og f ljótandi
súrefni,“ segir Sigurður.
Heildarfjöldi starfsmanna Arctic
Fish í land- og sjóeldi á Vestfjörðum
er á sjöunda tug. Höfuðstöðvar
fyrirtækisins eru á Ísafirði en nýja
landeldisstöðin í botni Tálkna-
fjarðar er grunnurinn að starf-
seminni. Seiðin eru alin áfram í
sjóeldisstöðvum fyrirtækisins í
Dýrafirði, Patreksfirði og Tálkna-
firði. Seiðaeldisstöðin er byggð með
mögulega stækkun í huga þegar ný
eldisleyfi fást.
david@frettabladid.is
Uppbygging fiskeldis
mikið hagsmunamál
Með stöðinni verða
til 15 heilsársstörf á
Tálknafirði sem mun fjölga í
25 manns á annatíma við
seiðaútsetningar á sumrin.
Sigurður Pétursson,
framkvæmdastjóri
viðskiptaþróunar
hjá Arctic Fish
Frá vígslu eldisstöðvarinnar í gær. Frá vinstri: Anita Steinarsdóttir, Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir, Valdimar
Hermann Jóhannsson, Helga Mjöll Sigurðardóttir og Patrik Einisson. MYND/GUÐLAUGUR ALBERTSSON
Arctic Fish opnaði í
gær seiðaeldisstöð sem
byggir á háþróaðri
vatnsendurnýtingar-
tækni: Landeldi með
áhrif fyrir nærsam-
félagið í Tálknafirði.
FJÖLMIÐLAR Hagsmunir almenn-
ings af því að efni námssamnings
Seðlabanka Íslands við lykilstarfs-
mann hans, verði gert opinbert
eru ríkari en hagsmunir bankans
og starfsmannsins af því að efni
hans fari leynt. Þetta er niðurstaða
dóms Héraðsdóms Reykjaness
sem kveðinn var upp í gær í máli
sem Seðlabankinn höfðaði gegn
Ara Brynjólfssyni, blaðamanni á
Fréttablaðinu.
Málið höfðaði bankinn til að
freista þess að fá úrskurð úrskurð-
arnefndar um upplýsingamál
ógiltan en með þeim úrskurði var
bankanum gert skylt að af henda
blaðamanni umbeðin gögn.
Tæpt ár er liðið síðan upplýsing-
anna var óskað. Eftir að bankinn
synjaði beiðninni, vísaði blaða-
maðurinn málinu til úrskurðar-
nefndar um upplýsingamál.
Strax í kjölfar úrskurðar nefnd-
arinnar um skyldu bankans til að
af henda upplýsingarnar krafðist
bankinn þess að réttaráhrifum
úrskurðarins yrði frestað með
vísan til þess að málið yrði borið
undir dómstóla.
„Ég mun óska eftir því að fá skjal-
ið af hent í kjölfar dómsins og geri
ekki ráð fyrir öðru en fá það strax
eftir helgi,“ segir Einar Þór Sverris-
son, lögmaður Ara.
Sjálfur segir Ari feril málsins
„birtingarmynd viðhorfa opinberra
stofnana á Íslandi til blaðamanna.“
Upplýsingarnar sem ágreining-
urinn lýtur að varpa ljósi á inntak
Lýsir viðhorfum hins
opinbera til blaðamanna
versna verulega nú þegar tekið er
að hægja mjög á í hagkerfinu. Þá er
bara spurning hvort við séum búin
að ganga of langt í útgjaldaaukning-
unni. Mun ríkissjóður standa undir
þessu með góðu móti á næstu árum
án þess að hallinn verði verulegur?“
Með þessari útgjaldaaukningu sé
búið að festa í sessi skattahækkan-
irnar sem urðu í tíð vinstristjórnar-
innar. „Þær voru rökstuddar með
því að skattstofnar hefðu dregist
mikið saman. Nú er skattheimta
120 milljörðum meiri á ári hverju
en hún hefði verið ef skattprósent-
ur væru þær sömu og fyrir hrun.“
Atvinnulíf og heimili hefðu gott
af innspýtingu sem fælist í skatta-
lækkunum. Vegna útgjaldaaukn-
ingar sé hins vegar ekkert svigrúm
til slíks. „Hér voru tveir f lokkar,
Sjálfstæðisf lokkur og Framsókn-
arf lokkur, sem gagnrýndu mjög
harkalega þessar skattahækkanir
á sínum tíma. Þeir eru búnir að vera
nær óslitið við völd síðan og hafa
ekki gert annað heldur en í raun og
veru hækkað skatta frekar.“ – sar
samkomulags sem gert var við Ingi-
björgu Guðbjartsdóttur, þáverandi
framkvæmdastjóra gjaldeyriseftir-
litsins. Ingibjörg fékk bæði styrk
frá bankanum og laun án kröfu
um vinnuframlag árið 2016 til að
stunda nám við Harvard-háskóla í
Bandaríkjunum.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að um tæpar 20 milljónir króna
hafi verið að ræða en Ingibjörg
sagði upp störfum við bankann að
náminu loknu.
Frá því í ágúst 2019 til maí á þessu
ári hefur Seðlabankinn greitt 132
milljónir króna til starfsfólks síns
í námsstyrki.
Alls var um 906 styrki að ræða og
er meðalupphæð þeirra 145 þúsund
krónur. – aá
1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð