Fréttablaðið - 19.10.2019, Side 18
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is,
MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Fótbolti er kallaður „hinn fallegi leikur“. Undan-farna daga hefur hinn „fallegi leikur“ þó verið heldur ljótur. Dómari þurfti tvívegis að stöðva
leik Búlgaríu og Englands í undankeppni EM á
mánudag vegna kynþáttaníðs frá stuðningsmönnum
Búlgaríu sem gáfu frá sér apahljóð og heilsuðu að
nasistasið.
Ekki hafði riðill Íslendinga meiri fegurð til að bera.
Fyrir rétt rúmri viku fagnaði tyrkneska fótbolta-
landsliðið sigri gegn Albaníu með hermannakveðju.
Kveðjan var stuðningsyfirlýsing við tyrkneska
herinn sem réðst nýverið inn í Sýrland og stundaði
þar umdeildar hernaðaraðgerðir gegn Kúrdum.
Uppátækið endurtók landsliðið í leik gegn Frökkum
nokkrum dögum síðar.
Til stendur að íslenska landsliðið í fótbolta sæki
Tyrki heim í næsta mánuði. Hefur þeirri hugmynd
verið hreyft að Íslendingar hætti við leikinn í mót-
mælaskyni við framferði Tyrkja. Sitt sýnist hverjum.
Margir virðast þó þeirrar skoðunar að „aðskilnaður
eigi að ríkja milli íþrótta og stjórnmála“.
Sú skoðun er þó ekki annað en útópía. Íþróttir
eiga sér ekki stað í tómarúmi. Sjaldan hefur sú stað-
reynd blasað jafnóþyrmilega við og árið 1936 þegar
Ólympíuleikarnir fóru fram í Þýskalandi nasismans.
Árið 1931, tveimur árum áður en Adolf Hitler
varð kanslari, ákvað Alþjóða Ólympíunefndin að
Ólympíu leikarnir færu fram í Þýskalandi. Þegar
nasistar komust til valda áttu flestir von á því að hinir
nýju herrar Þýskalands myndu afþakka leikana sem
þeir kölluðu „illræmda júðahátíð“. En áróðursmeist-
arar nasistanna sáu sér leik á borði. Þvert á móti tóku
þeir leikunum opnum örmum og jusu í þá fjármunum
svo að þeir mættu verða sem glæsilegastir. Þegar
nasistarnir bönnuðu gyðingum þátttöku kom til tals
að sniðganga Ólympíuleikana eða flytja þá annað.
Ekki varð af því og fékk Hitler óáreittur að gera sér
mat úr Ólympíuleikunum með einni mestu áróðurs-
sýningu síðari tíma.
Framferði Tyrkja í undankeppni EM er sannarlega
tilefni til að Knattspyrnusamband Íslands hugsi sinn
gang. Viti þeir ekki hvernig afþakka megi boð um að
mæta landsliði Tyrkja má grípa til fordæmis úr mann-
kynssögunni.
Ágæti fasismans
Í desember árið 1961 fékk breski heimspekingurinn
Bertrand Russell bréf frá þekktum breskum fasista,
Oswald Mosley. Mosley vildi bjóða Russell til hádegis-
verðar og rökræða við hann um ágæti fasismans. Hinn
22. janúar 1962 afþakkaði Russell boð um að mæta Mos-
ley með eftirfarandi bréfi sem Knattspyrnusamband
Íslands mætti íhuga að ljósrita og senda til Tyrklands:
Kæri herra Oswald.
Þakka þér fyrir bréfið. Ég hef hugsað nokkuð
um nýleg bréfaskipti okkar. Það er erfitt að ákveða
hvernig best sé að svara mönnum sem hafa allt önnur
viðhorf en maður sjálfur; og í raun ógeðfelld viðhorf.
Vandinn er ekki sá að ég sé ósammála þeim atriðum
sem þú færir rök fyrir heldur sá að ég hef ráðstafað
hverri einustu ögn af orku minni í að berjast gegn mis-
kunnarlausum fordómum, áráttukenndu of beldi og
grimmúðlegum ofsóknum sem einkenna heimspeki
fasismans og framkvæmd hans.
Mér ber skylda til að benda á að tilfinningaheimar
okkar eru svo frábrugðnir og andstæðir hvor öðrum
að ekkert árangursríkt eða einlægt gæti nokkurn
tímann komið út úr samskiptum okkar.
Ég vona að þú skynjir styrk sannfæringar minnar.
Ég segi þetta ekki til að vera dónalegur heldur vegna
alls þess sem mér er kært þegar kemur að reynslu
mannsins og afrekum hans.
Þinn einlægur,
Bertrand Russell
Hinn fallegi leikur
Jón
Þórisson
jon@frettabladid.is
Kynnt var í gær að breyting hefði orðið á eignarhaldi Torgs ehf., útgáfufélags Fréttablaðsins. Við þessa breytingu eignaðist félag í eigu Helga Magnús-sonar, ásamt öðrum, allt hlutafé í útgáfufélaginu, en félag Helga keypti
helmingshlut í því í byrjun júní síðastliðins.
Viðskipti þessi marka tímamót í útgáfusögu
Fréttablaðsins. Við þau hverfa frá stjórnarborðinu
hluthafar sem hafa fylgt blaðinu frá árinu 2004 eða
nánast alla útgáfusögu þess. Um er að ræða hjónin
Ingibjörgu Stefaníu Pálmadóttur og eiginmann
hennar, Jón Ásgeir Jóhannesson. Framlag þeirra til
íslenskrar fjölmiðlasögu er mikið og merkilegt og
verður án efa gerð skil með ítarlegum hætti í fyll-
ingu tímans.
Fréttablaðið þakkar ánægjulegt og uppbyggilegt
samstarf við þau og þeirra mikilvægu staðfestu og
þrautseigju að halda úti öflugasta fjölmiðli landsins
um 16 ára skeið. Um þessar mundir er Fréttablaðið
prentað í tæplega 80.000 eintökum sex daga vik-
unnar og ber höfuð og herðar yfir keppinauta sína,
hvort sem það varðar lestur, útbreiðslu eða upplag.
Samhliða þessum breytingum á eignarhaldi
útgáfufélagsins er stefnt að því að miðlar Hring-
brautar, sem staðið hefur að sjónvarpsútsendingum
og netmiðli undir sama nafni, renni inn í Torg. Er
sá samruni háður samþykki samkeppnisyfirvalda
og umsögn fjölmiðlanefndar. Tilkynning þess efnis
hefur verið send þessum stofnunum og bíður með-
ferðar þeirra. Ætlunin er að starfsemi Hringbrautar
flytjist á Hafnartorg þar sem ritstjórn Fréttablaðs-
ins og frettabladid.is er til húsa.
Þá var einnig tilkynnt um það í gær að Ólöf
Skaftadóttir hafi látið af starfi ritstjóra að eigin ósk.
Hún hefur starfað hjá fyrirtækinu síðastliðin sjö
ár. Henni eru þökkuð vel unnin störf. Jón Þórisson
lögfræðingur hefur verið ráðinn ritstjóri við hlið
Davíðs Stefánssonar. Jón er jafnframt ábyrgðar-
maður útgáfunnar. Jóhanna Helga Viðarsdóttir,
sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra hjá Torgi
ehf., verður nú forstjóri og útgefandi fyrirtækisins.
Allt er þetta liður í að efla útgáfu Fréttablaðsins
og tengdra miðla, ekki síst í þeirri varnarbaráttu
sem háð er um sjálfstæða útgáfu fréttamiðla á
Íslandi.
Stjórn Torgs hefur samþykkt ritstjórnarstefnu
fyrir blaðið og miðla þess. Þar segir að stefna fjöl-
miðla félagsins sé að halda uppi borgaralegum
viðhorfum, víðsýni og frjálslyndi. Frelsi sé gert hátt
undir höfði og hag neytenda haldið á lofti. Stjórn-
völdum á hverjum tíma sé veitt aðhald á öllum
sviðum og sama gildi um dómstóla. Fréttablaðið og
miðlar þess aðhyllist alþjóðlegt samstarf Íslendinga
á breiðum vettvangi og horft sé til þess að dýpka
slíkt samstarf til framtíðar.
Tímamót hjá
Fréttablaðinu
Fréttablaðið
og miðlar
þess aðhyllist
alþjóðlegt
samstarf
Íslendinga á
breiðum
vettvangi og
horft sé til
þess að
dýpka slíkt
samstarf til
framtíðar.
22. október – fræðsluerindi
Foreldramissir
Hefst kl. 20:00
Birna Dröfn Jónasdóttir flytur erindi um foreldramissi
og kynnir hópastarf fyrir aðstandendur
Allir velkomnir
Lífsgæðasetur St. Jó. Suðurgötu 41, Hafnarfirði.
Athugið að gengið er inn að aftanverðu, Hringbrautarmegin.
Sími: 551-4141. Netfang: sorgarmidstod@sorgarmidstod.is
Sorgarmidstod_auglysing_22 okt.pdf 1 18.10.2019 10:11:15
1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN