Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 28

Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 28
Hrönn Stefánsdóttir, verkefnastjóri á Neyð a r mót tök u f y r i r þ ol e ndu r kynferðisof beldis, segir f leiri karla og konur í virkri vímuefnaneyslu leita til þeirra eftir kynferðisof beldi. „Komur þeirra hafa þrefaldast síð- ustu þrjú árin, en brotunum hefur ekki endilega fjölgað. Þau koma til okkar því þau leggja traust á mót- tökuna og eru frekar tilbúin að leita sér aðstoðar,“ segir Hrönn og segir mestu máli skipta samvinnu við úrræði á borð við Frú Ragnheiði, Konukot og VoR sem er færan- legt vettvangs- og ráðgjafarteymi Reykjavíkurborgar en það teymi aðstoðar fólk í erfiðleikum vegna vímuefna og/eða geðsjúkdóma. „Stærsti hluti þolenda sem leitar til okkar eru konur. Strákar og karlar eru enn meira hikandi við að leita Allir jafnir á Neyðarmóttökunni „Það er leitt að fólk sem hefur orðið fyrir alvarlegu ofbeldi getur hræðst það að hringja á lögregluna,“ segir Hrönn Stefánsdóttir, verkefnastjóri á Neyðarmóttökunni, um einn viðkvæmasta hóp þolenda kynferðisofbeldis. „Þolendur lýsa auknu trausti á kerfið, bæði heilbrigðiskerfið og löggæslu, það er allavega það sem við heyrum frá þeim,“ segir Hrönn Stefánsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Kynferðisofbeldi 3. hluti af 5 sér aðstoðar eftir kynferðisof beldi en það færist þó líka í aukana. Þró- unin upp á síðkastið er sú að þol- endur í vímuefnaneyslu viðurkenna oftar brotin sem þau verða fyrir og leggja fram kæru til lögreglu, sem er mjög jákvætt.“ Öruggt húsnæði mikilvægt „Á Neyðarmóttökunni viljum við tryggja öryggi ef aðstæður fólks sem leitar til okkar eru ótryggar og erum í góðu samstarfi við Konukot og Kvennaathvarfið ef á þarf að halda.“ Hrönn segir þennan hóp þolenda kynferðisof beldis sérstaklega við- kvæman. „Við vitum að hættan á kynferðisof beldi er mikil þegar fólk er heimilislaust og í neyslu. Konur í þessum aðstæðum eru í mikilli hættu á of beldi. Þær verða stundum háðar of beldismönnum sínum varðandi vímuefni og hús- næði. Þess vegna er mjög mikilvægt að tryggja þeim húsnæði og styðja við þær. Þær eru stundum að gista á sófanum hjá einhverjum og eru ekki óhultar í þeim aðstæðum.“ Fylgir því meiri skömm að glíma við kynferðisof beldi sem verður í neyslu? „Það er margfalt meiri skömm. Ég heyri oft eitthvað á þá leið að viðkomandi hefði átt að vera löngu búinn að koma sér út úr þessu. En þá erum við dugleg að svara því að ábyrgðin sé alltaf gerandans. Þessi hópur þolenda er oft mann- eskjur sem hafa verið beittar kyn- ferðisofbeldi margsinnis áður. Jafn- vel alveg frá barnæsku. Þau segja okkur að þau vilji bara deyfa sig og noti þess vegna vímuefni. Við á Neyðarmóttökunni getum verið brú yfir í velferðarþjónustu og með meiri samvinnu við önnur úrræði getum við betur stutt við þessa ein- staklinga sem til okkar leita. Það er svo margt sem þarf að huga að, staðan sem þau eru í er ótrygg, þau vita ekki hvernig næsti sólarhringur verður eða hvort ofbeldismaðurinn nær aftur til þeirra. Stundum á kyn- ferðisof beldi sér stað í nánum sam- Framhald á síðu 30 Stærstur hluti þolenda eru konur. Þrefalt fleiri þolendur kynferðis­ ofbeldis koma á Neyðarmót­ tökuna í dag en fyrir þremur árum. Yngsti þolandinn úr þessum viðkvæma hópi sem hefur leitað á Neyðarmót­ töku er þrettán ára og sá elsti um sextugt. 3 13 ára 60 ára ÞETTA ER BARA FÓLK EINS OG VIÐ, SEM Á FJÖLSKYLD- UR, JAFNVEL BÖRN OG ERU MEÐ SÖMU DRAUMA OG VÆNTINGAR TIL LÍFSINS OG VIÐ. 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.