Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 32
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Atli Þór Albertsson, markaðs-stjóri Þjóðleikhússins, segir að þetta verði skemmtilegur
vetur í leikhúsinu. Þjóðleikhúsið
heldur upp á sjötíu ára afmæli á
þessum vetri og sýningarnar verða
fjölbreyttar og við allra hæfi. Leik-
rit eftir íslenska höfunda eru þar
á meðal, auk þess sem Þjóðleik-
húsið er með marga af vinsælustu
leikurum landsins í leiksýningum
vetrarins.
Vinsæl jólagjöf
„Gjafakortin okkar eru mjög
vinsæl sem jólagjöf. Einnig hafa
þau verið vinsæl hjá vinnuveit-
endum sem jólagjöf til starfs-
manna. Gjafakortin renna aldrei
út og halda alltaf raunvirði sínu.
Fólk hefur komið til okkar með til
dæmis átta ára gamalt gjafakort
og við finnum þá út á hvað það var
keypt,“ útskýrir Atli. „Áður fyrr
stóð á kortunum að þau rynnu
út eftir eitt ár. Því hefur verið
breytt þannig að núna stendur
að gjafakortið gildi fyrir sýningu
að eigin vali í eitt ár en eftir það
heldur það verðgildi sínu miðað
við upphaflegt verð. Ef miðaverð
hækkar er alltaf hægt að greiða
mismun þannig að kortið er í fullu
gildi á því verði sem það var keypt
upphaflega,“ greinir hann frá og
bendir á að miðaverð hækki ekkert
endilega ár frá ári. „Gjafakort eru
frábær kostur þegar starfsmenn
fyrirtækja eru á mismunandi aldri
því leikhúsið er fjölbreytt,“ segir
hann. „Hægt er að hafa samband
við okkur og fá tilboð þegar um
fjölda gjafabréfa er að ræða.“
„Á hverju starfsári, sem stendur
yfir frá því í ágúst til júní ári
seinna, frumsýnum við fjöldann
allan af sýningum. Þjóðleikhúsið
leggur metnað í að vera með leik-
sýningar við allra hæfi. Það eru
framsæknar sýningar, klassík, ný
íslensk sem erlend verk auk barna-
og fjölskylduleikrita. Við teljum
því að það sé ósköp auðvelt fyrir
fólk að finna eitthvað spennandi
og við sitt hæfi.“
Kardemommubærinn
sýndur á afmælisári
Uppáhaldsleikrit allra Íslendinga,
Kardemommubærinn, verður
frumsýnt í apríl á næsta ári en Atli
segir að sú leiksýning fylgi hverri
kynslóð. „Allir eiga sínar minn-
ingar frá Kardemommubænum í
Þjóðleikhúsinu,“ segir hann. Þetta
fræga verk norska listamannsins
Thorbjörns Egner var fyrst sýnt í
Þjóðleikhúsinu árið 1960. Þá fór
Róbert Arnfinnsson með hlut-
verk Bastíans bæjarfógeta, Emilía
Jónsdóttir var Soffía frænka en
ræningjana þrjá léku þeir Ævar
Kvaran, Baldvin Halldórsson og
Bessi Bjarnason. Í nýju sýningunni
verður Örn Árnason Bastían,
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
leikur Soffíu frænku en ræningj-
ana leika Hallgrímur Ólafsson,
Sverrir Þór Sverrisson og Oddur
Júlíusson. Sérstök gjafakort verða
í boði fyrir Kardemommubæinn
þannig að börnin geta glaðst um
jólin og farið að hlakka til.
Margt spennandi í boði
Önnur stórsýning sem nú er á
fjölum Þjóðleikhússins er Shake-
speare verður ástfanginn. Hér er
á ferðinni eldfjörugur, róman-
tískur gamanleikur sem byggður
er á Óskarsverðlaunamyndinni
Shakespeare in Love. Þessu verki
hefur verið einstaklega vel tekið af
áhorfendum. Helstu leikarar eru
Aron Már Ólafsson, Lára Jóhanna
Jónsdóttir, Örn Árnason, Edda
Björgvinsdóttir, Jóhanna Vig-
dís Arnardóttir og Guðjón Davíð
Karlsson.
Atli segir að Einræðisherrann
fari aftur á svið í vetur þar sem
Siggi Sigurjóns fer á kostum sem
Chaplin. „Þá get ég nefnt frábæra
sýningu sem nefnist Útsending en
þar fer Ingvar E. Sigurðsson með
aðalhlutverkið. Hún fjallar um
fréttamanninn Howard Beale sem
er sagt upp störfum hjá banda-
rískri sjónvarpsstöð eftir 25 ára
starf. Hann tilkynnir áhorfendum
að eftir viku muni hann svipta sig
lífi í beinni útsendingu en við það
rýkur þáttur hans upp í áhorfi.
Þessi sýning var sett upp í Þjóð-
leikhúsinu í Lundúnum og fékk
frábærar viðtökur. Við göngum
alla leið með þessa sýningu sem er
sett upp eins og sjónvarpsútsend-
ing. Reynsluboltinn Egill Eðvars-
son stýrir sviðsmyndinni sem lítur
út eins og venjulegt stúdíó. Þarna
verða risaskjáir og kvikmynda-
tökuvélar. Þetta er sýning sem á
eftir að vekja athygli,“ segir Atli.
Gagnvirk sýning
Hann nefnir f leiri sýningar eins
og Ör eftir Auði Övu Ólafsdóttur,
Þitt eigið leikrit – tímaferðalag,
fjölskyldusýningu eftir Ævar Þór
vísindamann, þar sem áhorfendur
kjósa reglulega á milli valkosta og
stýra þannig framvindu sýningar-
innar þannig að hún er gagnvirk. Í
hverju sæti er fjarstýring þar sem
áhorfendur geta sagt álit sitt og
lært um leið á lýðræðið.
Ástarsorg í Kópavogi
„Síðan má nefna Kópavogskró-
niku sem fjallar um unga,
einstæða móður sem í kjölfar
ástarsorgar dvelst langdvölum í
Kópavogi. Ilmur Kristjánsdóttir
og Silja Hauksdóttir hafa skapað
söguna upp úr bók Kamillu
Einarsdóttur,“ upplýsir Atli og er
fjarri því allt upptalið sem í boði
verður á þessu leikári. „Ætli þetta
séu ekki hátt í tuttugu sýningar
sem hægt er að velja um þannig að
allir geta fundið eitthvað við sitt
hæfi.
Ljóst er að margt skemmtilegt
og spennandi verður að gerast í
Þjóðleikhúsinu í vetur. Fyrir þá
sem vilja kynna sér sýningar betur
er hægt að fara inn á www.leik-
husid.is en þar má finna ítarefni og
kaupa miða og gjafakort.
Vongóðir upprennandi leikarar þreyta prufur fyrir uppsetningu Þjóðleikhússins á hinu sívinsæla leikriti byggðu á sögu Thorbjörns Egners um Kardemommubæinn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R