Fréttablaðið - 19.10.2019, Side 36
Við
erum
stolt af því
að geta
miðlað
sérþekkingu
okkar og höfum gert það
innan og utan landstein-
anna þar sem Bjöllu-
kórinn hefur leikið af
þeirri snilld sem honum
er einum lagið. Við
fögnum því að fá að
leggja hönd á plóg með
bjöllunum okkar.
Valgerður Jónsdóttir
Í Bjöllukórnum
er listafólkið
Ólafur Snævar
Aðalsteinsson,
Ástrós Yngva-
dóttir, Rut
Ottósdóttir,
Halldóra Jóns-
dóttir, Erna
Sif Kristbergs-
dóttir og Edda
Sighvatsdóttir
í neðri röð. Í
efri röð standa
Hildur Sigurðar-
dóttir, Gauti
Árnason, Ásdís
Ásgeirsdóttir,
Gísli Björnsson,
Auðun Gunn-
arsson og Íris
Björk Sveins-
dóttir. MYND/
OWEN FIENEBjöllukórinn var stofnaður á haustdögum 1997 af Val-gerði Jónsdóttur, skólastjóra
Tónstofu Valgerðar. Í kórnum eru
tólf meðlimir sem flestir sækja
einkatíma í söng og hljóðfæraleik
í Tónstofunni en einu sinni í viku
hittast þeir á bjöllukórsæfingu og
leika þá á hljómfagrar Suzuki-tón-
bjöllur.
„Markmið Bjöllukórsins er að
meðlimir hans þjálfist í að leika
Klingja bjöllum í hjartastað
með öðrum, fái notið þess einstaka
miðils sem tónlistin er og finni
farveg fyrir tónræna hæfileika sína
sjálfum sér og öðrum til ánægju,“
útskýrir Valgerður um Bjöllu-
kórinn sem hefur eflst ár frá ári og
tekið þátt í spennandi verkefnum
sem útheimta margs konar færni.
„Segja má að Bjöllukórinn sé
framvarðarsveit Tónstofunnar
og í þau 22 ár sem kórinn hefur
starfað hefur hann leikið fyrir
stofnanir, félagasamtök, skóla og
fyrirtæki. Kórinn hefur líka komið
fram á listahátíðum og með öðru
tónlistarfólki, þar á meðal Möggu
Stínu, Svavari Knúti, Gunnari
Gunnarssyni, Högna Egilssyni,
Karólínu Eiríksdóttur, Þórunni
Grétu Sigurðardóttur, Sigur Rós
og Retro Stefson,“ upplýsir Val-
gerður um Bjöllukórinn en það
veitir meðlimum hans mikla gleði
og ekki síður þeim sem hlusta á
kórinn leika á tónbjöllurnar.
Njóta þess að koma fram
Valgerður hefur með óeigingjörnu
starfi sínu gefið fjölda nemenda
með sérþarfir kost á að njóta
tónlistarnáms og með því endur-
speglað nútímalegar áherslur á
inngildingu, jafnrétti, sjálfstætt líf
og þátttöku fatlaðra í samfélaginu.
„Starfsemi Bjöllukórsins og Tón-
stofunnar er einstök á landsvísu og
þótt víðar væri leitað. Við erum því
stolt af því að geta miðlað af sér-
þekkingu okkar og höfum gert það
innan og utan landsteinanna þar
sem Bjöllukórinn hefur leikið af
þeirri snilld sem honum er einum
lagið,“ segir Valgerður um kórinn
sem hefur tekið þátt í mörgum
samstarfsverkefnum.
Má þar nefna setningu Lista-
hátíðar í Reykjavík 2014, í sam-
starfi við Högna Egilsson, verk
Ólafs Ólafssonar og Libia Castro
„Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri
stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland“
og norrænu og baltnesku sam-
starfsverkefnin „Kenndu mér
norræn og baltnesk barnalög“
og „Deilum menningararfinum í
listsköpun“. Í nýliðnum september
tók Bjöllukórinn líka þátt í tíu ára
afmælishátíð Pascal Norge.
Bjöllukórinn hefur einnig hlotið
fjölda viðurkenninga og var ásamt
Tónstofunni handhafi kærleiks-
kúlu Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra árið 2010.
„Við í Bjöllukórnum njótum þess
að koma fram og að vera í sam-
starfi þar sem við fáum tækifæri til
að kynnast nýrri tónlist og nýjum
listamönnum. Sýnileiki Bjöllu-
kórsins í samfélaginu hefur vakið
enn frekari áhuga listafólks á að
starfa með okkur. Við fögnum því
að fá að leggja hönd á plóginn með
bjöllunum okkar,“ segir Valgerður.
Efnisskrá Bjöllukórsins er fjöl-
breytt og hljómur hans einstakur.
Kórinn hefur gefið út tvo hljóm-
diska; Hljómfang árið 2012 og
Hljómvang árið 2017.
„Á lokatónleikum Listar án
landamæra í dag flytur Bjöllukór-
inn meðal annars íslensk þjóðlög,
lag eftir Atla Heimi Sveinsson, Þor-
kel Sigurbjörnsson og Braga Valdi-
mar Skúlason,“ upplýsir Valgerður
full tilhlökkunar.
Tónleikar Bjöllukórsins hefjast
í Gerðubergi klukkan 15 í dag.
Þar verður einnig hægt að njóta
listviðburða og heillandi sýninga
listafólksins sem tekur þátt í List
án landamæra.
Aðgengi er gott í Gerðubergi og
lyftur á milli hæða. Aðgengilegt er
á salerni og blátt bílastæði nálægt
húsinu.
Bjöllukórinn
heldur lokatón-
leika Listar án
landamæra í
Gerðubergi í dag.
Kórinn hefur gert
garðinn frægan
hér heima og ytra
með einstökum
hljóm sem heillar
alla sem á hlýða.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R