Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 65

Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 65
Mitt hlutverk er að fara reglulega í fangelsin á suðvesturhorninu, Litla- Hraun, Sogn og Hólmsheiði, til að segja föngum frá verkefni Rauða krossins, Félagsvinum eftir afplánun. Nokkrir fangar hafa reyndar hnýtt í nafnið á verkefninu því þeim þykir það hljóma eins og verið sé að útvega þeim vini til að leika við eftir að afplánun lýkur en það er ekki markmiðið. Félags- vinir veita ýmsa félagslega aðstoð að afplánun lokinni þegar við taka praktísk atriði sem þarf að leysa,“ upplýsir Andri Valur Ívarsson, lög- maður, hagfræðingur og sjálfboða- liði hjá Rauða krossi Íslands. Þung og flókin skref Andri hefur verið sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum í sex ár. „Konan mín hafði verið sjálf- boðaliði í verkefni sem hét Félags- vinir barna af erlendum uppruna og fékk mig með sem sjálfboðaliða í nýlegt verkefni sem er skaða- minnkunarverkefnið Frú Ragn- heiður. Ég tók mér svo hlé á meðan ég kláraði nám en konan mín var áfram í verkefninu og fór síðar að vinna hjá Rauða krossinum. Ég byrjaði svo í fangavinaverkefninu sem fór formlega af stað í fyrra- haust,“ útskýrir Andri. Verkefnið Félagsvinir eftir afplánun er að norskri fyrirmynd og stendur vikulega fyrir opnu húsi í húsnæði Rauða krossins í Hamra- borg í Kópavogi. „Félagsvinir auðvelda þeim sem lokið hafa afplánun skrefin út í samfélag þeirra frjálsu á ný. Algengt er að fangar séu með alls kyns sakarkostnað og skuldir á bakinu og eftir langa einangrun frá samfélaginu geta minniháttar skref í skattinn, til Umboðsmanns skuldara eða þeirra sem sjá um sakarkostnað reynst þung og jafn- vel óyfirstíganleg. Þá koma félags- vinir til aðstoðar og finna leiðir til að vinna úr erfiðu málunum,“ upplýsir Andri. Hann segir vitað að endurkomuhlutfall í fangelsi sé hátt og að markmið verkefnisins sé að reyna að fækka einstaklingum sem fara í fangelsi á ný. „Sá sem losnar úr afplánun er gjarnan með tvær hendur tómar og þarf samt að koma sér í bæinn og finna sér samastað. Þá getur legið beinast við að hafa samband við vinahópinn síðan fyrir afplánun sem í sumum tilvikum er fólk sem enn er í neyslu. Því er ljóst að þau vantar sárlega stoð og styrk á þessum tímamótum og við reynum að aðstoða þau við að tengjast t.d. Umboðsmanni skuldara, félags- ráðgjafa og opinberum stofnunum, skrá þau á biðlista eftir húsnæði og leiða þau að ýmissi sérfræðiþekk- ingu sem er í boði.“ Með heimsóknum í fangelsin reynir Andri að sá fræjum raun- verulegrar aðstoðar félagsvina sem býðst föngum eftir afplánun. „Auðvitað er þá allur gangur á því hvort fangar eigi eftir vikur, mánuði eða jafnvel nokkur ár í afplánun en við reynum að koma þessu inn og finnum fyrir þakk- læti. Fangarnir eru þakklátir fyrir að úti sé félagsskapur og aðili eins og Rauði krossinn sem sýnir hags- munum þeirra áhuga og vilja til að aðstoða. Í samfélaginu ríkja miklir fordómar gagnvart fyrrverandi föngum sem þau upplifa sjálf. Því getur verið meira en að segja það fyrir þau að útvega sér húsnæði eftir afplánun þrátt fyrir að vera komin með vinnu og föst laun. Þau þurfa að skila inn sakavottorði sem setur þau í ákveðna klemmu og þau koma víða að lokuðum dyrum. Við bindum því vonir við að geta liðkað fyrir, þótt við getum vitaskuld ekki ábyrgst ein- staklingana, en ef við náum aðeins að slá á fordóma og aðstoða fólk við að fá tækifæri til að byrja upp á nýtt getum við verið sátt,“ segir Andri sem þegar er kominn með talsvert af föngum sem lýst hafa áhuga á að fá aðstoð félagsvina eftir að afplánun lýkur. „Það hefur gengið ágætlega að byggja upp traust á milli Rauða krossins og þeirra sem eru nýkomin úr fangelsi. Við búum að einhverju leyti að trausti þeirra til Frú Ragnheiðar því oft eru sterk tengsl á milli neyslu vímuefna og fangelsisvistar og fangar sem hafa verið í neyslu þekkja Frú Ragn- heiði að góðu einu og vita að Rauða krossinum er treystandi sem hlut- lausum aðila,“ segir Andri. Ætti að vera sjálfsögð aðstoð Sem félagsvinur eftir afplánun hefur Andri lært að komast yfir eigin fordóma og vanþekkingu. „Ég hef fengið að kynnast ólíkum einstaklingum af öllum þjóðfélags- stigum sem lent hafa í vandræðum. Það hefur aukið víðsýni mína og skilning á að allir geti misstigið sig og að allir eigi skilið tækifæri til að snúa við blaðinu og byrja upp á nýtt,“ segir Andri sem vill sjá verk- efnið þróast á þann veg að félagsleg leiðsögn og fylgd félagsvina verði sjálfsagður hlutur hjá þeim sem ljúka afplánun. „Ég vona að fangar geti áfram leitað til Rauða krossins og að við höfum þá enn fleiri úrræði. Flestir kljást við vöntun á húsnæði og það væri draumur að geta aðstoðað þá meira en að sama skapi getur það reynst erfitt því margir hópar í samfélaginu kljást við það sama. En bara með því að brúa þetta bil þannig að einhverjir einstaklingar eigi auðveldara með að byrja upp á nýtt án þess að eiga á hættu að lenda aftur í fangelsi, er markmiði verkefnisins náð.“ Fyrstu skrefin frjáls geta reynst þung Í verkefninu Félagsvinir eftir afplánun auðvelda sjálfboðaliðar Rauða krossins föngum skrefin út í samfélag þeirra frjálsu á ný og leggja þeim lið við ýmsa félagslega aðstoð. Andri Valur Ívarsson er lögmaður, hagfræðingur og sjálf- boðaliði í verkefninu Fé- lagsvinir eftir afplánun hjá Rauða kross- inum á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Arcanum fjallaleiðsögumenn ehf Árbæjarapótek ehf Ásborg slf Bandalag starfsm ríkis og bæja Baugsbót ehf Bifreiðaverkstæðið Toppur ehf Bílasmiðurinn hf Blaðamannafélag Íslands Bolungarvíkurkaupstaður Bókráð, bókhald og ráðgjöf ehf Brimi hf Danica sjávarafurðir ehf (Danica Seafood Ltd.) dk Hugbúnaður ehf DMM Lausnir ehf Dómkirkjan Dýrabær ehf Dýralæknaþjónusta Vesturlands ehf Dýralæknirinn á Breiðdalsvík Efling stéttarfélag Endurskoðun Vestfjarða ehf Félag skipstjórnarmanna Fjallasýn Rúnars Óskarssonar ehf Fjarðaþrif ehf Fljótsdalshérað Flóahreppur Framhaldsskólinn á Laugum G.Ben útgerðarfélag ehf Garðabær Garðs Apótek ehf Geislatækni ehf, Laser-þjónustan Gjögur hf Grindavíkurbær Gróðrarstöðin Réttarhóll ehf Grófargil ehf Grýtubakkahreppur Gull- og silfursmiðjan ehf Happdrætti Háskóla Íslands Hár og hamar ehf Helgason og Co ehf Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf Hjallastefnan ehf Hjá GuðjónÓ ehf Hópferðabílar Svans Kristóferssonar ehf Hvalur hf Hveragerðissókn Hvíta húsið ehf Höfðakaffi ehf Init ehf Ísfell ehf. Íslensk endurskoðun ehf Ístak hf. Klausturkaffi ehf Krossborg ehf Landsnet hf. Landssamband lögreglumanna Landssamband slökkvilið/sjúkrfl Laugarnesskóli Loftorka Reykjavík ehf. Logoflex ehf Lögfræðistofa Reykjavíkur ehf. Lögreglustjórinn á höfuðborgars Malbikunarstöðin Hlaðbær-Col hf Margt smátt ehf. Matthías ehf Menntaskólinn að Laugarvatni Miðstöðin Vestmannaeyjum ehf Múlaradíó ehf. Nonni litli ehf. Norm X ehf. Orkubú Vestfjarða ohf. Ottó B. Arnar ehf. Ósal ehf Pizza-Pizza ehf. Rafgeisli Tómas R. Zoëga ehf. Rafmiðlun hf. Rafsvið sf. Reykjavíkurborg Reykjavíkurprófastsdæmi eystra S.S. Gólf ehf Samband ísl berkla/brjóstholssj SAMEYKI stéttarfélag í almannaþjónustu Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja Samvirkni ehf Seyðisfjarðarkaupstaður Síldarvinnslan hf. Sjúkrahúsið á Akureyri Sjúkraþjálfun Georgs Skorradalshreppur Skólaskrifstofa Austurlands Skólavefurinn ehf Smurstöð Akraness sf. Solo hársnyrtistofa sf. Sparisjóður Suður-Þingeyi. ses. Steinsteypir ehf. Stéttarfélagið Samstaða Suðurprófastsdæmi Suzuki-bílar hf Sveitarfélagið Hornafjörður Sæplast Iceland ehf. Tannlæknastofa A.B. slf. Tempra ehf. THG Arkitektar ehf. Tækniþjónusta Vestfjarða ehf. Úti og inni sf Útilegumaðurinn ehf. Veiðivon ehf Verkval ehf Verslunartækni og Geiri ehf VGH-Mosfellsbæ ehf. Vilhjálmsson sf VSB-verkfræðistofa ehf. Wurth á Íslandi ehf. Við þökkum fyrir stuðningin Við stöndum fyrir réttlæti - Ekkert um okkur án okkar 215-0-5 255-5-10175-0-0 97-97-97 RGB P 1797 Red - 032P 1807 Gray Cool 9 PANTONE 0-100-100-30 CMYK 0-100-100-10 0-95-95-0 0-0-0-62 FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS HJÁLPIN 5 L AU G A R DAG U R 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.