Fréttablaðið - 19.10.2019, Síða 71
Bindin eru sér-
hönnuð fyrir
þvagleka eru
rakadræg og
læsa lyktina
inni.
Þvagleki getur byrjað hvenær sem er en líkurnar fara vaxandi með aldri og
of þyngd að sögn Hildar Sól-
veigar Ragnarsdóttur, hjúkrunar-
fræðings og ljósmóður. „Þvagleka
er skipt niður í þrjár tegundir;
áreynsluþvagleka, bráðaþvagleka
og blandaðan þvagleka. Áreynslu-
þvagleki er algengastur og lýsir
sér þannig að viðkomandi missir
þvag við áreynslu eins og hnerra,
hósta eða líkamlega áreynslu,“
segir Hildur.
„Helsta ástæða þess er slappir
grindarbotnsvöðvar og er með-
ganga og fæðing algengasta
ástæða slappra grindarbotns-
vöðva.“ Hildur segir að tíðni
áreynsluþvagleka aukist þegar
kona hefur fætt mörg börn en
einnig hefur aldur og offita áhrif á
þvagleka.
Bráðaþvagleki lýsir sér þann-
ig, að sögn Hildar, að það mikil
og sterk þvaglátsþörf verður að
viðkomandi nær ekki að fara á
salerni í tæka tíð. „Talað er um að í
þessum tilvikum sé blaðran ofvirk
eða óróleg. Ekki er alveg vitað um
orsökina og er þetta vandamál að
finna hjá öllum aldurshópum.“
Þriðja tegundin af þvagleka,
blandaður þvagleki, er blanda af
áreynslu- og bráðaþvagleka.
Þvagleka er hægt að með-
höndla á ýmsa vegu. Hildur nefnir
að grindarbotnsæfingar styrki
vöðvana í grindarbotninum og því
ættu allar konur að huga að því að
gera grindarbotnsæfingar reglu-
lega. Bæði til að fyrirbyggja þvag-
leka og meðhöndla hann. Einnig
er hægt að meðhöndla þvagleka
með blöðrustjórnun, raförvun,
lyfjum og aðgerð. Meðhöndlunin
fer eftir tegund og alvarleika að
sögn Hildar.
Þvagleki er mikið feimnismál á
meðal kvenna og oft ekki eitt-
hvað sem rætt er um í vinkvenna-
hópum. „Svo virðist einnig vera að
konur eigi erfitt með að bera þetta
vandamál upp við heilbrigðis-
starfsfólk. Allt of fáar konur ræða
um þetta vandamál sem leiðir til
þess að þær fá ekki rétta með-
ferð,“ segir Hildur og bætir við
að þvagleki geti skert lífsgæði
verulega. „Þvagleki hefur mis-
mikil áhrif á daglegt líf kvenna og
andlega líðan. Hjá sumum konum
er þvagleki meiri háttar vandamál
á meðan aðrar takast á við hann
Þvagleki er falið vandamál
Þvagleki er nokkuð algengt vandamál og talið er að um 30% kvenna glími við hann á einhverjum
tíma. Þvaglekinn getur verið frá því að vera í dropatali til þess að einstaklingurinn rennblotnar.
Hildur Sólveig Ragnarsdóttir hjúkrunarfræðingur segir þvagleka geta
byrjað hvenær sem er. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
með lítilli fyrirhöfn.“
Það getur verið mikil hjálp í því
að þvaglekavörur fáist sem víðast
og aðgengið sé sem best. „Always
Discreet vörurnar eru í svipuðum
pakkningum og venjuleg dömu-
bindi en eru sérstaklega hönnuð
til að taka við þvagi,“ segir Hildur.
„Þannig eru þær ekki aðgreindar
frá öðrum vörum og ætti aukið
aðgengi að hjálpa til við að opna
umræðuna um þetta vandamál.
Þvaglekavörur geta stuðlað að
betri lífsgæðum hjá konum sem
glíma við þvagleka.“
Sérhannað fyrir þvagleka
Always vörumerkið þekkja f lestir
sem leiðandi merki í dömubind-
um. Always hefur sett á markað
nýja vörulínu Always Discreet
sem samanstendur af bindum
og buxum sérhönnuðum fyrir
konur með þvaglekavandamál.
Þessi vörulína er fáanleg í helstu
apótekum og stórmörkuðum
landsins.
Við framleiðslu á vörunum voru
þvaglekavandamál skoðuð til
hlítar til að koma með vöru sem
uppfyllti kröfur og bætti við því
sem vantaði í það úrval af vörum
sem þegar voru fáanlegar.
Helstu kostirnir við Discreet:
n Tvöföld hliðarvörn
n Lyktin læsist inni
n Extra rakadræg miðja breytir vökva í gel
n Fyrirferðarminni þvaglekavörur
n Gott aðgengi að vörunum
Hvað er Always Discreet?
n Bindi og buxur sérstaklega hannaðar fyrir
konur með þvaglekavandamál
n Bindi og buxur með nýja tækni, þorna fyrr og
læsta lykt
Af hverju Always Discreet?
n Stór og vaxandi markaður
n Opnari umræða um vandamálið minna tabú
n Fólk leitar frekari lausna
n Konur þekkja Always og treysta því merki
Always hefur sett á
markað nýja vöru-
línu Always Discreet
sem samanstendur af
bindum og buxum
sérhönnuðum fyrir
konur með þvagleka-
vandamál.
Það er mikilvægt að hafa gott aðgengi að þvaglekavörum.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 9 L AU G A R DAG U R 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9