Hlynur - 15.03.1969, Blaðsíða 2

Hlynur - 15.03.1969, Blaðsíða 2
Erlendur Einarssonj MENNTUN Á VEGUM SAMVINNUFÉLAGA fslenzkir samvinnumenn hafa rekið sérstakan skóla í hálfa öld. Samvinnuskólinn er jafn giamall sjálfstæði landsins. Skól- inn hefur gegnt þýðingarmiklu hlutverki sem almenn mennta- stofnun og stofnun er menntað hefur starfsfólk fyrir samvinnu- félögin í landinu á því tíma- skeiði, sem mestar efnislegar framfarir hafa orðið í landinu. Skólinn hefur því verið ein af þeim stofnunum landsins, sem lögðu grundvöll að þeim fram- Erlendur Einarsson. förum, sem átt hafa sér stað sl. hálfa öld. Hlutverk skólans hefur verið tvíþætt. Annars vegar að ann- ast verzlunarmenntun og hins vegar að glæða og þroska fé- lagsmálaáhuga með þjóðinni. Samvinnuhreyfingin hefur not- ið góðs af þessu tvíþætta starfi skólans bæði beint, með því að fá menntað ungt fólk í verzlun- arfræðum til starfa fyrir sam- vinnufélögin og einnig óbeint, með auknum félagslegum áhuga, sem skólinn hefur glætt með þjóðinni. Samvinnuskólinn og Verzlun- arskólinn hafa gegnt mikilvægu hlutverki í menntun þjóðarinn- ar á sl. áratugum. Verzlunar- menntun þjóðarinnar hefur hvílt á þessum skólum svo til eingöngu. Með hinum miklu breytingum, sem átt hafa sér stað í þjóðfé- lagsháttum hér á landi, sérstak- lega á sl. 25 árum, hafa skap- azt ný viðhorf í verzlunar- menntuninni. Það er langt síð- an, að hinir tveir skólar, sem annast verzlunarmenntunina, gátu gegnt hlutverki sínu. Fjöldi fólks, sem vinnur verzlunar- og skrifstofustörf í dag, er orðinn svo mikill, að þessir tveir skól- ar anna engan veginn þessari menntun. Það vantar menntun bæði fyrir neðan og ofan verzl- unarskólana. Það er því ljóst, að efcki má dragast öllu lengur að taka verzlunarmenntun þjóðarinnar Greinin hér á opnunni birtist í aj- mœlisblaði VEFARANS, sem gejið var út í tilejni aj hálfrar aldar ajrrueli Samvinnuslcólans og sagt var frá í síðasta hejti HLYNS. Þar er rœtt á breiðum grundvelli um skólamód sam- vinnuhreyfingarinnar og settar jrarn ýmsar nýjar hugmyndir varðandi þau, og þótti okkur því ástœða til að láta hana koma jyrir augu sem flestra starfsmanna hennar. Höjundinum, Er- lendi Einarssyni forstjóra SIS. þökkum við leyfi til endurprentunar hennar. til gagngerðrar endurskoðunar. Þar ber ríkinu að hafa forystu. Lausn vandamálsins hlýtur að felast í því m. a., að verzlunar- fræðsla verði felld inn í hið al- menna skólakerfi. Þegar ræða á fyrirkomulag menntunar á vegum samvinnu- félaganna í framtíðinni, hljóta skoðanir að miðast nokkuð við það, hvernig heildarskipulagið verður á þessum málum í fram- tíðinni. Rétt er þó að vekja aihygli á því, að samvinnuskólar ná- grannalandanna eru alls staðar, þar sem ég þekki til, byggðir þannig upp, að þeir taka á móti starfsfólki samvinnufélaganna og þjálfa það og mennta með tilliti til ákveðinna starfa. Skól- arnir eru þannig ekki opnir, heldur aðeins fyrir starfsfólk félaganna. Hjá stórfyrirtækj um erlendis eru einnig reknir slíkir þjálfunarskólar. í þessum skól- um er fyrst og fremst lögð á- herzla á að mennta starfsfólkið með tilliti til ákveðinna starfa, eins og áður er sagt. Efnilegir starfsmenn fá þá tækifæri í þessum skólum að búa sig undir vandasamari störf. Þannig er það í sænska samvinnuskólanum t. d. að þar eru sérstök námsfceið fyrir stjómendur kaupfélaganna og síðan fjölmörg námskeið á öllum sviðum starfsins. Ég tel, að það sé tilfinnanleg- ur skortur á þjálfun starfsfólks 2 HLYNUR

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.