Hlynur - 15.03.1969, Blaðsíða 8
EYÐUBLÖÐ OG PAPPÍR
eftir Gísla Eriendsson tæknifræðing hjá Tæknideild SIS
Markmið þessarar greinar er
að vekja fólk til umhugsnnar
um eyðublöð, pappír og kynna
íslenzka staðla á þessu sviði.
Nú á tímum skriffinnsku og
pappírs er mjög mikilvægt að
veita þessum málum athygli.
Þeim tegundum pappírs sem
við notum vil ég skipta í venju-
legan skrifpappír og eyðublöð.
Oft liggja mörkin á milli ekki
skýr, en undir eyðublöð vil ég
setja hvern þann pappír sem er
prentaður að meira eða minna
leyti fyrirfram, og síðan útfyllt-
ur og/eða undirritaður.
Um venjulegan skrifpappír
ræði ég ekki, nema hann fellur
auðvitað undir staðal eins og
annar pappír, en eyðublöð ætla
ég að ræða lítillega um.
Hlutverk eyðublaðs
1. Spara vinnu við skrift, létt-
ari skásetning.
2. Flýta fyrir.
3. Tryggja ákveðinn vinnu-
gang.
4. Tryggja ákveðið form á
upplýsingum.
Uppbygging eyðublaðs
Áður en hafizt er handa um
að útbúa nýtt eyðublað þarf að
hafa eftirfarandi í huga:
1. Þörf.
Athuga vel þörfina fyrir við-
komandi eyðublað og hvort ekki
sé hægt að notast við annað sem
til sé.
Hlutverk, upplýsingar, hver
gefur þær og hver á að nota
upplýsingarnar.
Hvaða gerð upplýsinga.
Hvernig viðkomandi eyðublöð
eiga að dreifast, og síðan
geymslufyrirkomulag.
Hvemig á að skrifa á eyðu-
blaðið, handskrifa, vélrita o. s.
frv.
2. Gæði, pappír, litur.
Það fyrsta sem við hugsum
um í sambandi við igæði pappírs
er þykkt. Við heyrum fagfólk
tala 'um t. d. 70 eða 80 gramma
pappír, en með því er átt við að
1 m2 af viðkomandi pappír sé
70 eða 80 grömm á þyngd.
Mörkin á milli pappírs og
pappa eru um 140 g/m2, en
venjulegur skrifpappír er um
70 g/m2.
Grófleika pappírs verður að
velja með tilliti til hvernig skrifa
á, vélrita eða handskrifa.
Litur skiptir venjulega ekki
miklu máli, þó ber að varast
dökka liti sem skrift sést verr á.
3. Stærð, staðall.
Mjög mikilvægt er að gera sér
grein fyrir stærðum pappírs og
stöðlun. Lögfestir hafa verið á
íslandi staðlar fyrir pappír og
umslög, ÍST 1 fyrir pappír og
ÍST 2 fyrir umslög. Eru þeir
gerðir af Iðnaðarmálastofnun
fslands eftir stöðlun annarra
Kennimerki Mál f mm.
AO 841 X 1189
A1 594 X 841
A2 420 X 594
A3 297 X 420
A4 210 X 297
A 5 148 X 210
A6 105 X 148
A7 74 X 105
A8 52 X 74
A9 37 X 52
A10 26 X 37
T afla Í2.
landa, t. d. þýzkum staðli DIN
476.
í fonmála ÍST 1 segir:
„Hending hefur tíðum ráðið
vali pappírsstærða hér á landi.
Af þessu 'hefur hlötizt mikið ó-
hagræði, og miklu fleiri stærðir
hafa verið notaðar en þörf er á.
Á þetta m. a. við um óhag-
kvæman niðurskurð pappírs,
'torveldun birgðahaids og nýt-
ingu geymslurýmis að því er
varðar prentsmiðjur og pappírs-
séljendur, og á hinn bóginn ó-
hagræði í notkun og vörzlu
bréfa, eyðublaða og hvers konar
skjala.
Það er tilgangur þessa staðals
að bæta úr þessu. Staðallinn
felur í sér nákvæmt alþjóðlegt
kerfi um stærðir pappírs, og
mun notkun hans leiða til
fækkunar stærða og nákvæms
samræmis milli þeirra. Með
þessu verður pöntun, niður-
skurður, notkun, sending og
geymsla pappírs einfaldari og
ódýrari, auk þess sem lagður er
grundvöllur að öðrum stöðlum
fyrir pappírsvörur, svo sem um-
Kennimerki Mál f mm.
B0 1000 X 1414
Bl 707 X 1000
B2 500 X 707
B3 353 X 500
B4 250 X 353
B5 176 X 250
B6 125 X 176
B7 88 X 125
B8 62 X 88
B9 44 X 62
B10 31 X 44
Tafla 3.
8 HLYNUR