Hlynur - 15.03.1969, Side 15

Hlynur - 15.03.1969, Side 15
Vaxandi sala í Noregi Að því er norska samvinnublaðið Várt blad skýrir frá nýlega, liggja nú fyrir bráðabirgðatölur um rekst- ur norska samvinnusambandsins NKL árið 1968, og samkvæmt þeim varð heildarsala þess um 86S milj. n. kr., sem er um 9% aukning frá árinu 1967. Endanlegar tölur liggja ekki fyrir um heildarsölu kaupfé- laganna í Noregi, en bráðabirgða- útreikningar, sem gerðir hafa verið, benda til um 8% aukningar, og *tti heildarsmásala þeirra því að hafa verið rúmar 2.800 milj. n. kr. árið 1968. Gert er ráð fyrir, að í Noregi hafi verðlag í smásölu hækk- að að meðaltali um því sem næst 4% árið 1968, svo að samkvæmt því eru norsku kaupfélögin í ör- nggri sókn á markaði sínum, og reyndar virðist NKL hafa aukið sölu sína heldur meira en sem svarar þessu, því að ekki er reiknað með nema um 1% meðaltalsverðhækk- unum í heildsölu þess. Sameining í A-Hún. Eins og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu (HLYNUR sept. 1968), hefur staðið fyrir dyrum, að kaup- félögin 'á Blönduósi og Skagaströnd sameinuðust í eitt félag. Að því er Árni Jóhannsson kaupfélagsstjóri á Blönduósi tjáði blaðinu nú fyrir skömmu, er sameiningin komin á, og rekur Kf. Húnvetninga nú verzl- anir á báðum þessum stöðum. Sameiningin varð á þann veg, að Kf. Skagstrendinga gekk inn í Kf. Húnvetninga, sem yfirtók eignir og skuldbindingar þess, að frátalinni fiskvinnslu, sem seld var fyrirtæk- inu Hólanesi á Skagaströnd. Fé- lagsmenn Kf. Skagstrendinga urðu þannig sjálfkrafa félagsmenn í Kf. Húnvetninga við sameininguna, og hefur félagssvæði þess nú stækkað þannig, að það nær yfir alla Austur- Húnavatnssýslu. Kosygin samvinnumaður Það er ekki óalgengt, að menn í trúnaðarstöðum innan samvinnu- hreyfingarinnar eigi möguleika á þvi að klífa upp í æðstu metorða- st.ga þjóojelagsins. Þann'g er því t. d. háttað um forsætisráðherra Sovétríkjanna, Alexej Kosygin, en hann gefck í samvinnuskóla í Len- Alexej Kosygm. íngrad á árunum 1921—24 og vann síðan fram til ársins 1930 hjá kaup- félögunum í Síberíu. Þá fór hann til starfa í vefnaðarvöruiðnaðinum, þar sem hann gegndi ýmsum störf- um til ársins 1939, er hann var skip- aður ráðherra fyrir málefni alls vefnaðarvöruiðnaðarins í Sovétríkj- unum, og gegndi hann því starfi það ár og hið næsta. Síðan skipaði hann ýmsar opinberar ábyrgðar- og trúnaðarstöður, þar til hann varð forsætisráðherra í október 1964. Aú í vetur hafa nokkrir starfsmenn SÍS í Reykjavíh æft körfuknattleik í œfinga- sal Laugarnesskólans sér til heilsubótar, og hafa þeir haft vikulegar œfingar. Sjást kapparnir hér á myndinni, en þeir eru frá vinstri: Halldór Jóhannsson, Lryggvi Eyvindsson, Ör?i Friðriksson, Geir Magnússon, Böðvar Valgeirsson og Pétur Jónsson. Auk þeirra eru í hópnum Þorbergur Eysteinsson, sem tók mynd- ‘na, og Skúli J. Pálmason, sem var fjarstaddur. Kenn.slu.búð Pramh. af bls. 16. verið fullsetið á öllum nám- skeiðum kennslubúðarinnar, og ekkert lát er á aðsókninni. Þetta á sér raunar eðlilegar crsakir. Til þessa hafa innfædd- ir Tansaníubúar naumast átt þess nokkurn kost að fá að læra og auka við kunnáttu sína í al- mennum búðastörfum. Smá- söluverzlunin í landinu hefur til skamms tíma verið og er að miklu leyti enn í höndum út- lendinga, einkum Asíumanna, og þeir hafa gætt þess vandlega að kenna innfæddum starfsmönn- um sínum ekkert fram yfir það sem iþeir þurfa á að halda til að geta gegnt einföldustu sendils- störfum. Tansaníumennirnir sjálfir hafa nú fullan hug á að breyta þessu ástandi, en verk- efnin eru mörg í þróunarlönd- unum, svo að af þeim sökum er það kærkomið þegar gjafir ber- ast á borð við þessa. HLYNUR 15

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.