Hlynur - 15.12.1972, Page 2

Hlynur - 15.12.1972, Page 2
Vasa- kver fyrir bændur og einfald- -t • iinga * a íslandi Pyrir skömmu komst í eigu Sambands ísl. samvinnufélaga eintak af torgætri bók frá árinu 1782, sem ber íramanskráð heiti. Er eintak þetta komið frá Sigur- steini Magnússyni ræðismanni í Edinborg, sem eignaðist það í Bretlandi og sendi það heim til varðveizlu. Bók þessi er fyrir margra hluta sakir girnileg til fróðleiks. Fullt heiti hennar er alllangt að þeirra tíma sið eða „Vasakver fyrir bændur og einfaldlinga á íslandi, eður ein auðveld reikningslist, hvar í finnst alls konar útreikn- ingur á upphæð og verðaurum í kaupum og sölum, bæði eftir innlenzku og útlenzku verðlagi, einnig útdráttur af hinni kon- ungl. íslenzku kauptaxta- og bréfburðartilskipun" (sjá einnig mynd á forsíðu). Segir nafnið nokkuð til um efni bókarinnar, en í stuttu máli er hér um að ræða handbók fyrir almenning til nota við hvers konar viðskipti, bæði til aðstoðar við útreikninga og til að kynna sér verðlag á innlendum og erlendum vörum. Höfundur og útgefandi þessar- ar bókar var Jón Johnsonius, sem vann mikið að margvísleg- um fræðistörfum, þýddi m. a. Njáls sögu á latínu og vann að útgáfu Árnanefndar á Eddu- kvæðum, en varð síðar sýslu- maður í ísafjarðarsýslu. — Á sínum tíma hefur þessi bók verið mikil nýjung, en útgáfa hennar hefur reyndar verið í samræmi við tízku tímans, því að um þetta leyti gekk einmitt mikil framfaraalda yfir danska konungsríkið. M. a. voru á þess- um árum gefin út margvísleg rit, sem horfa áttu til framfara fyrir þegnana, þar á meðal allmörg á íslenzku. Bækur svipaðar þessari höfðu áður verið gefnar út fyrir Dani, og með þessu framtaki sínu hefur höfundurinn viljað brjóta þessari nýjung leið til landa sinna. Er og ljóst, að hann hefur verið vandvirkur og sam- vizkusamur maður, því að frá- gangur bókarinnar er allur til mestu fyrirmyndar. Þess er ekki kostur að gera hér nema takmarkaða grein fyr- ir efni þessarar bókar, en til fróðleiksauka verður hér gripið niður í henni á nokkrum stöðum, þar sem segja má, að hún veiti innsýn i viðskiptahætti forfeðra okkar fyrir um tvö hundruð ár- um. Þess skal þó getið, að hún skiptist að efni til i þrjá megin- hluta, í fyrsta lagi venjulega margföldunartöflu eins og við þekkjum þær, í öðru lagi marg- földunartöflu fyrir algengustu þágildandi mynt, sem samanstóð af rikisdölum, mörkum og skild- ingum, og i þriðja lagi kaup- taxtatilskipun, þ. e. fyrirmæli konungs um verðlag á erlendum og innlendum vörum í verzlun- um kaupmanna. Auk þess er svo ýmislegt fleira að finna í bók- inni, svo sem vaxtatöflur, töflur til að umreikna fiska og álnir til peninga, tiundatöflu, útdrátt úr tilskipun um bréfburð á íslandi o. fl. Margföldunartaflan Það ber e. t. v. fátt betur vitni um það, hversu almenn hefur verið á þessum tímum vankunn- átta í þeim undirstöðuatriðum stærðfræðinnar, sem hvert mannsbarn veit nú deili á, en inngangur höfundar að marg- földunartöflunni í bók sinni. Segja má, að hann geri þar ráð fyrir algjöru kunnáttuleysi í þeim fræðum og jafnvel því, að notendur bókarinnar séu óskrif- andi. Kemur það fram í inn- gangi hans eða „ávísan um rétta brúkun og nytsemi þeirra tölutaflna, er finnast í kveri þessu“, þar sem segir m. a.: „Hin fyrsta tölutafla . . ., sem heldur einungis óviðkenndar töl- ur, fernar á hverri blaðsíðu ofan til, notar til að vita útreikning alls konar fjölda og verðhæðar, sem eigi eru ákvörðuð til fleiri en einnar tegundar sérílagi, hver og hafa má hvaða helzt nafn sem vill, til dæmis hundruð, aur- ar, álnir, fiskar, ríkisdalir o. s. frv., og þarf eigi annað til að finna summu eður upphæð á öllu þvílíku en fletta upp þeim tölum, er maður hefir i hugan- um og vili fá útreiknaðar, og leita jafnan að þeirri stærri of- an við þverstrikið, en að þeirri 2 HLYNUR

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.