Hlynur - 15.12.1972, Blaðsíða 12
—
Úr
ýmsum
áttum
j
Samvinnuverzlun á Siglufirði
Hinn 1. nóv. s. 1. opnaði Kf. Ey-
firðinga verzlun á Siglufirði sam-
kvæmt eindregnum tilmælum sam-
vinnumanna þar í bæ. Aðdragandi
þessa er sá, að haustið 1970 varð
Kf. Siglfirðinga að hætta störfum,
en þá varð að ráði, að Kf. Skag-
firðinga og Kf. Eyfirðinga, sem um
árabil höfðu í sameiningu annazt
sölu mjólkur og mjólkurvara á Siglu-
firði, breyttu mjólkurbúð sinni þar í
almenna matvöruverzlun. Var það
gert að ósk fjölda heimamanna, og
var á þann hátt komið í veg fyrir,
að samvinnuverzlun félli alveg nið-
ur á Siglufirði.
Á s. 1. vetri kom fram áskorun frá
120 fjölskyldum á Siglufirði þess
efnis, að Kf. Eyfirðinga setti þar á
stofn útibú og stofnaði þar félags-
deild. Þetta erindi afgreiddi aðal-
fundur Kf. Eyfirðinga 5. júní s. 1.
með því að samþykkja, að sett yrði
á stofn verzlun á Siglufirði, og þeg-
ar fengin yrði tveggja ára reynsla
af henni, yrði tekin ákvörðun um
stofnun félagsdeildar.
Verzlunin er í húsakynnum þeim,
sem áður tilheyrðu Kf. Siglfirðinga
við Suðurgötu 2—4. Þarna hefur
verið útbúið mjög glæsilegt verzl-
unarhúsnæði, og auk fjölbreyttrar
matvöru eru þar einnig á boðstólum
heimilistæki, búsáhöld, vefnaðar-
vörur og leikföng. Frá þessari verzl-
un er síðan útibú að Hvanneyrar-
braut 42, eingöngu með matvörur,
og svo mjólkurbúð í sunnanverðum
bænum.
Skipulagningu og uppsetningu
hinnar nýju verzlunar önnuðust af
hálfu Kf. Eyfirðinga þeir Björn
Baldursson, Vilhelm Ágústsson,
Mikael Jóhannesson, Haraldur
Magnússon og Gísli Magnússon.
Iðnaðarmenn og fyrirtæki á Siglu-
firði sáu um hina almennu fag-
vinnu, Jón & Erling önnuðust upp-
setningu kælitækja, Tréverk hf.
annaðist alla trésmiði, Gunnar
Guðmundsson múrverk, Ingólfur
Ámason raflögn og Bjarni Þorgeirs-
son málningu. Verzlunarstjóri er
Guðmundur Jónasson og með hon-
um munu starfa 6—7 manns.
Afmæli og hlutafjárútboð
Samvinnubankans
Samvinnubankinn átti 10 ára
starfsafmæli hinn 17. nóv. s. 1. Á
afmælisdeginum hófst áður boðað
hlutafjárútboð bankans, en sam-
kvæmt ákvörðun síðasta aðalfund-
ar hans er nú fyrir hendi heimild
til að auka hlutafé hans úr 16 milj.
kr. í allt að 100 milj. kr.
Á liðnum áratug hefur starfsemi
Samvinnubankans vaxið mjög. Við
stofnun yfirtók hann Samvinnu-
sparisjóðinn, sem starfað hafði frá
1954, og voru innstæður hans þá
152 milj. kr., en nú nemur innláns-
fé bankans um 1.400 milj. kr. Á af-
mælisdeginum hafði innlánsféð auk-
izt um 350 milj. kr. frá ársbyrjun
eða um 34%. Starfsemi bankans er
dreifð um land allt, og hefur hann
á liðnum starfstíma yfirtekið tólf
innlánsdeildir kaupfélaga og tvo
sparisjóði með innlánsfé að upphæð
94 milj. kr. Bankinn starfrækir nú
tíu útibú og tvær umboðsskrifstof-
ur úti á landi, auk eins útibús í
Reykjavík. Náið samstarf er á milli
bankans og Samvinnutrygginga, og
annast hann víða umboðsstörf fyrir
þær.
Fyrir skömmu tók til starfa við
bankann Stofnlánadeild samvinnu-
félaga. Er hlutverk hennar að veita
stofnlán til byggingar verzlunar- og
skrifstofuhúsnæðis fyrir fyrirtæki
samvinnumanna, og hafa deildinni
þegar verið tryggðar 15 milj. kr. til
ráðstöfunar á þessu ári.
Hlutafjárútboð bankans nær til
allra félagsmanna í Sambandsfélög-
unum. Eru hin nýju hlutabréf að
nafnverði 5, 10 og 100 þús. kr., og
eru þau til sölu í bankanum og úti-
búum hans, svo og í kaupfélögun-
um um land allt.
Ný verzlun KRON
KRON opnaði hinn 17. nóv. s. 1.
nýja verzlun sína við Norðurfell í
efra Breiðholtshverfi í Reykjavík.
Er hún í nýju húsi, sem félagið hef-
ur reist þar. Húsið er á einni hæð
með rúmgóðum geymslukjallara
undir, og er heildargólfflötur þess
1,300 fermetrar, þar af sölusvæði
550 fermetrar. Er þessi verzlun þar
með hin stærsta og glæsilegasta í
eigu félagsins.
Þessi verzlun er fyrst og fremst
fyrir matvörur, en einnig er þar á
boðstólum nokkuð af fatnaði, bús-
áhöldum, leikföngum og gjafavör-
um. Rúmgóðir kæli- og frystiklefar
eru í húsinu, en kæli- og frystiborð
í sjálfri búðinni eru auk þess 30 m
löng. Innréttingar eru keyptar frá
sænska samvinnusambandinu, og
hillulengd er samtals 1.050 m. Kass-
ar eru þrír, en búnir færiböndum,
svo að afgreiðsla gengur mjög hratt.
Verzlunarstjóri í hinni nýju verzl-
un er Elías R. Helgason.
Verzlunin er í nýjasta hverfi
Reykjavíkur, þangað sem íbúar eru
Vr verzlun Kj. Eyjirðinga á Siglujirði (Ljósm.: Kr. Mötter).
12 HLYNUR